Merkileg líkindi ...

Stólinn og MosiStóllinn fagri mætti upp á sekúndu á réttum tíma í Himnaríki í gær ... eða fyrir kl. 22 á réttum degi skv. SMS-inu frá Póstinum. Við hömuðumst við að máta hann til skiptis og erum alsæl. Ég bjóst við að kettirnir færu að rífast um hann en þeir bera sennilega óttablandna virðingu fyrir mér þegar kemur að stólum og hafa ekki lagst í hann í dag, sennilega er hann ekki nógu mjúkur. Hann er nú samt afar þægilegur, finnst mér, og alveg nógu hár, sem skiptir ölllu, það er bara eins og hann hafi alltaf verið hérna.

 

Mér skilst að þessi sending af honum hafi selst upp á örskömmum tíma en fólk getur sett sig á lista, eins og ég gerði síðast, og þá er það látið vita þegar hann kemur aftur til landsins. Stóllinn átti að vera ein af fjölmörgum afmælisgjöfum frá mér til mín þetta árið (sárabætur fyrir stórveislu sem gat ekki orðið) en ég steingleymdi að kaupa fleiri gjafir. Fartölvan, sú fyrsta í lífi mínu, ætti að lenda við tækifæri, þegar Davíð frændi hefur fundið einhverja fína á góðu verði, og það verður bara hin gjöfin. Vinnutæki en hva ... svo vantar mig sárlega ný gleraugu, já, já, þetta er bara komið, kom á meðan ég skrifaði þetta. 

 

Eina partíiðÉg veit ekki hvort gestafjöldinn á morgun nær tíu manns en það kemur bara fólk úr búblunni minni, ekki einu sinni allir og engin börn, en ég undirbý samt eins og von sé á hundrað. Mikið vildi ég óska þess að sú væri raunin þótt ég mætti alveg vera félagslyndari á milli afmæla.

Ég pantaði tertu (ekki risastóra reyndar) hjá Kallabakaríi og snittur hjá Galito ... en til öryggis ætla ég að búa til skyrtertu, smyrja flatkökur með Einarsbúðar-hangikjöti og útbúa lítinn ostabakka ... Ef allir eru mjög svangir, hryllilega, ofboðslega svangir, brjálæðislega, ætti þetta að reddast og ég að auki sleppa við að kaupa í matinn fyrir helgina ...

 

Ég hringdi hálfafsakandi í Einarsbúð - pantaði gos og alls konar og sagðist halda að það þyrfti tvo til að færa mér sendinguna - eða sendillinn yrði að fara tvær ferðir upp og niður. Hálftíma seinna kom ungi frábæri strákurinn hlaupandi upp í Himnaríki. „Hva, komstu með allt? Í EINNI ferð?“ spurði ég forviða. „Já, en ekki hvað?“ svaraði hann hissa, bar kassann inn í eldhús og dreif sig svo í næstu sendiferð. Ja, ég sligast ef þarf að bera tveggja lítra gosflösku nokkra metra, verð nánast örmagna, þú ert með níu lítra (með mjólk og rjóma) og hleypur upp þrjár og hálfa hæð, svaraði ég honum í huganum.

 

Royal familyHefðardúllur og hæðin ...

Ég sá sérlega lærdómsríka grein á netinu á dögunum þar sem gefin er upp hæð nokkurra þekktra Breta sem eru flestir með blátt blóð í æðum:

Vilhjálmur prins er langhæstur, eða 1,92 m. Bróðir hans, Harry, er ekki nema 1,89 m ... Móðir þeirra, Díana, var 1,82, jafnhá Karli, fyrrum eiginmanni og föður drengjanna (hlusta ekki á að Harry sé rangfeðraður).

Katrín, eiginkona Vilhjálms, er 1,79 m og Camilla, stjúptengdamóðir hennar, er 1.76. Meghan, óþekka tengdadóttirin, er bara 1.70 ... og það er einnig Anna prinsessa, alveg eins og ég OG þar sem bæði mamma og Elísabet Englandsdrottning eru 1,64, finnst mér það renna stoðum undir það sem ég hef oft hugsað, að ég væri alveg jafnmerkileg og þessi konungsfjölskylda. Þetta eru merkileg líkindi. Það er líka fleira sameiginlegt með mér og þessu fólki, eins og til dæmis það að við Elísabet vöknuðum báðar við mann á rúmstokknum og það á sama árinu. Ég man ekki í augnablikinu hvað hitt er en það er líka mjög merkilegt ... 


Bloggfærslur 11. ágúst 2021

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 143
  • Frá upphafi: 1527938

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 111
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband