26.5.2021 | 14:37
Annar í frönskum í dag
Drengurinn fer í sumarbúðir í dag svo talsverðar annir voru í gær við undirbúning. Grímulaus búðaferð og allt. Hann fór líka í Reykjadal í fyrra, en í Skagafirði sem þýddi tvö spennandi ferðalög í raun. Bílferð með Davíð frænda norður og svo tók ég strætó norður tveimur vikum seinna og sótti drenginn. Hoppaði út í Staðarskála og beið róleg með sjokkerandi vondan kaffibolla í annarri og skemmtilega bók í hinni, þar til strætó að norðan kom og við fórum svo samferða á Skagann með þeim strætó. Þetta er í ágæt hugmynd að blindu stefnumóti norðan-snótar og sunnan-gæja, sem þið getið kannski ýtt ykkur en bílleysi þarf ekki að vera fyrirstaða.
Í ár fer stráksi í Mosfellsdal og Inga skutlar okkur, Hilda eða Davíð sækja hann svo með mér eftir tvær vikur ... ef hann vill þá koma. Það var svo gaman í fyrra. Starfsfólkið er sérvalið - allir svo góðir, segir hann. Þetta er mögnuð starfsemi.
Og hvað gera svo barnlausar konur í tvær vikur? Er ekki brennivín og karlmenn alveg út úr korti? Mér dettur ekkert annað í hug en að lesa, vinna og drekka kaffi. Ríkið er flutt upp í sveit eins og pósthúsið svo ég er eiginlega komin út úr skápnum sem bindindismanneskja. Ertu hætt að reykja OG DREKKA, Gurrí? Why, oh, why? Gurrí segir af sinni alkunnu hreinskilni en greindin skín úr fallegum augum hennar sem verða græn þegar hún er í veiðihug: Æ, fokk, ég nenni sko bara ekki að labba alla leiðina í Skaga-ríkið, ég hata að ganga.
Í grímulausu samfélaginu í gær skaut því niður í huga minn að sitt af hverju grunsamlegt hefði átt sér stað fyrr um daginn. Á mynd sem ég birti í bloggi gærdagsins mátti sjá einn smið inni á baði og annan smið úti á lyftubíl. Ég var að átta mig á því að útismiðurinn gerði ekkert, bara fylgdist spenntur með mér og innismiðnum. Það var eðlilegt að komast að þeirri niðurstöðu að hann væri bara að glápa á mig, ég hef oft lent í því. Ég sat þó lengst af við tölvuna og ekki í sjónmáli en gaf innismiðnum kaffi og sýndi honum íbúðina. Augun á útismiðnum stóðu á stilkum á meðan - en hann langaði samt ekki í kaffi. Svo var það ekki fyrr en í gærkvöldi sem ég uppgötvaði að í gær var fyrsti í sleik! (frönskum kossi) Þá mátti sem sagt fara í sleik við ókunnuga, sem hefur verið bannað lengi út af COVID, í heilt ár eða lengur. Og þess vegna komu sennilega tveir smiðir, annar smíðaði, hinn passaði hann. Þetta var algjör óþarfi í mínu tilfelli, ég áttaði mig ekki einu sinni á þessum möguleika fyrr en í gærkvöldi.
Við Inga skruppum í Ramma og myndir, með flottustu myndina í innrömmun, og þar ríkti gleðin ein að vanda. Þvílík heppni að hafa svona frábært fagfólk hér en ég veit til þess að fólk kemur víðsvegar að, m.a. úr bænum til að fá þau til að ramma inn fyrir sig. Við ræddum um útsýni - hvílík skammsýni það væri að loka fyrir útsýni fólks með svölum sem væru ekki úr gleri ... Á hverjum einasta aðalfundi húsfélagsi himnaríkis segist ég stefna að því að vinna stórar upphæðir í happdrættislottóum heimsins og fjármagna glersvalir fyrir alla. Æ, enginn friður í sólbaði, allir að glápa, sögðu sumir vanþakklátir og mér leið eins og ég hefði næstum kastað perlum fyrir svín.
Ég kannast örlítið við suma í bæjarstjórn og slyppi kannski við fangelsisvist ef ég léti bara setja glærar svalir í skjóli nætur ... en að hafa milljón dollara útsýni og nýta það ekki til hins ýtrasta ... En ég er svo sem ekki svalatýpan. Finnst alveg nóg að verða brún í gegnum glerið á aðalútsýnisglugganum mínum. Útsýnið er nefnilega langflottast á haustin, að mínu mati, þegar lægðirnar herja á landið, jess, hvað ég hlakka til en ég tek þó nokkuð jákvæð á móti sumri og sól, ef það tryggir að hinir séu í góðu skapi - og lofa líka að kaupa mér ekki sumarsæng sem eitt árið varð til þess að í hönd fór versta og kaldasta sumar í manna minnum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 26. maí 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 17
- Sl. sólarhring: 29
- Sl. viku: 156
- Frá upphafi: 1527925
Annað
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 121
- Gestir í dag: 14
- IP-tölur í dag: 14
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni