Út fyrir sælgætisrammann ...

Hvít kakaFramandi amerískt sælgæti var skoðað í Kosti í gær, eins og M&M með saltstangafyllingu og annað sem heitir Pop-tarts. Eins og margir vita eru sætindi ein leiðin til að koma sér upp sléttara andliti (en vissulega stærri fatastærðum) svo ég fjárfesti í einum pakka af Pop-tarts og öðrum af þessu skrítna MogM-i. Á meðan Tidy-þvotaefnið er æðislegt og þurrkaraklútarnir sturlað góðir, fær þetta sælgæti ekki svo háa einkunn hjá mér. Mögulega annað of sætt og hitt of skrítið. Svona er nú hægt að gera tjúlluð mistök þótt það hafi ekki verið ætlunin. Þetta, að kaupa framandi sælgæti, heitir sennilega að fara út fyrir þægindarammann sinn og þá er ég búin að því þetta árið. Ekki einu sinni stráksi hafði áhuga á að smakka þetta. Uppáhaldið hans í kökudeildinni er hvít regnbogaterta sem ég bakaði um síðustu helgi (sjá sérlega girnilega mynd). Mín er flottari en sú sem sýnd er á Betty-kassanum. Svo segir stráksi og ekki lýgur hann. Inga og Guðrún komu í kaffi á sunnudaginn og kvörtuðu ekki, svo þetta er pottþétt rétt.  

Ég keypti líka eitthvað náttúrulegt til að sofna af í gær, mest til að snúa við þeirri óheillaþróun hér á bæ að sofna seint og vakna seint sem hefur viðgengist í sumar við mikla gleði stráksa sem breytist í B-manneskju á sumrin. Hann er auðvitað fyrirvinna heimilisins (öll sumur frá 13 ára) og mætir til vinnu í Fjöliðjunni klukkan 12, annað árið í röð, sem sagt annað sumarið í röð sem þessi ómennska viðgengst. Í gærkvöldi fengum við okkur gúmmíbirni sem innihalda svefnaðstoð. Ég hafði legið ofan á umbúnu rúminu mínu með skrautpúða (ok, risapúði, ekki skrautlegur) undir höfðinu og verið að lesa - og vaknaði næst klukkan fjögur í nótt (viftan sem blés á mig hafði kælt helst til of mikið), bara til að hátta og fara undir þunnu sængina mína. Þetta sem sagt virkar og verður hér eftir bara notað í neyðartilfellum, til dæmis til að sofna afbrigðilega snemma kvöldið fyrir morgunflug til Evrópu og líka venja okkur stráksa á skólavakn. Hann harðneitaði reyndar að segja mér hvort hann hefði sofnað eitthvað fyrr en vanalega í gærkvöldi.

Það sem mér fannst einna flottast í Kosti var fjöldi glútenlausra vörutegunda. T.d. Betty Crocker-kökur og -krem, pasta og alls konar fleira. Eitthvað fyrir frænku mína sem er með glútenóþol.

 

MániRétt áður en ég leið óvænt út af í gærkvöldi (00.30) náði ég mynd af einhverju furðulegu sem hékk yfir Reykjavík. Geimskip eða fullt tungl var það sem mér datt helst í hug. Síminn var á náttborðinu svo ég greip hann og myndaði ósköpin. Að vísu var máninn ögn appelsínugulari en myndin sýnir en sennilega hefur Apple þótt flottara að „laga“ litinn ... En litur birtunnar í sjónum fékk nú samt að halda sér. Ef þetta var geimskip sem ég uppgötvaði er kannski ekkert skrítið þótt ég hafi sofnað (verið svæfð) skömmu síðar en gleymst að eyða myndinni ... 

 

Það var ekki laust við gæsahúð af hrifningu þegar ég upplifði hlýðni veðurguðanna (ekki í fyrsta sinn) ... sem höfðu skellt þessari fínu norðanátt á í dag. Samt alveg sól fyrir hitt fólkið, þann ótrúlega fjölda sem kýs að verja fé sínu í sólarvörn. Mér tókst að loka grunlausa kettina inni í herberginu mínu og opnaði síðan alla glugga og svaladyr ... hitinn hrundi úr molluhita (22,5-50?) niður í eðlilegan (18?) á örfáum mínútum. Þakklæti mitt er yfirgengilegt. En vifturnar hamast nú samt. Ég hef líka aðeins hindrað miskunnarleysi sólarinnar í suðurgluggum Himnaríkis án þess þó að loka birtuna úti. Það munar um það. Mér finnst óþægilegt að vera stödd einhvers staðar innandyra að degi til og fólk er með dregið fyrir gluggana, en það er til millivegur og hann þræddi ég í dag.

 

Mig langar að biðja veðurguðina sem öllu stjórna að halda gosinu á lífi ögn lengur, eða fram yfir 12. ágúst helst, til að ég verði samkeppnishæf við vissar hátíðir þann dag, en alla vega þar til Davíð frændi er búinn að þramma þessa níu kílómetra sem þarf til að skoða það. Eftir mini-móðuharðindin um daginn er ég alfarið á móti eldgosum, nema meinlausum ræflum sem ekki er hægt að skoða nema í sjónvarpinu og gasútblásturinn úr því veki furðu vísindafólks vegna skaðleysis. Láttu þig dreyma, frú Guðríður ... sem man samt að í gær óskaði hún eftir norðanáttinni SEM KOM Í DAG. Ekki vildi YR.no meina að nokkur breyting yrði á veðrinu. Sú norska segir mér reyndar að það séu 11 gráður þegar þær eru í raun 16 ... sem er ótrúlega góð innræting fyrir mig, heldur eiginlega í mér lífinu en einhver gæti sagt að Norðmenn væru að reyna að halda Íslendingum niðri með slíkum fölsunum, gefa í skyn að landið okkar væri frosinn klaki til að fá sjálfir fleiri ferðamenn. Einhvers staðar heyrði ég að norðurljós Norðmanna væru sjónhverfing gerð með speglum, sem kæmi mér ekkert á óvart. Upptaka af íslenskum norðurljósum, dass af gervigreind ... myndvarpi ... spegill og einbeittur norskur brotavilji.        


Bloggfærslur 2. ágúst 2023

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 204
  • Sl. sólarhring: 279
  • Sl. viku: 1746
  • Frá upphafi: 1460679

Annað

  • Innlit í dag: 189
  • Innlit sl. viku: 1413
  • Gestir í dag: 182
  • IP-tölur í dag: 182

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ken
  • Krummi heitur
  • Galdraskjóða-Gurríar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband