28.1.2022 | 23:36
Örlagarík játning og vonbrigðin tækluð
Jæja, ekki náðist fimmta sætið þótt litlu hafi munað, er frekar svekkt en samt rosalega hreykin af elsku frábæru strákunum okkar. Aðalstuðningskona liðsins, hún mamma hringdi skömmu eftir leikinn, aftur og nýbúin, og nú með játningu sem var þó ekki alveg ný af nálinni.
Mamma: Manstu, Gurrí, eftir tertunni góðu Nammi, nammi, gott, gott sem ég bakaði stundum þegar þið voruð lítil?
Ég: Já, heldur betur, bestu tertu í heimi, ljósið í myrkrinu.
Mamma: Sko, ég hringdi eiginlega út af því. Í dag náði síðasta barnið mitt þeim áfanga að verða almennilega fullorðið. Hann Guðmundur, bróðir þinn. (sjá mynd af okkur Guðmundi, hann er til hægri)
Ég: Einmitt, til hamingju með soninn.
Mamma: Takk, elskan. En nú, og bara núna treysti ég mér til að játa fyrir ykkur að þessi terta er bara venjuleg peruterta þótt ég hafi aldrei nennt að gera döðlusultuna sem átti að vera undir perunum og frúmasinum.
Ég: Aftur? Þú sagðir frá þessu í kökublaði Vikunnar, 45. tbl. árið 2000, þessi fína mynd af þér.
Mamma: Já, var ég búin að því? Þú varst að vinna hjá Vikunni þá, alveg rétt.
Ég: Ég tók viðtalið við þig og var í sjokki lengi á eftir. Viltu sem sagt í alvöru að ég segi systkinum mínum nærgætnislega frá þessu?
Mamma: Nei, nei, alls ekki nærgætni, þau eru orðin alveg nógu gömul til að heyra sannleikann og láta sennilega ekki eins og bestíur þótt þú skellir þessu á þau. Lífið er ekki dans á rósum, eins og ég hef alltaf sagt. (Smáhik) Þótt þú hafir til dæmis náð á topp fimm á Moggaglogginu í gær er ekkert garantí fyrir því að þú hrapir ekki hratt niður í það sjötta á morgun. Það þarf ekki annað en spennandi lægð eða kröftuga hríð eða lágan loftþrýsting, eða hvað þetta allt heitir, sem Trausti bloggar um, hann nartar í hælana á þér þótt hann bloggi ekki sérlega oft.
Símtalið varð ekki mikið lengra en ég humma það sennilega fram af mér að blaðra þessu í systkini mín. Ef mamma treysti okkur ekki til að vita þetta fyrr en við urðum síðmiðaldra má það kannski bíða ögn lengur, eða bara miklu lengur. Þetta, að hafa vitað þetta, gerði mig reyndar sterkari og vitrari, ég þroskaðist mjög hratt sem gerði mér auðveldara fyrir að geta tæklað það þegar lífsins vonbrigði sviptust reglulega inn í líf mitt, ástarsorgir, blankheit, að heimili mitt til 18 ára við Hringbraut teldist vera í 107 Reykjavík allan tímann - og svo var ég ekki fyrr flutt á Skagann en húsið sett í 101 Reykjavík ... ekki bara það, heldur kom fínasta kaffihús á næsta horn (Kaffi Vest) sem vantaði öll árin mín þarna. Bara tvö dæmi af tvö þúsund milljónum sem ég hef hrist léttilega af mér eins og óværu - bara af því að játning mömmu hafði hert mig þarna í nóvember árið 2000.
Þetta yrði nánast jafnhræðilegt og að segja systkinum mínum að þau hefðu verið ættleidd. Sem væri sennilega auðveldara af því að mamma er í O-blóðflokki en við í A-plús, A-mínus og B-plús sem er strax mjög grunsamlegt. Ég er A plús!
Þetta voru hugleiðingar föstudagsins sem bara hálftími er eftir af, yfir og út, elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 28. janúar 2022
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 291
- Sl. sólarhring: 300
- Sl. viku: 472
- Frá upphafi: 1528285
Annað
- Innlit í dag: 243
- Innlit sl. viku: 381
- Gestir í dag: 234
- IP-tölur í dag: 228
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni