Afsakið veðrið ...

Gulur maturAnnar í einveru ... djammi, sukki eða hvað hægt er að kalla svona gras-fósturmömmustand. Og nei, það var ekki farið í ríkið þótt góðhjörtuð Skagakona hefði boðist til að skutla mér. Ég masteraði bara seinni latte dagsins - og lét það nægja.

 

Ég ætlaði að hafa það náðugt í kvöld og hita eitthvað tilbúið og gott frá elsku Einarsbúð. Pantaði m.a. kaffirjóma, kattasand og kjúklingarétt (k-dagurinn) og nennti ekki að sjóða hrísgrjón með kjúklingaréttinum sem virtist framandi, gulur og girnilegur, karrí-eitthvað með ananas, indverskt kannski, ekki sterkt samt. Sá eitthvað annað gult inni í ísskáp hjá mér, frá Þykkvabæ, og hitaði með. Lærði rúmlega korteri seinna að þótt eitthvað passi vel saman útlitslega séð og sé sumarlegt og sætt á diski þýði ekki að það bragðist vel saman.

 

Ég er núna fyrst að jafna mig, tveimur tímum seinna. Fólk sem hefur smakkað saman t.d. sítrónufrómas og SS-sinnep skilur hvers konar martröð ég upplifði, sársvöng eftir í raun bara morgunverð í hádeginu. Berneskartöfluréttur er ekki góður með öllu, veit það núna. Líka að matur er ekki bara matur og ég hef verið sérlega heppin í lífinu að lenda aldrei í svona ... alla mína áratugi og þó oft stofnað tilraunaeldhús heima hjá mér. Pasta með chili (fræjum og allt), hrottalega sterkt var eins og ljúfur jólamatur við hliðina á þessu. Rétturinn var góður, kartöflurnar líka - bara ekki saman.

 

Á Akranesi í dag„Er þetta haustveður á þínum vegum?“ spurði Hilda systir fyrr í dag, svolítið pirruð. Hún heyrði greinilega gleðibros mitt yfir veðrinu alla leið í Kópavoginn en ég tek fulla ábyrgð á þessu. Ég lofaði vissulega að kaupa ekki sumarsæng en þegar ég skipti á rúminu í morgun setti ég sumarsængina sem ég keypti í FYRRA í staðinn fyrir umfaðmandi allt of þungu þyngingarsængina og það var eins og við manninn mælt, það fór að hvessa tveimur mínútum seinna. Sængin þunga átti að vera aukagjöf til drengsins um jólin en hann vildi hana alls ekki. Svo ég fórnaði mér og fann fljótlega ráð til að geta andað, lifað af, að mér yrði ekki allt of heitt ... sængin er sem sagt pínku stíf svo hægt er að láta hana standa svolítið eins og spilaborg - svo það kemst bæði súrefni og kalt loft undir hana og hægt að sofna. En í morgun var bara of heitt, hitinn greinilega kominn yfir tíu gráður úti.

 

Örþunn og lauflétt sumarsængin gæti þó verið of köld svona snemma sumars. Hitinn á Akrafjalli var 11 gráður á Celsíus sem segir mér voða lítið - ég hef ekki hugmynd um hversu heitt eða kalt er á Akranesi. Veðrið á Hvanneyri segir mér líka lítið um veðrið heima hjá mér. Vestmannaeyingar fá bara veðrið á Stórhöfða, kannski alltaf hangandi þar hvort eð er? Yr.no er frekar dramatísk veðursíða en þar finnst Akranes samt sem áður. Ég fæ stundum hjartslátt af spenningi yfir komandi stórviðri sem síðan ekkert verður úr, allar tölur hækka eða lækka þegar líður að stóra deginum. Veðrið skiptir mjög miklu máli í svo ótrúlega mörgu. Ég hef heyrt því fleygt að veðurfræðingar sofi bara hjá þegar það er lægð yfir Grænlandi (og það er eiginlega aldrei lægð yfir Grænlandi) en ég á samt erfitt með að trúa því, þeir virðast svo hressir í sjónvarpinu.


Bloggfærslur 28. maí 2021

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 17
  • Sl. sólarhring: 29
  • Sl. viku: 156
  • Frá upphafi: 1527925

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 121
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband