2.7.2023 | 15:00
Kaffiskorts-skyndihugdetta og leitin að Karlakaffi ...
Fljótlega eftir hádegi í gær lögðum við stráksi af stað í fjörið á Írskum dögum. Það dropaði úr lofti og ég sagði í spurnartón við drenginn: -Ættum við kannski að vera með regnhlíf? Nennir þú kannski að hlaupa upp og sækja hana?
Stráksi fullvissaði mig um að það væri og yrði engin þörf á regnhlíf svo við lögðum í hann. Á Kirkjubraut, þar sem Rauði krossinn er með aðstöðu og var að selja lopapeysur, fékk ég að nota snyrtinguna til að þurrka andlitið á mér, vinda trefilinn, pússa gleraugun og slíkt. Það er viss áskorun að þurrka rennblautt hár með bréfþurrkum af baðinu en þetta hjálpaði samt mikið. Ég þakkaði mínum sæla fyrir að hafa ekki klínt á mig farða. Konur á mínum aldri þurfa alveg klukkutíma eða tvo til að gera sig sætari og drengurinn beið ...
Niðri á Akratorgi ríkti ótrúlega góð stemning þrátt fyrir úrhellið og það dró úr regni jafnt og þétt. Ég fékk mér borgara hjá Silla kokki og drengurinn sinn vanabundna kjúklingaborgara - svo keypti ég kvöldmatinn, það voru mexíkóskar vefjur úr enn einum matarvagninum. Þegar við vorum að yfirgefa staðinn, orðin frekar slæpt, byrjaði Páll Óskar að þenja raddböndin og við tímdum ekki að fara nema hlusta á alla vega eitt lag og svo lögðum við í hann heim. Á móts við Gamla kaupfélagið og fyrrum Grjótið, sá ég kunnuglega konu sem brosti svo sætt. -Hæ, sagði hún. -Fyndið, við vorum að leita að kaffihúsi og kemur þá ekki Kaffi Gurrí gangandi. Það eru rúm 20 ár síðan ég var með útvarpsþátt undir því nafni ...
Jú, þetta var sjálf Sirrý og svo kom Kristján Franklín örskömmu síðar. Þau hjónin voru í kaffihúsaleit og ... ég neyddist til að segja þeim að það væri lokað hjá Café Kaju um helgar og reyndist vera korter í að lokaði hjá Kallabakaríi, eða Kallakaffi, eins og þau héldu að það héti. Mér tókst að læða inn þakklæti mínu til Kristjáns fyrir allar sögurnar á Storytel sem hann hefur lesið svo fallega. Þau báru fram ansi hreint flotta spurningu í lokin: -Hvort heitir þetta Kalla (kaddla/karla)-kaffi eða Kallakaffi? Við kvöddumst með kærleikum og ég fékk í kjölfarið skyndihugdettu sem reyndist vera afdrifarík og frekar óþægileg. Ég sá Bjórbílinn og hugsaði um Ríkið uppi í sveit á Akranesi og allan bjórskort minn í gegnum árin (er samt ekkert rosalega mikið fyrir bjór) og ákvað að kaupa mér einn lítinn og taka með heim, til að drekka með borgaranum sem ég hafði ekki treyst mér til að borða á Akratorgi vegna rigningar og aðstöðuleysis. Voru ekki Írskir dagar? Híhíhí? En það var ekki hægt að fá lítinn bjór.
Ég gekk Kirkjubrautina, aðalgötuna okkar, áleiðis heim og mætti nánast öllum sem ég þekki, fólki sem hefur haldið sig vita að ég væri fróm kaffidrykkjukerling ... og þarna kom ég arkandi með rosalega stóran bjór í glæru glasi, ekkert lok, ekkert til að leyna glæpnum, ein að yfirgefa hátíðarsvæðið til að drekka í koju, það var þannig svipurinn á fólki. Ég sá alveg að Skagamenn hvísluðust á en við því var lítið að gera. Svo spurði drengurinn: -Hvað er róni? og ég áttaði mig á því að hann heyrði betur en ég, enda 40 árum yngri. Eins gott að Sirrý og Kristján sáu mig ekki, hugsaði ég þakklát, there is a god ... Sagði svo við drenginn þegar við vorum komin að fyrrum Arion banka, núverandi sýsla og skattstjóra, húsi tannsa míns o.fl.: -Beygjum inn hér. Og við fórum inn Merkigerðið til hægri til að komast inn á Sunnubraut. Þar á horninu mættum við Sirrý og Kristjáni sem sáu á augabragði að átakanleg umræðan um skort á kaffihúsi hafði ýtt mér út í drykkju. Ég hafði verið of lengi að heiman, of langt frá eigin kaffivél. En að ég skyldi ekki hafa munað eftir að benda þeim á Galito, þar væri ágætt kaffi og hægt að fá sér eftirrétt, t.d. súkkulaðiköku. Man það á næstu Írskum. Ég óttaðist alls ekki þegar ég gekk Sunnubrautina að Gunna og Jonni sæu mig, þau hefðu haldið að kaffikerlan vinkona þeirra ætti sér tvífara ...
Þetta var svolítið eins og að ganga svipugöngin, walk of shame ... eins og við kölluðum það í denn, blaðakonurnar á Birtíngi, ef prófarkalesararnir þurftu að eiga við okkur orð. Þótt ég hafi líka stytt mér leið með sífullt bjórglasið, með því að fara Sandabrautina frá Skagabraut, náði ég að hitta nánast allan árganginn minn úr barnaskóla. Get ekki annað sagt en að ég hlakki til næsta árgangsmóts. Það er allt of langt síðan ég hef valdið hneyksli.
Krummi og Mosi (mynd 3) hlustuðu spenntir á mig segja frá ævintýrum dagsins en þegar ég fór að tala um bjórinn og þá arfaslöku hugmynd mína, stukku þær báðir á lappir og þutu inn í stofu. Bíði þeir bara þar til ég opna mig svona við þá næst, það verður löng bið á því.
Stráksi fór einn á brekkusönginn (sjá stolna mynd 1, gaflinn á Himnaríki fyrir miðri mynd, fyrir innan gluggann til hægri er ég að baka inni í eldhúsi). Hann hafði sett mér fyrir verkefni heima sem ég sinnti vel, eftir að almennilegt kaffi var komið í allar æðar og frumur, eða að baka uppáhaldskökuna hans (ókei, ég hafði lofað að baka um helgina). Heiðurinn á vissulega Betty nokkur en ég lagði til egg, smjör og mjólk, rafmagn, kökuform og vinnuframlag. Hlustaði á fínustu sögu af Storytel (Margrét Örnólfsdóttir er líka svakalega flottur lesari) og heyrði samt sönginn óma. Held að ég hafi aldrei séð jafnmarga þátttakendur á brekkusöngnum. Veit að grannkona mín frá Úkraínu var þar og skemmti sér konunglega, og sá að grannkonan frá Sýrlandi sat úti á svölum hjá sér og drakk kvöldkaffið ásamt manni sínum og barni.
Þetta voru trylltustu Írskir dagar sem ég man eftir síðustu 17 árin, ansi blautir ... í öllum merkingum þess orðs. Ég var búin að gleyma því hvað það er gaman að djamma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 2. júlí 2023
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.5.): 17
- Sl. sólarhring: 36
- Sl. viku: 481
- Frá upphafi: 1526450
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 414
- Gestir í dag: 14
- IP-tölur í dag: 14
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni