Eldað með álhatt og tvítugar áhyggjur af framburði

StanÉg var sem betur fer hætt í útvarpi þegar lagið Stan kom út, slapp með naumindum við að þurfa að spila það og kynna: „Næsta lag heitir Stan og er flutt af Eminem og Dido ... núna þegar klukkuna vantar tuttugu  mínútur í tvö“ ... eitthvað slíkt,  en STÓRA vandamálið árið 2000 var hvernig ætti að bera fram nafn Didoar. Ef notaður hefði verið erlendur og réttur framburður hefði íslenska þjóðin grátið úr h hlátri ... „dædó, sko dædó ... dóri burri“ ... svo Dido var ætíð kölluð Dídó hérlendis. „Ef ég hefði nú bara áhyggjurnar yðar, frú Guðríður,“ gæti einhver sagt en maður ruglar bara ekki flottri söngkonu saman við ... strætó. Það var aftur á móti mjög gaman að bulla stundum ... afkynna lag „með hljómsveitinni Varíus artists“ - eða ljúga til um aldur sumra laga til að vera ekki tekin á teppið (á Aðalstöðinni fyrir að spila of ný lög). X-ið hafði einkarétt á nýjum lögum en kommon, Lemon Tree er t.d. mjög gamaldags lag og passaði miklu betur til spilunar á neðri hæðinni. „Hlustum nú á eitt gamalt og gott, Lemon Tree ...“ 

 

Internetið getur verið svo frábært, eins og til dæmis þegar kemur að hollustuuppskriftum sem poppa bara upp á Facebook. Í kvöld ætla ég að elda brokkolídýrð (uppskrift og mynd í næsta bloggi, ef heppnast) en þetta er eins konar brokkolíbaka. Gott að eiga fósturbarn sem er hrifið af grænmeti. Og þetta er sannarlega ekki meinlæta-eitthvað, heldur einstaklega girnilegt. Samt eru matreiðslubækur ómissandi, að mínu mati, bara upp á að fá hugmyndir að einhverju ... Þeir sem hætta að nota slíkar bækur (eða tímarit) þurfa þá alltaf að fá hugmynd að kvöldmatnum sjálfir og gúgla svo uppskriftina. Boring. 

 

Sings-2Óþolinmæði mín gagnvart sjónvarpi hefur oft komið fram hér, eða óvænta aukaverkunin af reykingalyfinu, og nú er ég orðin pínku pirruð út í snappið og stöku sinnum Instagram ... eða fólkið þar (og já, ég er ábyggilega að fleygja hér stórgrýti úr gróðurhúsi).

 

Sko, fólk sem verður óvænt vinsælt á þessum miðlum (ekki venjulegir áhrifavaldar), stundum í gegnum Íslendingar í útlöndum-snappið (samt alls ekki allt) heldur sumt að ætlast sé til þess af því að það fari að tala svo miklu, miklu meira, segja skoðun sína á öllum fjáranum, og verður þar með ekki jafnskemmtilegt ... Svo geta orðið óvæntar karakterbreytingar á sumum sem maður fylgist með, ég henti alllllveg óvart út ungri konu sem fór að hugsa of sjálfstætt fyrir minn smekk og skellti ýmsum allt of gáfulegum upplýsingum frá örugglega góðum og sönnum netsíðum sem voru stofnaðar eingöngu til að bjarga lífi okkar kjánanna sem láta hræða okkur endalaust til hlýðni í Laugardalshöll eða íþróttahúsi á Akranesi ... Ég er meira að segja orðin leið á svona snillingum (fjandans aukaverkanir).

 

 

Held alltaf tryggð við Gveigu þótt hún segist ekki þola ketti (get bara ekki trúað því), finnst Sólrún Diego æði, líka Sigrún Sigurpáls, Eva Ruza og Katla í Systur og makar ... held ég sé ekki með fleiri áhrifavalda. Kíki stundum á kvöldin þegar ég er komin upp í en hef samt enn meira gaman af því að fylgjast með „mínu fólki“ sem margt er skammarlega latt við að deila lífi sínu með öðrum. (Ég er gurrihar á bæði Insta og Snapchat og alveg rosalega skemmtileg ... hehehe) 

 

En nú er það brokkolídýrðin ... gangi mér vel! Verð með álhatt til öryggis, 4G-bylgjur eru víst ekkert grín.


Bloggfærslur 24. ágúst 2021

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 29
  • Sl. viku: 143
  • Frá upphafi: 1527938

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 111
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband