10.8.2021 | 18:26
Bloggað og sungið gegn smiti
Ekki er ég sammála sumum fjölmiðlum sem tala um mikinn ótta fólks við covid núna. Í kringum mig er ekki hrætt fólk, frekar varkárt fólk, bæði bólusett og óbólusett. Það er mjög leitt að sjá hvað samstaðan hefur minnkað, t.d. hjá ferðaglaða fólkinu sem telur að frelsi sínu vegið með sóttvarnaraðgerðum, að geta ekki farið allra sinna ferða án vesens ... Skynsamasta fólk. Kóvitarnir eru líka allt að æra (kommentakerfið sem ég nenni sjaldnast að lesa) en sannfæra/hræða engan, vona ég. Eitt er að kjósa að fara ekki í bólusetningu, annað að bulla um eitthvað sem maður hefur ekkert vit á.
Hvað gerir svo frúin í Himnaríki til að smitast ekki? Sko, ég blogga, það er hollt fyrir sálina, án efa, kveiki reyndar allt of sjaldan á ilmkerti, hvað þá reykelsi, en hlusta þeim mun meira á dásamlega tónlist, kantötur Bachs, Wu Tang Clan, Sound of Music og allt þar á milli nema kannski kántrí - syng hástöfum með, og drekk einnig gott kaffi. Svo fór ég reyndar í bólusetningu, fékk þetta fína Astra Zeneca sem er byggt á eldri bóluefnum og ekkert óvænt þar, ég ber grímu í margmenni og spritta mig - þetta hefur virkað ljómandi vel hingað til. Ég sakna ræktarinnar mikið og ætla af stað fljótlega (þegar pensilínið hefur unnið sitt verk almennilega, og já, ég las fylgiseðilinn, það var ekki útrunnið og það virkar á það sem amar að mér, og já, ég keypti líka ab-mjólk í lítratali).
Það verður ekki stórveisla hjá mér í ár, eins og áður hefur komið fram, en ég býð samt örfáum úr nánustu búblunni minni í kaffi og köku á fimmtudaginn. Það er eingöngu vegna óhemjuskapar og þrýstings frá sumum, mögulega sjáfri mér. En það verður enn færra fólk en í fyrra, þegar aðeins komu þrír allra nánustu iðnaðarmennirnir og nokkrir hjálparkokkar. Svo mætir fimm manna fjölskylda á föstudaginn í eftirafmæli. Ég veit um nokkra sem myndu segja nei við boði þótt þeir hafi alltaf komið, enda tilveran flókin þessi misserin. Búbluboð (án kampavíns) hljómar bara vel. Það mæta nokkrir í einu, svo verður sprittað og næsti hópur kemur. Nánast. Hika samt við að bjóða sendlinum úr Einarsbúð eða strætóbílstjóranum mínum þótt gaman væri að fá sem flesta (meira stuð) því ég umgengst þá ábyggilega meira en marga ættingja og vini.
Á fimmtudaginn er hægt að halda upp á margt fleira en bara hækkandi aldur undirritaðrar ... þing verður rofið hér á Íslandi, trúarbragðastyrjöld brýst út (í USA, sjá nýlegt blogg), Mark Knofler á afmæli, einnig þyrluflugmaðurinn Ásdís Rán, Sveinn Andri lögmaður og heill hellingur til viðbótar. Þennan dag verða komin 62 síðan fyrstu stððumælarnir voru settir upp í Reykjavík, ef ég man það rétt, þannig að ég hef ýmislegt á samviskunni.
Nánast í fyrsta sinn á ævinni þáði ég lyf frá öðru fólki, þarna á laugardaginn í ferðalaginu, eða pensilín frá vinkonu í hjólhýsahverfi í Stykkishólmi (ég á alvörudíler) og er allt önnur og betri. Ekki lengur erfitt að ganga vegna verkja, meira að segja stend ég ekki lengur undir nafni sem Bjúgríður sem kom skemmtilega á óvart. Auðvitað hefði ég ekki þurft að bíða eftir lækni í tvo mánuði, ég hefði getað mætt eftir kl. fjögur eða fimm á heilsugæsluna, en það óx mér samt svo í augum að ég frestaði því endalaust. Össssssss.
SMS frá Póstinum, stóllinn fagri kemur í dag/kvöld. Síðast þegar ég beið spennt eftir pakka, kom sendingin reyndar daginn eftir SMS-ið, og það sleppur alveg. Ég lofaði Hildu systur því að hún fengi að sitja í nýja stólnum á fimmtudaginn (þá stoppar hún kannski lengur). Myndin (af stól) sýnir hversu hræðilegt er þegar stólar eru of lágir ... ef Sean Connery myndi nú setjast í þennan sæist upp undir hann og þar með kæmi stóra leyndarmálið í ljós ... ganga skoskir karlar í nærbuxum undir pilsinu? Ég vil ekki vita það. Maður þarf ekki að vita allt! Flottur stóll samt en hann neyðist til að sitja á arminum - sem ég yrði að gera á mínum ef hann væri ekki mátulega hár.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 10. ágúst 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 30
- Sl. viku: 143
- Frá upphafi: 1527938
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 111
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni