17.8.2023 | 17:49
Stuð við mjólkurkælinn ...
Afmæliskveðjurnar berast enn og sumar sá ég í dag í fyrsta sinn þótt þær hafi verið skrifaðar og sendar á laugardaginn. Facebook þó! Mikið sem kveðjurnar hlýja, gleðja, kæta, bæta og hressa. Ekki er síður hressandi að fá betra veður, eða meiri svala og vind. Rigning er alveg ágæt líka, svona í hófi. Það tók nógu langan tíma að fá stráksa til að leggja vetrarúlpunni og fara að nota jakkann, skömmu fyrir þessa ógeðsheitu daga í júlí og ágúst, en í dag greip hann úlpuna svo það fer að koma vetur, sorrí, krakkar mínir. Hann finnur þetta.
Mér skilst að veðurguðirnir ætli að hafa fínasta veður í Reykjavík á laugardaginn, þegar menningu verður almennilega fagnað. Ég nenni ekki í bæinn, stráksi fer í helgargistingu svo ég get sprangað frjálslega um Himnaríki, jafnvel berleggjuð. Kettirnir kippa sér svo sem ekki upp við smávegis nekt. Gæti orðið gaman að ráðast á ætu afmælisgjafirnar, flotta ostinn, kexið, súkkulaðið ... Líka stór spurning um að standa girnileg við mjólkurkælinn milli kl. 18 og 18.30 í Einarsbúð á morgun, það hefur gefist vel. Stundum hef ég gripið lambalæri eða -hrygg og haft í körfunni til að flýta ferlinu en ef sérlega illa veiðist (mæli ekki með júlí, ágúst og desember) get ég alltaf skilað því í kælinn og keypt mér pastaréttinn góða fyrir einn og hitað í örbylgjunni.
Hef góða tilfinningu fyrir helginni þrátt fyrir hækkandi aldur. Nú eru sumir farnir að tala um að ég líti ekkert síður út en Madonna en það gæti auðvitað verið enn ein pikkupplínan. Aldurinn hefur fært mér bæði visku og ... æ, ég man ekki hvað hitt var.
Einn íbúinn hér í Himnaríki þurfti að skreppa í blóðprufu í dag og ég verð eiginlega að minnast á dásamlegu móttökurnar sem við fengum á spítalanum hér ... á elskulegheitin, fagmennskuna og svo auðvitað verðlaunin í lokin, eða spil sem virkar spennandi. Það verður sem sagt spilað lúdó hér í kvöld. Hugsa að stráksi mali mig, hann var vanur að gera það í Ólsen.
Við tókum strætó, fína nýja rafmagnsstrætó, því það var rigning, ég leyfði drengnum að ráða hvort við færum með honum eða fótgangandi, og hann vildi ekki ganga (getur hatur á gönguferðum erfst frá fósturmæðrum?). Við sátum hlið við hlið en létum ganginn vera á milli okkar, til öryggis ef ég færi að syngja og hann gæti látið sem hann þekkti mig ekki. Ég hef bara hótað því, aldrei staðið við það.
Stráksi er grannur en sætið rétt passaði undir hann samt! Sjá mynd. Ég þorði ekki að horfa á auða sætið við hliðina á mér, hvort ég fyllti kannski út í það líka eins og það sem ég sat á ...
Litla systir (Hilda) kom óvænt á Skagann í gær ásamt vinkonu, bauð mér út að borða, talaði smávegis um daginn og veginn yfir pítsu og kjúklingi, skutlaði mér svo heim og fór síðan til baka í Kópavog.
Skilst að hún hafi verið búin að lofa hundunum (Herkúlesi og Golíat) gönguferð á Langasandi en svo kom í ljós að það var rigning og svona fínir hundar neita að óhreinka sig, jafnvel ekki á flottustu baðströnd landsins. Þetta er alið svo snobbað upp. Ef ég fer í sturtu heima hjá Hildu er ekkert stórmál ef ég ruglast og nota óvart hundasjampó í hárið á mér, það er svo fínt merki en ég verð samt alltaf ögn ljóshærðari á eftir.
Ljósmynd af fögrum köttum: Ekki svona skökk, heldur bara illa tekin í flýtinum, litla myndin virðist skakkari en hún er.
Hilda hafði víst trúað því sem ég sagði henni árið 2006 þegar ég flutti hingað að hér rigndi aldrei. Ég hafði gleymt að leiðrétta það en hér rignir svo sjaldan að hún hefur aldrei upplifað það. Það er svo ofboðslega langt síðan hún var barn að hún man ekki eftir veðrinu á Akranesi í æsku, það var svo sem alltaf gott veður, minnir mig. En hún er brjáluð út í mig núna og hundarnir orðnir fyrrverandi vinir mínir. Eini sem er glaður í þessu ástandi er Krummi, sá sem liggur og malar á myndinni, og hlakkar yfir misheppnuðu gönguferð hundanna. Mosi og Keli fóru að slást af hryggð yfir að hitta ekki vini sína, sætu, hvítu voffana. Ég náði sögulegri mynd af þessu.
Heimsókn Hildu og kó gekk svo hratt fyrir sig að ég er farin að efast um að hún hafi komið, að ég hafi dottað í hádeginu í gær og vaknað pakksödd, eins og ég hafi farið út að borða í hádeginu. Ég held að Hilda hafi ekki áttað sig á rigningunni fyrr en eftir matinn, þegar átti að fara í göngutúr með hundana. Kannski var gönguferðin ekki ástæðan fyrir komu þeirra hingað, mögulega átti vinkona hennar erindi hingað en mér finnst það ekki trúlegt. Hér er fátt spennandi að gerast fyrir konur á okkar aldri á þessum árstíma, nema við mjólkurkælinn í Einarsbúð á föstudögum klukkan átján.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 17. ágúst 2023
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.5.): 41
- Sl. sólarhring: 43
- Sl. viku: 505
- Frá upphafi: 1526474
Annað
- Innlit í dag: 35
- Innlit sl. viku: 434
- Gestir í dag: 29
- IP-tölur í dag: 28
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni