14.8.2021 | 14:37
Fleiri partí og leikið á sólina ...
Annar i afmæli fór fram í gær, súkkulaðikaka, nýbökuð og fersk, ásamt leifum dagsins á undan. Og svo var spjallað, borðað, legið í sófa, kisum klappað, borðað, pantaðar pítsur í kvöldmat, borðað og spjallað.
Þegar ofnæmistöflur feðganna (pabbans og V.L. Blíðfinns litla) voru hættar að virka eins vel og fyrr um daginn, ákvað frænka að tímabært væri að fara. Þegar ég fer að geta horft á sjónvarp aftur, veit ég hvert ég leita, eða til frænku og eiginmanns varðandi val á bíómyndum og þáttum. Óli, sonur hennar Önnu, er líka hafsjór fróðleiks í þessu, heyrðist mér sjálft afmæliskvöldið.
Elsku flottu tvíburarnir (í sófanum) sem ég bloggaði svo oft um í denn eru orðnir rammfullorðnir, alveg að lenda í tíunda bekk og orðnir miklu stærri en samt ágætlega stóra frænka (ég). Tíminn líður ótrúlega hratt, nema kannski þegar maður bíður eftir afmælum, jólum og utanlandsferðum. Keli köttur, mannafælan mikla, reyndist ekki óttast þessa dásamlegu fjölskyldu, og eftir að pabbinn færði sig úr sófanum, frá pullunni þar sem Mosi heldur til rúmlega hálfan sólarhringinn, leið honum betur ... ofnæmi er ekkert skemmtilegt. Svo eiga tvíburnarnir dásamlegan litla bróður sem kallast Blíðfinnur í ættinni.
Enn ein gleðin bættist svo við í dag, þriðja í afmæli, þegar fínu gardínurnar komu og voru settar upp. Nú þarf ég ekki að vera með klæddan ramma í glugganum og hangandi síða flík til að sleppa við sólina í hennar versta formi ... eða beint skin á suðurglugga og ekki séns að færa skrifborðið OG MISSA ÚTSÝNIÐ!!! Þeir komu tveir, auðvitað alltaf tveir til öryggis, og á örskammri stundu var Himnaríki orðið enn fínna ...
- - - - - - - -
Ég byrjaði að lesa afmæliskveðjurnar á Facebook og í stað þess að læka á venjulegan máta, setti ég hjarta ... samt ekki daður, strákar mínir, bara innilegt þakklæti fyrir kveðjuna. Á seinni árum hefur harðjaxlinn ég meyrnað einhver ósköp og ég hreinlega fór að tárast yfir kveðjunum ... mun eftirleiðis kallast Gurrí meyra í eigin huga ... og ef ég fer ekki að komast í ræktina fer ég að detta í Gurrí meira. Hohoho. Annars stefni ég á næstu daga að hjartalæka allar kveðjurnar ... bara búin með nokkrar.
- - - - - -
Stórir jarðskjálftar á Haití og í Alaska sem þýðir að eitthvað getið skolfið hér á Íslandi innan sólarhrings. Ekki endilega mikið. Það er dásamlegt að vera í spjallhópi jarðhræringanörda sem fá tilkynningar um skjálfta alls staðar í heiminum og deila því með okkur hinum. Við erum bara fimm þarna - en þetta er aktívasti Facebook-spjallhópurinn minn. Vissulega sá eini, og nóg að spjalla á meðan skjálftarnir riðu yfir hér áður en fór að gjósa á Reykjanesskaga. Við héldum svo bara áfram með hópinn - enda eldgos eins og sniðið fyrir hópinn.
- - - - - - - - - -
Neðsta myndin sýnir rétt viðbrögð við of mikilli sól ... eða almennilegt stöff í gluggann - sem eyðileggur ekki húsmóðurorðstír minn, eins og það sem áður var gerði án efa. Ég keypti fyrir fjóra glugga, þrjá í suður, og einn í austur (eldhúsið) en morgnar þar geta verið ansi hreint kvalafullir. Einhver er nú innkoman, gætu einhverjir hugsað, en Rammar og myndir á Akranesi eru þekkt fyrir allt annað en okur. Þau eru vandvirk og hrikalega skemmtileg, ekki hægt að biðja um meira. Hafa rammað inn flestar af mínum myndum, held ég.
- - - - - - -
Stóri dagurinn okkar Ásdísar Ránar, 12. ágúst, var Dagur unga fólksins (eitt sinn misheyrðist bakara og á afmælistertunni minni stóð Dagur þunga fólksins). Í dag, 14. ágúst, er dagur örvhentra! (Bakarar, reynið að gera eitthvað úr því!) Til hamingju, elskurnar. Þið eruð víst talsvert klárari en við rétthentu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 14. ágúst 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 30
- Sl. viku: 143
- Frá upphafi: 1527938
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 111
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni