26.8.2021 | 21:28
Messur í þvottahúsinu og æsispennandi kosningaloforð ...
Kosningar eftir mánuð og loforðin flæða yfir okkur kjósendur, eins og peningagjafir (háar millifærslur til heimilanna), vinna eftir sjötugt í leikskólum (ekki langar mig að vinna eftir sjötugt) og fleira væntanlegt. Man vel undarlegu "leiðréttinguna" (tilfærsluna?) sem breytti engu. Mér líst vel á marga sem eru í framboði en ég myndi aldrei kjósa flokk með villu í nafni sínu. Tilbúið, dulbúið dæmi: Flokkur Krúttlegra (tveir hástafir) ... ekki frekar en að vilja eiga viðskipti við búð sem heitir t.d. Pabbi Veit Sitt Af Hverju - eða Beggi Bakar, eins og hefur áður komið fram á þessum vettvangi. Svona er maður nú innilega herptur handavinnupoki inn við beinið.
Dagurinn í dag hefur m.a. farið í tiltekt og önnur skemmtilegheit ... fann t.d. þrennar nýjar buxur (með verðmiða, voru ódýrar, sjúkk) á fósturbarnið, sem hafa einhvern veginn lent á milli skinns og hörunds hér í Himnaríki og passa ekki lengur, en Rauði krossinn fær dásemdarsendingu bráðum í stórum svörtum poka (hausttiltektin) ... Ég fann líka þrennar íþróttabuxur (stuttar) og bara einar voru enn mátulegar. Þetta var í poka inni í dýrabúri (!?!) sem ég er að hugsa um að auglýsa og gefa (passar fyrir tvær samrýndar kisur eða hund/a). (Grillir i búrið bak við stólinn á fyrir-myndinni, hver vill eiga?)
Fyrst poki með gersemum gat leynst í búrinu í tvö ár, hef ég greinilega ekkert að gera við það. Býst við kaupa lítil taubúr undir kisurnar ... og bíða og vona að það komi dýralæknir á Skagann ... vona bara að þær veikist ekkert ... aldrei ...
(Sé hér á eftir-tiltektarmyndinni að það er fyrir löngu komið að því að kaupa nýja kattaklóru sem er hálf undir skrifborðinu, ég klippti versta hryllinginn af og ryksugaði það. Viftan var notuð aðeins í dag, í fyrsta sinn síðan fínu sólarfráhrindandi gardínurnar komu en sama dag hætti sólin að skína og það fór að hvessa og kólna úti svo þær hafa verið óþarfar, þetta er allt eitt risastórt samsæri. Fékk bláu, hlýju peysuna á skrifborðsstólnum í afmælisgjöf og flissaði innra með mér, hvenær ætli verði hægt að nota svona peysu í svona hita, ég er ALLTAF í henni núna, nema þegar ég hamast í tiltekt).
Prestur flytur væntanlega innan tíðar hingað í blokkina sem hýsir Himnaríki. Íbúð prestsins er vandræðalega neðarlega í stigaganginum en nær nú samt, held ég örugglega, að tilheyra Hreinsunareldinum ef farið er grimmt eftir fræðunum (og gömlu þriggja hæða heimavistinni á Bifröst). Þori ekki að segja meira, þá brjálast húsfélagsformaðurinn (á 1. hæð) en ég held reyndar að víti hljóti að vera ansi mikið niðurgrafið, er það ekki?
Svo er stóra spurningin hvort hringt verði dyrabjöllum til messu á sunnudögum niðri í þvottahúsi (hjólageymslan er full). Ég er alveg til í að syngja á milli atriða, var í Kór Langholtskirkju í nokkur ár og um skamma hríð í Mótettukórnum (Eliah eftir Mendelssohn), ávallt alt en söng mig svo upp í sópran í Fílharmóníu þar sem Krýningarmessan eftir Mozart var tekin (kann hana næstum utan að). Sópranröddin er komin aftur ... kom eftir að ég hætti að reykja.
Ef hægt væri að virkja fleiri í húsinu, gætum við vel tekið til dæmis Jólaóratóríuna í desember (frekar löng messa, ég veit) eða kantötur eftir Bach sem er kannski hentugra. Ég kann að spila Heims um ból á píanó en Mía systir (píanókennari m/meiru) myndi ábyggilega vera organistinn ef ég gef henni gott kaffi. Gjaldkeri húsfélagsins er í kór, ef hún er sópran, er ég meira en til í að syngja altinn - þá eru það bara bassi og tenór sem vantar. Við Kristján Jóhannsson súperstórsöngvari erum þremenningar úr Skagafirði (Mínerva amma og amma hans voru systur), ég þekki hann ekkert en frændhygli og klíkuskapur eru okkar vinsælustu þjóðaríþróttagreinar svo hann er örugglega til að vera tenór í Þvottahússkórnum - hver gæti verið góður bassi? Frændi minn í útlöndum þekkir Kristin Sigmundsson sem er frekar mikið æðislegur. Þetta er sennilega komið. Alltaf gott að hugsa í lausnum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 26. ágúst 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 29
- Sl. viku: 143
- Frá upphafi: 1527938
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 111
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni