Einn dagur til stefnu ...

Nýja fyrirvinnanSíðustu daga hef ég legið (eða staðið, ég er með sturtu) í svanamjólk, farið í nudd kvölds og morgna og alls kyns snyrtingar sem hefur lítinn tíma gefið til að blogga. Stundað úthverfa innhugun sem er eitthvað nýtt og fokdýrt en á að virka ef maður notar Herbalife með. Stefnumótið er á morgun. Á MORGUN, KRAKKAR! Þetta var miklu auðveldara í gamla daga, mamma fór bara í lagningu ef eitthvað stóð til, setti á sig slæðu án þess að nokkur hrópaði: Reyndu að aðlagast ... skellti á sig rauðum varalit og var þá tilbúin. Tímarnir hafa breyst og samkeppnin um hvern karl 55 plús er harðari en nokkurn gæti grunað. Að hafa fundið mann á réttum aldri með ótrúlega spennandi menntun (betra vissulega ef hann væri eldgosafræðingur, skjálftafræðingur og slíkt - en komin á þennan aldur hefur mér lærst að slaka á kröfum)

Svo sótti ég fóstursoninn í sumarbúðirnar í gær og þvílíkt sem hann var hamingjusamur eftir dvölina. Strax í morgunm, fyrir allar aldir, var hann vakinn og gerður að fyrirvinnu heimilisins frá og með deginum í dag og fram í ágúst ... Síðasta árið í vinnuskólanum ... Það voru sokkar, ullarsokkar og gúmmískórnir (túttur) síðan í fyrrasumar - vantaði bara lopapeysuna. Hann var líka vel nestaður. Feitt kjet og súrt slátur í pokaskjatta og mysa til drykkjar ... (hæ, Tommi) eða kókómjólk og ostaslaufur ...

Það er brjálað að gera þessa dagana - ekki bara við undirbúning magnaðs útlits fyrir stefnumót við veðurfræðing ... ég fæ iðnaðarmenn á eftir til að taka íbúðina í nefið, setja nýjar fúgur bæði á baði og eldhúsi, mála allt hátt og lágt (komið alveg ár síðan himnaríki var tekið í gegn síðast) ... og margt fleira. Spurning líka um að skipta um gólfefni áður en þetta lætur á sjá ... Mér líður betur með þetta þótt maðurinn komi kannski aldrei í himnaríki - en annaðhvort fer maður alla leið eða gleymir allri rómantík, kona á mínum aldri grípur tækifærin. Jæja, best að fara í svanamjólkurbað morgunsins - hvert gramm af þessu hvíta dufti sem ég á að sáldra yfir mig í sturtunni kostar svo marga þúsundkalla að ég efast um að ég eigi fyrir strætó í bæinn á morgun. Ég fer þá bara á puttanum.


Bloggfærslur 9. júní 2021

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 29
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 168
  • Frá upphafi: 1527937

Annað

  • Innlit í dag: 19
  • Innlit sl. viku: 126
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 18

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband