25.1.2022 | 11:54
Að dirfast að flauta ...
Kunnuglegt spartlhljóð (2020) berst frá baðinu í þessum skrifuðum orðum, og jú, elskan hann Lalli er að gera allt fínt eftir gluggaskiptin í fyrra. Hann kíkti líka á leku gluggana og vildi meina að þeir lokuðust ekki nógu vel sem væri eina vandamálið. Tékkaði á Didda og co (hirðsmiðir Himnaríkis) og hef góðar vonir um úrlausn minna glugga á næstunni. Gluggi drengsins er þurr eftir aðgerðir gærkvöldsins (plastpoki, eldhúsrúlla, handklæði, dagblöð) en sá í stofunni með blaut bréf en engan leka - svo ég get farið að taka þetta að mér fyrir aðra.
Hvað er þetta með Íslendinga og óþol þeirra fyrir bílflauti? Ein sem ég þekki sagði frá því á Instagram að hún lenti verulega illa í því nýlega. Hún beið eftir stæði í bílastæðahúsi - gaur á BMW hálfbakkaði út úr því og stoppaði svo. Eftir smástund ýttu hún á flautuna. (Gleymdir þú þér, elskan?). Gaurinn gekk út úr bílnum og stóð um stund við framdyrnar hennar megin og starði illilega á hana. Svo fór hann inn í eigin bíl og ók á brott. Korteri seinna kom hún til baka, búin að sinna erindum sínum, en komst ekki burt. Einhver hafði skorið á öll fjögur dekk bílsins hennar. Einstæð móðir sem má við litlu.
Ógleymanlegt þegar ég sat í Hildubíl við bensínstöð við Þórufell/Æsufell, fyrir aftan mann sem hafði verið að taka bensín. Ég var tiltölulega nýkomin frá New York í minni fyrstu, allt of stuttu heimsókn þangað. Þar flautuðu allir endalaust og enginn tók það alvarlega. Eins og hugsuðu, æ, takk, ég gleymdi mér í smástund. Svo ég teygði mig í flautuna hjá Hildu og ýtti laust sem þýddi ekkert annað en: Gleymdirðu þér, elsku sæti karl?
Myndin er af "manninum sem skar á dekkin" - í traustum höndum lögreglu sem verður vonandi bráðum.
Maðurinn á bensínstöðinni sem hafði verið að fleygja rusli úr bílnum, búinn að taka bensín en færði hann ekki þótt við og fleiri biðum eftir dælunni, leit við og horfði svo miklum morðaugum á okkur að ég flýtti mér að benda á Davíð frænda, þá tveggja ára, sem stóð á milli okkar, ég var búin að losa hann úr stólnum því við ætluðum inn. Yfir andlit mannsins færðist þessi líka dásamlegi blíðusvipur. Fyrst barnið hafði flautað var þetta allt í lagi, enginn að reka á eftir honum. Ég skipaði Davíð að flauta til að gera þetta trúlegra og frændi hlýddi og uppskar vingjarnlegt vink frá karlinum. Ég hef aldrei þorað að flauta eftir þetta - ekki einu sinni treyst mér til að eiga bíl, af hræðslu við að rekast óvart í flautuna og einhver komi og drepi mig. Eða sparki í bílrúðuna, eins og gerðist nýlega á Braut óttans, eins og ég kalla hana núna. Ég er vissulega dauðfegin því að flaut-umferð viðgengst ekki á Íslandi - en samt ... að taka flauti eins og einhver sé að segja eitthvað ljótt með því þegar sennilega fæstir geri það þegar þeir ákveða að láta einhvern sofandi á umferðarljósum vita að komið sé grænt.
Unga konan fékk aðstoð, einhver kannski átt gömul en góð dekk, hún á marga vini og sjálf svo greiðvikin að hún hefur unnið sér inn karmastig, eins og sumir myndu orða það. Það er verið að rannsaka þetta atvik og einhverjar myndavélar svo hægt sé að staðfesta að þetta sé hann - ég var svo heppin að ná þessari framtíðarmynd af dekkjaskeraranum. En hann heitir ábyggilega ekki Mummi. Fyrirgefið, allir mínir Mummar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggfærslur 25. janúar 2022
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 5
- Sl. sólarhring: 300
- Sl. viku: 466
- Frá upphafi: 1528297
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 375
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni