Fb-njósnir og eldað fyrir þjóðhöfðingja

Bókelskir fjöldamSumarbústaðaferðin um helgina tafði mig frá því að hlusta á fyndnu löggusöguna sem fékk svo hræðilega dóma hjá einni á Storytel. Ég ætla að reyna að klára hana í kvöld. Flissaði áðan yfir samtali einnar úr bókhaldinu hjá löggunni við yfirmann þar sem farið var yfir undarlega reikninga frá okkar löggu (karlrembunni). Ekki síst allt það sem hann sendi í þvottahús fyrsta daginn í bænum þar sem morðið var framið. Hann átti ekkert hreint þegar málið kom upp og tók því þvottinn með sér ... hann á ótrúlega margar nærbuxur ... sem kannski gerist ef maður nennir sjaldan að þvo. Reyndar var listinn og heilmikill texti í kringum hann, lesinn tvisvar því það hefur greinilega gleymst að yfirhlusta bókina, lesari kannski byrjað að lesa á röngum stað daginn eftir og ekki áttað sig á endurtekningunni ... Hef nokkuð oft, eiginlega of oft, lent í því að hlusta á málsgrein aftur, og stundum miklu lengri texta eins og núna. Bókin góða heitir Linda - eða Lindumorðið og fær mig til að brosa með reglulegu millibili, líka flissa og hlæja.

 

FRÉTTIR AF FACEBOOK:

-Viltu fjarlægja mig af vinalista þínum! skrifaði maður nokkur á fb-síðu fb-vinkonu minnar. Hún sagðist gera það með glöðu geði. Hann álítur alla sem dreifa skrifum frá Samtökunum 78 þar sem rangfærslur eru leiðréttar, vera að samþykkja klám fyrir börn. Ég sparaði honum tíma og fjarlægði hann af mínum vinalista svo hann þurfi þá ekki að henda mér út (fyrir misskilning, því miður).

Annar skrifar (Illugi): -Ömurlegt er að sjá það fordóma- og fáviskuklám sem allt í einu vætlar úr fúaspýtum samfélagsins. Jahérna. Ég hélt að við værum lengra komin.

 

Vona bara að það færist ró yfir samfélagið og Eldur finni sér t.d. dökkhærðar Skagakonur sem þola hvorki sund né heita potta og eru brjálaðar í Engjaþykkni með Nóakroppi, til að leggja fæð á, ég er ekki viðkvæmur hópur í sjálfsvígshættu.

 

Tuttugu og tvö ár eru síðan árásirnar voru gerðar á Tvíburaturnana í New York og Pentagon í Virginíu. Í tilefni dagsins er skrifað á síðuna Til stuðnings skólamunastofu Austurbæjarskóla:

-Þetta var langur dagur í Austurbæjarskólanum, m.a. kynningar kl. fimm síðdegis í Bóíósalnum fyrir foreldra sex ára barna sem voru að hefja sína skólagöngu. Þegar Guðmundur Sighvatsson skólastjóri rölti niður Laugaveginn heim á leið var komið kvöld. Hann hafði myndarlegt yfirskegg og leit kannski út fyrir að vera frá Balkanskaganum eða jafnvel enn fjarlægari slóðum. Allt í einu stoppaði bíll við hliðina á honum og farþegi í bílnum gerði hróp að skólastjóranum:

-Go home to the place where you were born!

-Ha, svaraði Guðmundur með hægð á íslensku, -meinarðu til Húsavíkur? Fátt var um svör og bíllinn brunaði í burtu.

 

Þórunn nokkur stingur upp á sniðugu nýyrði í fb-hópnum Málspjall, eða að setja orðið ásigkomulag í fyrstu persónu. -Ég er í góðu ámigkomulagi.

 

Eldum réttFréttir úr himnaríki

Eldum rétt kom í dag og ég eldaði í kvöld rjómalagaðan taíkarrí-þorsk með bökuðu grænmeti (blómkáli, brokkolí og rauðlauk). Sjá mynd af vettvangi.

Hrísgrjónin sem fylgdu voru ekki soðin með, heldur bygg, sem við (ég) viljum frekar en grjón. Veit ekki hvernig stráksi tekur því en það verður aftur fiskur annað kvöld ... Bökuð bleikja með hlynsírópsgljáðum sætkartöflum og mandarínusalati. Mér líður stundum eins og ég sé að elda fyrir þjóðhöfðingja, drottningar eða konunga, jafnvel að mikilvægir samningar verði aðeins undirskrifaðir ef liðið fær nógu fínt að borða. Enda tekst mér yfirleitt alltaf að semja við stráksa um að fara út með ruslið, ryksuga niður að næsta palli og fremja fleiri hetjudáðir.

Þriðji rétturinn þessa vikuna er nú bara fljótlegt Pestó bolognese með ferskri basilíku og parmesan ... það er afar vinsæll réttur hér, fljótlegur, bragðgóður og yfirleitt svo vel útilátinn að hann nægir í hádegisverð fyrir einn daginn eftir. Stráksi fær fínan hádegismat í skólanum svo það dæmist á mig að vera þessi einn. Jesss.

 

P.s. RB-rúmið er dýrlegt, dásamlegt, frábært, magnað, geggjað, stórkostlegt, stórfenglegt, meiriháttar, þægilegt, yndislegt.     


Bloggfærslur 11. september 2023

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.9.): 23
  • Sl. sólarhring: 23
  • Sl. viku: 145
  • Frá upphafi: 1533309

Annað

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 131
  • Gestir í dag: 19
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • DV í denn
  • DV í denn
  • DV í denn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband