12.8.2021 | 23:58
Stóra snittumálið og stafsetning á tertum
Ógurlega seint í gærkvöldi, eftir að hafa gert skyrköku og Rice Kristpies-kökur stillti klukkuna á tíu. Sennilega nógur tími til að ryksuga, ganga frá smávegis þvotti, þrífa baðið, fara í sturtu, smyrja 4 pk. af flatkökum og fínisera. Síminn hringdi klukkan níu, hamingjuóskir og í rauninni björgun, því það veitti ekki af meiri tíma.
Inga hringdi í mig í hádeginu: Það finnst engin snittupöntun hér, sagði hún örvæntingarfull, hún hafði hlakkað svo til að úða í sig snittum áður en hún héldi vestur á firði. Eftir að ég las upphátt staðfestingarpóst kokksins sem tók niður pöntun mína síðasta mánudag, kom í ljós að pöntunin hafði ekki skilað sér alla leið. Við reddum þessu, hvenær koma gestirnir? sagði guðdómlegi reddarinn. Ég sagði honum að það yrði um tvö ... en fyrir kl. hálftvö mætti hann með girnilegar snitturnar og Inga gat etið á sig gat, og gestirnir mættu jafnt og þétt, þeir síðustu eftir kvöldmat. Þetta urðu alls 14 gestir úr búblunni minni, nokkru færri en í fyrra. Fjórtán sem sagt með sætu kisufrænku, Þoku, og fullkomnu kettirnir mínir tóku virkilega vel á móti henni þótt hún væri með gelgjustæla við þá. Fimm bætast við gestafjöldann á morgun þegar dásamleg fjölskylda mætir seinnipartinn.
Þegar ég pantaði tertuna fannst mér hálfdónalegt að segja í - 3 - punktur - bil - sinn, ég hefði kannski átt að gera það, sagði ég hugsandi við vinkonu mína þegar við dáðumst að fagurlega skreyttri kökunni. Vertu þakklát fyrir punktinn, sagði hún glaðlega, ekki sjálfgefið að fá punkt. Kakan bragðaðist svo vel að ég fyrirgaf vöntun á bili á eftir punkti. Ef sumir fjölmiðlar telja ekki þörf á prófarkalestri, því þá bakarí?
Það var SVOOOOO heitt í dag, af hverju þarf alltaf að vera svona gott veður á afmælisdaginn minn? Það þurfti heilan barnasálfræðing til að uppgötva að ég get opnað rifu á nýju gluggana sem snúa í norðurátt, of litla rifu fyrir vonda geitunga að koma inn eða ævintýragjarna ketti að komast út á þak, en nógu stóra til að örlítil hreyfing kæmist á loftið. Viftan fjarstýrða úr Costco vakti nánast jafnmikla lukku og snitturnar.
Þetta var ótrúlega gaman og þótt afmælisgjafir hafi verið harðbannaðar stórgræddi ég samt ... súkkulaði, örlitla gríska kisustyttu, bók, kósíföt úr Lín Design, koddasprey (lavander) litla nuddbolta, kaffi, ömmubolla (Fabia Design, eftir Guðnýju sem hannaði breytingarnar á íbúðinni, gefandinn hafði ekki hugmynd) ... það er gaman að fá gjafir ... samt bannað, þetta er flókið.
Ég kláraði að hekla utan um drullusokkinn - og búblan mín áttaði sig á því að mig vantar hurðastoppara sem er nógu stór og stöðugur til að hægt sé að færa hann með fætinum, svo ég fæ sennilega fimm slíka í jólagjöf, eða kannski ekki. En það er allt annað að sjá þetta ... það grunar ENGAN að undir þessari fegurð sé drullusokkur! Ég tek pantanir.
Fínasti dagur:
Þing rofið í dag. (Kosningaskjálfti löngu hafinn og verulega ljót skrif byrjuð um suma flokka ... ég venst þessu aldrei.)
Við Ásdís Rán eigum afmæli.
Stóra legsteinasafnsmálið í Húsafelli leyst farsællega.
Britney Spears sleppur úr fjárhagslegum klóm föður síns.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggfærslur 12. ágúst 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 30
- Sl. viku: 143
- Frá upphafi: 1527938
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 111
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni