21.8.2023 | 14:16
Af afmælum og megrunarkúrum sem virka
Síminn hringdi fyrir allar aldir í morgun, klukkan var alla vega ekki orðin hálfellefu, og símtalið tengdist verkefni, framkvæmd þess og fleira. Maðurinn í símanum hafði komið í afmælið mitt í fyrra lífi, vel fyrir aldamót, og á Hringbraut sem þá var í 107 Reykjavík en breytt í 101 um leið og ég var flutt þaðan (mynd frá afmæli á Hringbraut). Við höfðum unnið saman í smátíma og það þarf yfirleitt ekki meira en það til að fá boð í afmæli á þessu heimili. Þá, eins og nú, færðu gestir dýrar gjafir og ég man enn, aldarfjórðungi síðar, hvað hann kom með ... Þetta er voða fín olía til að gera seigt kjöt meyrt, hafði hann sagt. Ahhh, svona baðolía, sagði Borghildur vinkona hjálpleg. Margir hlógu, þeim var ekki boðið aftur. Ég rifjaði þessa minningu upp í símanum.
Löng þögn. Hann ræskti sig: Ég kalla þig minnisgóða, sagði hann og röddin titraði svolítið. Sennilega af hrifningu. Það var líka eitthvað afsakandi í rómi hans, eitthvað sem ég lærði að greina á yfirheyrslunámskeiði í denn. (Það sem ég lærði þar kom sér óvænt sérlega vel í þriðja og áttunda hjónabandinu).
Ég svaraði sannleikanum samkvæmt: Mér hefur liðið eins og seigu kjöti síðan. Ég reyndi að láta það ekki hljóma beiskjublandið. Vissulega hef ég meyrnað með árunum en ég þagði um það. Símtalið varð ekki mikið lengra, hann þurfti að flýta sér. Svona geta nú símtöl á fastandi maga hljómað. Jamm, ég borða ekki fyrr en í hádeginu og hætti strax eftir kvöldmat. Hefur engan árangur borið, enda svo sem ekki mikil breyting frá því sem áður var.
Vinkona mín sagðist hafa prófað þessa 16:8-föstu um nokkurt skeið. Að borða frá kl. 12 á hádegi og til kl. 20 á kvöldin, ekki þó samfleytt, bara eins og venjulega. Fasta svo í sextán tíma, eða frá 20-12. Hún sagðist hafa þyngst þótt hún hafi farið samviskusamlega eftir þessu, meira að segja fært vítamínin fram yfir hádegið. Hún er í fullri vinnu frá níu svo hún þjáist mun meira en ég sem get skriðið undir sæng þegar stráksi er farinn í skólann. Ég veit svo sem hvar ég klikka. Ég get ekki beðið til hádegis með að fá mér kaffi með kaffirjóma út í. Mér skilst að það heiti dirty fasting sem hljómar svo spennandi að ég reyni ekki að þýða það. Báðar borðum við hollan mat og gerum okkar besta til að eiga ekki sælgæti í húsinu, það klárast annars hratt. Er ég þá búin með allt afmælissælgætið? Nei, reyndar ekki, enn eru til trufflur en það saxast á þær.
Ókei, ókei, ókei ... meiri hreyfing, meiri útivist? Það á að vera allra meina bót. Ég tók eitt sinn viðtal við konu sem fór á Atkins-kúrinn og grenntist hratt. Hún laug í viðtalinu að hún hefði jafnframt verið dugleg að hreyfa sig, til að vera góð fyrirmynd, en í reyndinni hafði hún verið mjög upptekin og gaf sér lítinn eða engan tíma til gönguferða ... en samt grenntist hún. Henni fannst ómögulegt að segja frá því opinberlega, eins og hún væri að mæra leti og ómennsku sem gönguferðahatur þykir vera.
Þegar ég var au pair í London hvarf allt hvolpaspikið af mér nokkuð hratt því ég þurfti að ganga í þrjá tíma á dag, virku dagana. Fara með börnin í skólann hinum megin við Gunnersbury Park: Á morgnana, bæði börnin, ganga til baka heim. Fara í hádeginu og sækja yngra barnið, ganga til baka. Fara með yngra barnið með mér um þrjúleytið og sækja eldra barnið, ganga til baka ... 30 mín. sinnum 6 ferðir, samasem 3 tímar. Það var engin undankomuleið; strætó, lest eða nokkuð annað sem hefði gert þetta bærilegra. Ég lærði reyndar nokkra ensku af mömmunum sem biðu við skólann eftir krökkunum, eins og að maður segir ekki orange kitten, en Mammakisa eignaðist einn slíkan kettling, maður segir ginger. Til að flýta fyrir grennslu borðaði ég lengi vel bara soðin egg og appelsínur í morgun- og hádegisverð og svo venjulegan kvöldmat.
Ég varð ansi hreint mjó á skömmum tíma. Myndi ég nenna þessu aftur? Well. Það er enginn hálftímagöngugarður hér á Akranesi með mikilvægt erindi hinum megin við hann þrisvar á dag, svo nei. Frændi minn, þekktur fyrir illgirnishúmor en samt ágætur, stundum, ráðleggur fólki að borða kjúklinga-sushi vilji það grennast hratt. Ég held að það sé langbest og ódýrast að ganga bara (ekki bókstaflega) með dökk sólgleraugu, líka inni, banna myndatökur og fleygja speglum. Eða byrja að vinna aftur í Reykjavík og fara gangandi, alla vega aðra leiðina, gæti hlaupið í gegnum Hvalfjarðargöng til að löggan taki mig ekki. Þá myndi ég aldeilis leggja af, eins og það hét þegar til siðs var að tyggja Ayds-karamellur til að grennast.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 21. ágúst 2023
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.5.): 39
- Sl. sólarhring: 42
- Sl. viku: 503
- Frá upphafi: 1526472
Annað
- Innlit í dag: 34
- Innlit sl. viku: 433
- Gestir í dag: 28
- IP-tölur í dag: 27
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni