8.3.2021 | 15:41
"Grumpy" bláa öxlin
Ég fór svo innilega út fyrir þægindarammann um helgina með því að bregða mér í sumarbústað (skammt frá Flúðum). Fór meira að segja í heitan pott fyrra kvöldið, sennilega í fjórða skiptið á ævinni. Hrollur.
Á laugardeginum skruppum við (Hilda, Herkúles og fóstursonur minn) á Sólheima og þar fann ég og keypti draumastyttuna. Hún heitir Framandi og er eftir Erlu Björk Sigmundsdóttur.
Við fengum okkur kaffi og meððí og vorum svo heppin að hitta Ólaf, íbúa þar og gamlan vin okkar. Hann sagðist hafa þekkt mig í Heilsubælinu í Gervahverfi þar sem ég lék stórt örhlutverk sem konan í bláa sloppnum ... bláa öxlin, munið?
Ég hreyfði mig eins og eldgömul geit alla helgina, hálfhölt og varkár í ölum hreyfingum. Mín frábæra Ástrós einkaþjálfari lét mig aldeilis finna fyrir því á föstudaginn sem orsakaði harðsperrur fram á miðjan sunnudag. Þú hefðir átt að koma með mér í heita pottinn á laugardagskvöldinu líka, sagði systir mín, eins og til að strá salti í harðsperru-sárin en hún telur allt sull tengt vatni allra meina bót, meira að segja sund!
Sko! Árið 1985 fór ég vikulega í ljós í Sól og sælu, Aðalstræti. Þar voru einkasturtur og -búningsklefar sem vandist ákaflega vel. Árið 1986 fór ég svo í sund með soninn - í Laugardalslaugina og það var álíka sjokk fyrir mig og fyrir teprulegan Kana að fara í fyrsta sinn í sund á Íslandi (ég hef heyrt lýsingar). Mér eru enn í fersku minni rassaskellirnir þegar við rákumst hver á aðra í sturtunni og hef sennilega heitið með sjálfri mér að láta svona ekki yfir mig skella framar. Vatnshrædd? Nei. Klikkuð varðandi sund, gufu, heita potta og slíkt? Kannski. Elska ég sturtuna heima? Já.
Á heimleið með strætó í gær komst ég að því að ég er orðin í alvörunni grumpy old woman - þegi ekki þegar mér misbýður. Einhver leiðindamaður fór að rakka bílstjórann niður fyrir að tala ekki fullkomna íslensku. Bílstjórinn hafði ekki skilið óskýrmæltan manninn og spurt hvort hann gæti talað ensku og það hefur sennilega pirrað hinn. Ég sat næstfremst og var eins og þokulúður, svaraði karlinum jafnóðum og hann nöldraði. Ég hef allt of oft þagað í gegnum tíðina þegar ég verð vitni að leiðindum en nú er ég greinilega hætt að nenna öllu búllsjitti. Svo náttúrlega fær enginn að abbast upp á bílstjórana mína!
Ég gerði tilraun til að kaupa strætómiða í Mjódd fyrir mig og unglinginn á miðvikudaginn var. Bókhaldið mitt heimtar kvittun, ekki útprent úr posavél sem var það eina sem bauðst vegna bilunar. Ekki einu sinni hægt að fá handskrifaða kvittun með útprentið heftað við. Ég prófaði aftur í gær, sunnudag, en enn var bilun. Ég varð pirruð og hugsaði gröm um virðingarleysi við strætófarþega ... en svo fór ég allt í einu að mýkjast.
Allar fallegu tilvitnanirnar og kettlingamyndirnar á Facebook hafa eflaust mildað mig án þess að ég áttaði mig á því. Ég fann allt í einu til ástar á Strætó bs fyrir að húsið í Mjódd hafi verið opið farþegum á sunnudegi ... svo væri heldur alls ekki sjálfgefið að hafa miðasöluna staðsetta í Mjódd.
Óskilamunir fluttu upp í Hestháls fyrir ofan Vesturlandsveg fyrir nokkru. Það hefur sennilega verið metið svo að það væri best að hafa tapað-fundið vel utan alfaraleiðar. Alla vega fyrir Strætó bs. Ég ætti bara að skammast mín, Strætó bs hefði alveg getað flutt miðasöluna þangað líka en gerði það ekki!
Neðri myndin er af Herkúlesi hennar Hildu sem kemur stundum í heimsókn á Skagann. Þarna var hann bara lítill hvolpur. Hann er ekki sérlega hræddur við kettina en eftir að Krummi, ljúfi góði Krummi, stökk gribbulega að honum, eins og til að sýna hver réði á heimilinu, hefur hann verið svolítið smeykur. Bæði Keli og Mosi (á myndinni með honum) eru stórhrifnir af Herkúlesi og einnig Golíat, hálfbróður hans sem Davíð frændi á og kemur stundum með.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 8. mars 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 9
- Sl. sólarhring: 28
- Sl. viku: 148
- Frá upphafi: 1527917
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 113
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni