Stríð fyrir athygli

ÓdámarEinn diskur súrmjólk með kornfleksi, einn banani og ein lítil skyrdós í dag - ég sem ætlaði að fremja miklar kúnstir í eldhúsinu á meðan stráksi væri í sumarbúðunum. Hann vill hafa hlutina svolítið í föstum skorðum ... ekkert tilraunaeldhús. Ég gleymi seint svipnum á honum þegar ég eldaði rabarbaragraut upp á gamla mátann. „Ég veit ekki hvort mér þyki þetta gott en má ég fá meira?“ Sem  minnir mig á, nú þarf ég að redda mér rabarbara í pínulitla frystinn fyrir veturinn.

Svo er ég í hálfgerðri sorg núna, döpur vegna áframhaldandi kattafjandskapar sumra hér á landi. Einhverjir fjölmiðlar njóta þess að skella inn stóryrtum fyrirsögnum kattahatara í þeirri von að kattavinir stökkvi á vagninn og allt verði vitlaust (klikk, klikk, klikk) en ég upplifi frekar dapurleika núna hjá kattavinum. Þetta er enn ein aðförin og sennilega ekki sú síðasta. Á eftir manni af Norðurlandi hafa fleiri tjáð sig (allavega einn) og fengið misgeðug komment frá þeim sem eru lítið/ekkert fyrir ketti, mest körlum. Þetta minnir mig á það þegar Trump komst til valda í USA og í kjölfarið skriðu alls konar ódámar úr holum sínum og fengu allt í einu mjög háværa rödd undir verndarvæng forsetans. Mér þykir vænt um fugla og gef þeim oft, sérstaklega yfir vetrartímann, en er samt ekki til í að banna bíla sem eru það sem drepur einna mest af fuglum, heyrði ég einhvers staðar, eða banna hús sem þeir fljúga á og drepast í stórum stíl ... og svo framvegis. Mér finnst eðlilegt að kattaeigendur haldi köttum sínum inni á þessum árstíma eða setji á þá bjöllur og trúðahálskraga, allt til að bjarga ungunum. Held að flestir kattavinir séu þessu sammála - svo ég skil ekki stríðið.

Þegar ég bjó í London 1976 var mikið um hunda og ketti í hverfinu mínu (Acton Town) og ég varð aldrei vör við nokkurn sem agnúaðist út í þessi dýr, frekar hið gagnstæða - á meðan hér á landi kunnum við ekki enn að búa í borgum og bæjum. Dýr eiga bara heima í sveit, fullyrða sumir enn í dag. Þegar ég flutti í bæinn 1971 var hundahald stranglega bannað og hundum hiklaust lógað ef fólk dirfðist að halda þá í felum. Að hugsa sér ...

Þegar ég reyndi að fá smáskilning hjá mömmu (sem er lítið fyrir ketti og hunda, samt ágæt) og klagaði mann að norðan fyrir henni sagði hún: „Iss, hann er bara skotinn í þér.“ Ég frussaði af hneykslan en nú er ég farin að efast. Var ekki heilt stríð háð vegna einhverrar Helenu í gamla daga? Og kannski var heilt stríð sett af stað til að ná athygli minni, ef mamma hefur rétt fyrir sér. Það skyldi þó ekki vera? Það yrði nú flott í ævisöguna. 

 

Ókei, ég er orðin máttlaus af hungri og nánast geðvond sem gerist nú ekki oft. Sennilega fæ ég mér skyr aftur og banana en matseðillinn á morgun verður eitthvað meira djúsí ... ef ég finn bókina góðu sem inniheldur gamla (ekki samt eldgamla) matseðla frá Bessastöðum meðal annars, úr veislum sem íslenska þjóðin bauð þjóðhöfðingjum annarra landa í. Vona að Einarsbúð eigi til gullflögur, fasanaegg, djúpsteikt lóuhreiður og annað spennandi sem hlýtur að finnast í uppskriftunum ... 


Bloggfærslur 2. júní 2021

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 27
  • Sl. sólarhring: 28
  • Sl. viku: 166
  • Frá upphafi: 1527935

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 124
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband