31.5.2021 | 12:00
Að skemmta sér yfir litlu ...
Fyrir skömmu, eða innan við sólarhring, komst ég að því að ég er týpan sem hefur gaman af því að sjá málningu þorna eða hraunflæði fara af stað úr einum dal í annan - starði (á væntanlegt hrauðflæði) þar til svefninn yfirbugaði. Eins gott, þetta er ekki enn farið af stað. Þrátt fyrir öryggisbönd sýnist mér fólk fara þarna yfir án þess að blikka auga ... spurning um að taka 40 þúsund kall á mann fyrir björgunina ... eða nota tækifærið og ... æ, blóðþorstinn yfirbugar mig stundum.
Helgin var annasöm, eða bíltúr út í sveit í gær, heimsókn til konu sem býr í klukkutímafjarlægð frá Skaganum, þetta var mikil upplyfting, eins og að fara í sumarfrí.
Þarna eru komnir tveir hlutir sem fólki finnst ekki endilega sjálfsagt að skemmta sér rosalega mikið yfir. Hraunrennsli sem fer hægt yfir, mjög hægt og ökuferð í roki og rigningu. Sennilega eru þetta Flateyjargenin (Skjálfanda) þar sem fátt gerðist nema kannski á 80 ára fresti þegar ísbjörn kíkti í heimsókn en ég hef reyndar ekki lesið sögu Flaeyjar. Þetta gefur manni ákveðna innri ró sem skemmist svo alveg á heimaleikjum ÍA sem fara fram hér á hlaðinu. Enda hef ég oft sagt að fótbolti hljóti að vera af hinu illa, eða syndsamlegur, hann er svo skemmtilegur ... og talandi um syndina ...
Presturinn á Siglufirði skrifar grein um ketti í Morgunblaðið í dag en Mannlíf birtir hluta úr henni. Af hverju datt manninum (hann segir það fara í manninn, ekki málefnið, að kalla hann prest) ekki í hug að biðla bara til kattaeigenda (eða hreinlega fara fram á við þá) um að halda dýrum sínum inni á þessum tíma, í stað þess að lýsa yfir stríði? Hann hefði frekar fengið fólk (bæjarbúa almennt) í lið með sér þannig, tel ég líklegt. Held að allir, a.m.k. flestir, vilji að ungar komist á legg - og ... saddir og sælir heimiliskettir hafa nákvæmlega ekkert erindi á varpslóðir fugla. Kattaeigendur skilja það líka. Það er þó fáránlegt að ganga jafnlangt og Húsvíkingar hafa gert. Þótt ég sé með inniketti myndi ég aldrei í lífinu vilja flytja í bæ þar sem slíkar reglur væru (kettir bannaðir úti), þrátt fyrir Jajadingdong-barinn og að vera skyld helmingi bæjarbúa.
Guli maturinn úr síðustu færslu var nýttur, eða afgangarnir, og búin til eggjakaka úr bernes-kartöflunum. Þrjú egg, mjólk, salt og pipar - við lágan hita, reynt að snúa við, tókst í sex bitum ... Dugði sem ágætur bröns á laugardegi með tómötum og agúrku, afgangurinn um kvöldið ásamt skyri - en ekki SAMAN. Ég kann að elda. Ég sýð t.d. spaghettí al dente þótt ég hafi alist upp við að það hafi verið soðið eins og kartöflur, í hálftíma. En ég fékk aldrei að smyrja fransbrauð með smjöri og strásykri eins og ein leiksystir mín gerði iðulega. Eða notaði púðursykur í stað salts þegar etið var soðið egg.
Það eru greinilega til ýmsar furðulegar matarsamsetningar. Og bara til dæmis hvað ófrískar konur verða brjálaðar í - væri efni í heila bók. Ég var brjáluð í kotasælu ... sem ekki var byrjað að framleiða á Íslandi á þeim tíma (1979-1980) en hafði kynnst og lært að meta 1976, þegar ég var au-pair í London. Namm, mér finnst hún enn mjög góð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggfærslur 31. maí 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 17
- Sl. sólarhring: 29
- Sl. viku: 156
- Frá upphafi: 1527925
Annað
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 121
- Gestir í dag: 14
- IP-tölur í dag: 14
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni