8.11.2021 | 19:09
Fáránleikarnir 2021 ...
Í gær skrifaði ég um samsæriskenningar en þær eru nákvæmlega ekkert spennandi miðað við það sem ég sá í morgun, samt er ég ekki sest í helgan stein og farin að leita að góðum sögum. Fólkið í söfnuðinum í kringum Trump heldur því fram að John F. Kennedy yngri, lögmaður og sonur JFK forseta og Jackie Onassis og bróðir Caroline, þessi sem fórst í flugslysi fyrir mörgum árum, muni rísa upp frá dauðum og ásamt Donald Trump stjórna Bandaríkjunum þegar kjörtímabili Bidens lýkur. Dauði Kennedys var víst settur á svið, kannski í þessum tilgangi. Það eru þá ekki bara Kínverjar sem hugsa langt fram í tímann ... 50 ár, 100 ár? Íslendingar ... fjögur ár?
Snapp-vinkona mín sem býr í USA (íslensk) hélt með Trump gegn Hillary og ég veit um fleiri ... manneskja sem ég þekki og ber virðingu fyrir, skynsöm og klár, las ævisögu Hillary og sagði eftir það að þessi kona mætti aldrei verða forseti Bandaríkjanna, þá væri Trump skárri. Undir það er erfitt að taka en ég hef svo sem ekki treyst mér til að lesa þykka ævisöguna með öllu hinu. En ef ég lendi á eyðieyju með fullhlaðinn kyndilinn! Hillary þótti ímynd peningaaflanna og spillingar í margra augum sem vonuðu að Trump myndi breyta og bæta. Hann breytti eflaust einhverju ...
Snappvinkonan er brjáluð út í bandarísk yfirvöld núna, maðurinn hennar missir sennilega vinnuna af því að hann vill ekki láta bólusetja sig, frekar en hún. Þau eru nefnilega bæði búin að fá Covid-19 en það virðist ekki skipta máli. Bara tekið mark á bólusetningarvottorði. Hér á landi virðist enginn skyldaður í sprautu og það þykir best af öllu upp á hjarðónæmi að vera búinn að fá Covid.
Eins og fáránleiki dagsins sé ekki nægur, þá sagði útvarpið frá því að platan Led Zeppelin IV ætti fimmtugsafmæli í dag. En sú reikningskunnátta! Ég, þrátt fyrir að vera sársvekktur kjósandi úr Norðvestur, kann alveg að telja og veit að þetta getur ekki staðist. Það eru svo miklu færri ár síðan lagið Going to California varð eitt af mínum uppáhalds af þessari plötu. Mögulega er talning svona fáránleg í útlöndum af því að það er alltaf verið að fikta í klukkunni.
Ég er alltaf á leiðinni að kaupa Lóaboratoríum-mynd en þessi lýsandi mynd sem svo margir geta samsamað sig með er þaðan!
Going to California er eftir Page og Plant og er um jarðskjálftana í Kaliforníu og ... leitina að hinni fullkomnu konu. Þarna tengi ég ... svoooo fast. Ég er verulega spennt fyrir jarðskjálftum og mamma vill að ég finni hinn fullkomna mann sem mun sennilega aldrei heppnast því vinkonur mínar eru giftar þeim örfáu. Það er engin tilviljun að Magga systir hennar mömmu flutti ásamt Steina sínum til Kaliforníu og þar búa afkomendur þeirra og kvarta ekki mikið yfir hitanum.
Stökkbreytist ekki eitthvað í frumum innfluttra til heitari landa sem láta sér vel líka jafnvel 30 stiga hita? Mér finnst þetta svo magnað, svo ótrúlegt, svo hræðilegt í raun. Eftir kuldahroll í tæpa viku (eftir biðröð) hef ég þó öðlast ögn meiri skilning á þörf fólks fyrir hita. En að fara til Tenerife ótilneyddur er og verður ætíð óleystur leyndardómur í huga mínum.
Lagið átti upphaflega að heita Guide to California, en nafninu var breytt þegar hljómsveitin fór til Los Angeles til að hljóðblanda þennan fimmtuga grip sem platan er sögð vera. Stairway to Heaven (svo geggjað að eiga sérstakt lag um stigaganginn sinn) hefur fengið mesta athyglina og ég man að þegar Rás 2, mögulega á sínu fyrsta starfsári, stóð fyrir leitinni að besta lagi allra tíma, og Stairway to Heaven hafnaði í fyrsta sæti. Seinni árin hefur Nirvana tekið fyrsta sætið með Smells like Teen Spirit í svipuðum kosningum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bloggfærslur 8. nóvember 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 46
- Sl. sólarhring: 102
- Sl. viku: 227
- Frá upphafi: 1528040
Annað
- Innlit í dag: 40
- Innlit sl. viku: 178
- Gestir í dag: 40
- IP-tölur í dag: 40
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni