Tímabundin skerðing ... eða hvað

ÚjeEnn stillti ég kaffikvörnina, nú á 9,8 sem er sennilega hin fullkomna mölun - hið fullkomna mal, eins og kettirnir myndu orða það, kannski. Bragðið nýtur sín og ótrúlega gaman að vera til á meðan svona gott kaffi er drukkið.

 

Við Inga skutluðust með drenginn í sumarbúðirnar gær og vá, vá, hvað Reykjadalur er æðislegur staður fyrir börn. Við vorum svo stutt frá Reykjavík að við ákváðum að fá okkur einn kaffibolla í Höfðabakkanum. Klukkan var að verða hálffimm. Þegar í ljós kom að kaffihúsinu hafði verið lokað klukkan fjögur háorguðum við. Akkúrat þegar mann vantar svo sárlega síðasta kaffibolla dagsins. „Allt út af COVID,“ vildi elskulega stúlkan meina. „Já, en ...“ var freistandi að segja. Aldrei samt sniðugt að ræða þetta við afgreiðslufólkið sem stjórnar þessu ekki, fær bara lægri laun vegna styttri vinnudags svo þetta er tap fyrir það líka. Við ókum í loftinu í Kaffitár á Nýbýlavegi og rétt náðum fyrir fimm en þá er skellt í lás ... snökt. Þar fæst uppáhaldsbrauðmetið mitt, eða Spari-krossant.

 

 

Sú sem bjó til kaffið (í götumáli, ekki tími til að setjast og njóta) kenndi mér ýmis góð trix varðandi mjólkina, að láta hana t.d. bíða í 10 sekúndur eftir að búið er að freyða hana, og skella síðan mjólkurkönnunni nokkrum sinnum niður á borðið (ekkert brjálæðislega fast samt). Ég gerði það og þar sem latte-inn minn var sjúklega góður tel ég að galdur hennar hafi virkað. Við kíktum til Hildu systur sem býr þarna mjög nálægt og fengum andlega næringu fyrir heimferðina. 

 

GuðlaugÉg hef heyrt því fleygt að sum kaffihús, sum bakarí og sumar verslanir ... ætli ekkert að breyta neinu til baka þótt COVID hætti að ógna öllu og öllum (sorrí, Trump), þetta sé komið til að vera. Ég man vel þá tíð sem þurfti að fara alla leið í Vegamót á Seltjarnarnesi til að geta keypt mjólk um helgar en í þá daga seldu bensínstöðvar bara bensín, tvist og slíkt. Ég vona að þetta venjist, við vorum orðin svo góðu vön, að komast í bakarí til sex og á kaffihús lengur. Veitir kannski ekkkert af því að fara rólega af stað eftir erfiða veirutíma - og svo er þetta auðvitað gott fyrir línurnar að komast ekki í bakarí eða kaffihús eftir vinnu. En ég veit að þetta pirrar marga. Þetta venst eflaust eins og að nota grímu og horfa hugsandi yfir hafið á ekkert svo merkilegt lengur-eldgos. Fyrir rúmu ári hefði ég ekki trúað því að slíkt væri komið upp í vana.

 

Það er svo margt gott og dásamlegt í gangi annað eftir klukkan fjögur á daginn og fimm, eins og ný tónlist frá Radiohead sem mér skilst að sé væntanleg á næstunni. Svo er annað spennandi sem Skagamenn eru að tjúllast yfir, það er Akraborgarinn - sem opnar í júní - og er sennilega hamborgarastaður, grunar mig.

 

Hlakka til að sjá sem flesta á Skaganum í sumar. Ég mun veifa öllum sem heimsækið Langasand. Því miður sé ég ekki Guðlaugu úr gluggum himnaríkis, en kvartaði yfir því við bæjarstjórann á sínum tíma og bíð bara eftir að hann láti færa kvikindið svo ég geti fylgst með baðgestum. Þá fyrst verður þetta almennilegt blogg þegar ég get farið að færa ykkur glóðvolgar fréttir úr Guðlaugu.


Bloggfærslur 27. maí 2021

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 17
  • Sl. sólarhring: 28
  • Sl. viku: 156
  • Frá upphafi: 1527925

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 121
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband