Dauðalisti, covid-keppur og spotify-þrá

Queen-Elizabeth-IIUm áramót þylja ýmsar völvur upp hvað er fram undan á árinu, eins og völva Vikunnar ... en þótt hún spái konungi dauða er það ekkert miðað við Dauðalistann svokallaða sem birtur er árlega (frá 1987) þar sem 50 frægum (langflestum yfir nírætt reyndar) er spáð dauða af Dauðalista-nefndinni. Í fyrra dóu 12 af lista þess árs en spáin rættist betur á listanum 2020, þar sem heil 40% létust. Á þessum furðulega lista, eða fyrir 2022, má finna leikarann Dick van Dyke (97 ára), Henry Kissinger (99), Angelu Lansbury (97), Alan Greenspan (96), Tony Bennett (96) og sjálfa Elísabetu Englandsdrottningu (96 á árinu), Gorbachev (91) og Sidney Poitier (95). Einn af þeim yungu er David Crosby (81 árs, úr Crosby, Stills, Nash and Young) og einnig sjálfur Pelé (82). Ég var au pair í Vestur-London eitt árið fyrir löngu (Acton Town) og lækaði nýlega skemmtilega Lundúnasíðu og þar fann ég þennan fróðleik. Á síðunni var hneykslast á þeim ósmekklegheitum að setja drottninguna á listann: Sjúk vefsíða spáir drottningu dauða ... samt var listinn birtur. 

 

Keli, Mosi, KrummiÞað eru fjögur ár í dag síðan Einar sonur minn lést í bílslysi, þá tæplega 38 ára. Alltaf erfiður dagur en ég finn samt hvað þetta verður „ekki jafnvont“ með tímanum, ef hægt er að orða það þannig.

 

Ég er umvafin góðu fólki sem ég get alltaf leitað til en þennan dag vil ég vera ein í friði, þótt ég liggi nú ekki undir sæng. Stráksi skrapp í sund og hefur verið önnum kafinn, hann man ekki hvaða dagur er sem er best. Kettirnir hafa allir þrír verið óvenjumikið í kringum mig í dag, legið í glugganum og veitt mér góðan félagsskap eins og sést á myndinni. Frá vinstri: Keli, Mosi og Krummi.

 

Já, og gleðilegt nýtt ár, kæru bloggvinir nær og fjær. Ég kom ekki heim fyrr en í gær, veðrið sá um það. Kisupassarinn almáttugur (Hildur) flutti sennilega til þeirra um helgina, svo rólegir, sáttir og glaðir voru þeir þegar ég kom. Ég blogga ekki í tölvunni hennar Hildu (Makkontoss), bíð frekar eftir að komast í eitthvað almennilegt, eða PC, heima.

 

Áramótin voru yndisleg með Hildu og co. Ég slapp með naumindum við að nota hundasjampó í hárið á mér en það sem bjargaði var að þetta sjampó átti að gera hvítan lit enn hvítari ... sjúkk, hvað það er gott að kunna ensku og vera ekki enn komin með ellifjarsýni! Þetta með hvítt hár passar bara við mömmu sem er með æðislega fallegt hvítt hár ... og hvítu voffafrændur mína, þá Golíat og Herkúles sem stóðu sig aldeilis vel í allri skothríðinni í kringum gamlárskvöld. Við borðuðum afar góðan kalkúna hjá Ellen og Ella en Elli gerði eina þá allra bestu sósu sem hægt er að fá ... gráðaostur er í henni og fæstir í boðinu borða slíkan ost (hann er góður á pítsum) en hann var góður í þessari geggjuðu sósu. Við tókum öll heimapróf áður en við hittumst þótt við séum í sömu jólakúlu - en við hittum aðra líka.

 

ÁramótaheitMargir gera eins konar annál fyrir liðið ár en ég man eiginlega ekki eftir neinu nema eldgosi og covid, já, og svo var það þessi covid-keppur sem bættist lymskulega við og fær að fjúka á árinu. Ekki megrun, alls ekki, bara borða minni sykur og hreyfa mig meira. Það er besta aðferðin, hún virkar nefnilega.

 

Nú hlusta ég á Foxtrot með Genesis, í fyrsta sinn í nokkur ár, með hjálp YouTube. Þarf að fara að endurheimta Spotify-ið mitt sem stráksi notar á fullu í spjaldtölvu sinni. Þegar topp tíu 2021-listi minn á Spotify var opinberaður undir nýliðin áramót voru þar algjörlega ókunnug lög ...

Ha, hlustaði ég á þetta? Hvað er þetta? hugsaði ég gáttuð, þar til greindin góða tók yfir, samt eftir alveg heilar fjórar sekúndur.


Bloggfærslur 3. janúar 2022

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 295
  • Sl. sólarhring: 298
  • Sl. viku: 476
  • Frá upphafi: 1528289

Annað

  • Innlit í dag: 246
  • Innlit sl. viku: 384
  • Gestir í dag: 237
  • IP-tölur í dag: 230

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Elsku Herkúles
  • Catalínusautjándi
  • Eggjahneyksli í Krónunni

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband