7.11.2021 | 22:40
Óvænt gleðiveisla og s-kenningar sem lengja lífið
Það má deila um hvernig maður telur upp að fjórum, alla vega í tengslum við seinna hraðpróf drengsins sem átti að vera fjórum dögum eftir það á miðvikudaginn. Ég hafði heyrt einhvern minnast á sunnudag og valdi þann dag. Hugsaði samt með mér að ef miðvikudagur væri dagur eitt, ætti ég kannski frekar að mæta með hann á laugardegi ... en hva, skipti eflaust litlu, en í gær seinnipartinn kom skammar-SMS: Áminning. Smitgát. Þér er skylt að mæta í hraðpróf. En þetta er róbót sem sendir og þagnar eftir eitt skipti. Ég fékk tvenn svona ógnarskilaboð, vegna fyrra og seinna hraðprófs sem ég átti ekki að fara í.
Biðröðin var talsvert styttri í dag en á miðvikudaginn og miklu hlýrra þótt væri lægra hitastig úti. Munaði öllu að hafa ekki vindkælinguna. Og vissulega munaði að vera í gömlu en eins og nýju föðurlandinu úr Walmart og með loðhúfuna góðu sem ég fékk á kynþokkaafslætti í hinni dásamlegu búð Bjargi þar sem leitun er að betri þjónustu og flottari fötum. Þar keypti ég eitthvað af jólagjöfum í fyrra.
Inga almáttugur skutlaði okkur og sótti í hálkunni, ég þarf nýtt harðkorna-vetrarnagladekkja-skódæmi eitthvað. Fínu, flottu vetrarskórnir sem voru komnir niður í 19 dollara (áður 80) í Walmart eru orðnir mjög slitnir og ekki góðir í hálku.
Allan tímann í biðröðinni hafði ég á tilfinningunni að það kæmi neikvætt út úr þessu sem væri það besta og skipulagði gleðiveislu í huganum.
Að hafa Kallabakarí nánast við hlið sýnatökuhússins (sjá mynd) var ansi hreint hentugt svo þetta varð ekkert mál og varð að veruleika. Súrdeigsbrauð, rækjusalat, langijón, lítil marensterta og malakoff. (Lífið væri fullkomið ef bakarar settu ekki hnetur, döðlur, möndlur, rúsínur í Köku ársins). Nú þurfti bara að finna gesti. Stráksi, ég og Inga ... næstum nóg en ekki alveg svo við nánast hirtum upp konu sem ég kannaðist við og var við sýnatökuhúsið og í samkvæmiskúlu Ingu. Aðeins klukkutíma eftir seinna hraðprófið kom svarið á SMS. Hjá henni og stráksa. Neikvætt eins og við vissum. Hún var að sjá Himnaríki í fyrsta sinn eftir endurbæturnar, hún hafði verið eins og grár köttur í afmælum hjá mér fram að covid og minningin um hana og aðra gesti var orðin alvarlega dauf enda gleymska besta meðalið við söknuði. Við töluðum ekkert um djamm, karlmenn, mataruppskriftir og barnabarnauppeldi, heldur endurvinnslu, ögn um covid og að Skagamenn virtust hafa náð stjórn á faraldrinum hratt og örugglega, við ræddum líka aðeins um eyðileggingarmátt Trumps og hvernig sumt fólk fyrir westan héldi að það að vera hávær, frekur og þykjast allt vita væri það sama og að þora að segja hlutina hreint út. Ég er ekki sérlega hrifin af Biden heldur.
Það hefur háð mér í mannlegum samskiptum að ég kann ekki nógu mikið á tjáknin. Ég get gert broskarl, hjarta og broskarl sem blikkar með öðru auganu. Á gervihnattaöld skiptir allt svona máli. Mér var sagt að ég teldist vera hálfgerður drundhjassi, gjörsamlega ónæm á fínni blæbrigði tilfinningarófsins ...
Svona: :) <3 ;)
Myndin er úr fína antíkskúrnum á Akranesi - við Inga kíktum þangað fyrir veisluna.
Þótt ég hafi rifið kjaft við Þórólf um daginn hér á blogginu, samt óbeint og samt kurteislega, og ég er ekkert hreykin af því, því ég veit ekki hvort hann bar ábyrgð á þöggun um smittölur á Akranesi sem nú hefur verið hætt ... lýsi ég yfir algjöru trausti á honum og öllu sem hann segir um COVID-19. Gamlar s-kenningar segja nú samt að Þórólfur sé á spena hjá öllum helstu lyfjafyrirtækjunum í heimi, eins og hver einasti sóttvarnalæknir veraldar og Bill Gates borgar líka eitthvað í illmennsku sinni (bíddu, er hann ekki enn á lausu?). Ekki vildi ég vera hluthafi í lyfjafyrirtæki fyrst allur gróðinn fer í mútur til nánast allra vísindamanna og lækna. Nýjasta nýtt er að Þórólfur og Svandís hafi í fyrra, gert mikla aðför að kristni og kristindómi, með því að hvetja fólk til að fara ekki í mörg jólaboð (fb-vinur heyrði á Útvarpi Sögu) og gera sennilega aftur. Ég sá svo sjálf á netinu í gær að einhver erlendur læknir, doktor eitthvað, hefði sagt eitthvað um hættur bóluefna og alls kyns samsæri. Kommentakerfið logaði, einhver hafði gúglað og hvergi fundið þennan meinta lækni en svarið var: Hann verður ábyggilega að vera með falskan prófíl til að forðast ofsóknir eða að vera hreinlega myrtur fyrir að segja sannleikann.
Þegar Facebook skellir stimpli á vafasamar vax-greinar og bendir lesendum á að fyrir þessu séu lélegar eða jafnvel engar heimildir er það víst hluti af samsærinu og heitir ritskoðun.
Ég elska samsæriskenningar og þegar ég sest í helgan stein (allt of langt þangað til) ætla ég að vafra um á netinu og lesa þær mér til skemmtunar og gleði - til að lengja lífið.
Ég gleymi alltaf að hlusta á Útvarp Sögu. En ég gleymi nánast aldrei að hlusta á Tvíhöfða á Rás 2 á sunnudagskvöldum kl. 22 til miðnættis.
Mæli með þeim.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 7. nóvember 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 44
- Sl. sólarhring: 100
- Sl. viku: 225
- Frá upphafi: 1528038
Annað
- Innlit í dag: 38
- Innlit sl. viku: 176
- Gestir í dag: 38
- IP-tölur í dag: 38
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni