Arðbær aukabúgrein ...

Stóru svalirnarRéðst í storm- og regnvarnir á hurð litlu svalanna og með hjálp eldhúsrúllubréfs og dagblaða, einnig krafta í kögglum við að skella fast, tókst mér að verja virkið, held ég. Gluggar eru orðnir tandurhreinir af frábæru rigningunni sem virðist þó hætt í bili. Alveg spurning um að ég taki ýmsar viðgerðir að mér, góður aukapeningur kemur sér alltaf vel, þetta gæti orðið arðbær aukabúgrein. Bara snilldin hvernig ég hélt stormum heimsins utandyra f.e. (fyrir endurbætur 2020) þegar dyr stóru svalanna voru með derring sýnir fátt annað en hugvit, kænsku, grósku, sköpunargáfu og hugrekki, svo fátt sé talið. Límbandið var svo sterkt að það hélt húsinu kyrru í jarðskjálftum og ég er enn að reyna að ná leifum þess af ... Bandið sem ég batt svo frá húninum í rígfastan ofninn var eins og punkturinn yfir i-ið og ég gat sofið rótt eftir þá framkvæmd. Sjá mynd af dásamlegheitunum.

 

Þegar dyrnar hrukku upp eina nóttina kjánaðist Mosi, yngsti kötturinn, út á svalir, hafnaði einhvern veginn á svölunum hjá Hildi og Gumma á hæðinni fyrir neðan. Þau heyrðu átakanlegt mjálm og runnu á hljóðið, urðu svo hissa að þau fluttu úr húsinu einhverjum árum seinna, öllum til sárra vonbrigða. Að minnsta kosti mér, stráksa og köttunum. Já, hér var lifað á brúninni áður en Diddi og hirðmenn hans komu og gerðu við allt sem gera þurfti við, settu nýtt bað og eldhús og fataskápa og nýjan lás á svaladyrnar sem var ekki auðvelt. Eins gott að þessir iðnaðarmenn séu á rápinu á milli búða í bænum. Held að gagnlegur lás hafi loks fundist í Bauhaus, minnir það.

 

Stutt blogg í dag, Inga að koma í kaffi. Í gegnum hana fylgist ég með umheiminum, hversu margir krummar eru í fæði hjá henni og slíkt. Ekki séns að missa af því. 


Bloggfærslur 5. janúar 2022

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 298
  • Sl. viku: 462
  • Frá upphafi: 1528293

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 371
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Elsku Herkúles
  • Catalínusautjándi
  • Eggjahneyksli í Krónunni

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband