Kökuhneyksli í Danaveldi

TannsiFramúrskröngliđ í morgun var međ ţví erfiđara ţví ţađ var ekki nokkur leiđ ađ fara á fćtur um miđja nótt (birtustig), klukkan tíu í morgun. Snjór og hálka ekki í miklu uppáhaldi hér en ţađ er nú samt miklu bjartara ţegar umhverfiđ er hvítt, ég viđurkenni ţađ. En ... ég ţurfti til tannlćknis klukkan hálftvö! Vanalega geng ég ţessa frekar stuttu leiđ frá Himnaríki en ég verđ pínku verri ţótt ég vökni ţegar blćs líka, finnst mér. Strćtó varđ ţađ, heillin, en ţannig stendur á ferđum strćtó ađ annađhvort er ađ mćta fimm mínútum of seint eđa tuttugu og fimm mínútum of snemma. Ég kaus ađ vera fyrr á ferđinni og dundađi mér viđ ađ lesa gömul tímarit á međan ég beiđ. Sjúklega stundvís? Já, ég reyni ţađ.

Í fyrsta sinn í nokkur ár vill tannlćknirinn gera meira en taka myndir, gera viđ hluta úr jaxli, svona áđur en hann fer ađ skemmast ađ ráđi, svo ég fer aftur í ţarnćstu viku. Hann hrósađi mér fyrir ađ bursta vel, vera hćtt ađ reykja og fyrir almenna fegurđ (tanna) en ég fékk engin verđlaun. Kvartađi í stráksa ţegar ég kom heim og honum fannst ţađ bráđfyndiđ, samt fćr hann alltaf verđlaun.

 

Myndin er svo lýsandi fyrir tannlćknaferđir mínar - nema í dag var bara skođun og myndataka. Svona verđ ég eftir hálfan mánuđ á međan ég fć deyfingu.

 

Fór svo međ vini mínum og nýkominni dóttur hans í Brekkubćjarskóla ţar sem hún var innrituđ. Móttökur voru sérdeilis dásamlegar í gamla skólanum mínum og stressiđ í tilvonandi áttundabekkingnum minnkađi međ hverri mínútunni. Aldeilis sem skólinn hefur stćkkađ og breyst. Til hins betra, myndi ég segja, ţađ ríkir einhvern veginn frjálslegur og afslappađur andi ţarna, fagmannlegur líka, flottar myndir eftir nemendur á veggjum, engir svipusmellir í fjarska eđa brotin kennaraprik á gólfum ... Ţađ var vissulega strangari agi í gamla daga, ótrúlega fátt sem braut upp daginn, nema kannski mismikiđ frosiđ á manni háriđ eftir sund og leikfimi.

 

Friđrik og MargrétÉg verđ ađ lýsa yfir hneykslan minni yfir "karlmannlegu konungskökunni" sem á ađ bjóđa Dönum upp á í tilefni ţess ađ Friđrik verđur kóngur og tekur viđ af elskunni henni Margréti Ţórhildi. Hráefnin í kökunni eiga ađ ţola ferđ međ pósti svo "allir" landsmenn geti fengiđ ađ smakka, ţađ er pćlingin. Í Friđrikskökunni (ţeirri til vinstri á mynd) er međal annars heslihnetupralín! Ţađ ţarf ekki ađ gúgla lengi til ađ komast ađ ţví ađ 2% mannkyns okkar megin í heiminum, ţjást af ofnćmi fyrir hnetum. (Ekki nema sex milljón manns í USA!)

Hátt í 60 ţúsund Danir myndu sennilega deyja eđa veikjast eđa verđa slappir eđa finna fyrir kláđa í hálsinum ef ţá langar rosalega til ađ smakka kökuna. Algjörlega sambćrilegt gerist á Íslandi ţegar konudagskakan fer á markađ ár hvert, endalaust hnetudót sem er óborđanlegt fyrir hátt í fjögur ţúsund landsmenn. Setjum upp reikningsdćmi: Ef konudagskakan kostar 5.000 kr. og viđ gefum okkur ađ tvö ţúsund manns, eđa helmingurinn af ofnćmisgemlingum landsins sleppi ţví ađ kaupa kökuna er ţetta beint tap upp á tíu milljón krónur fyrir bakarí landsins. Ég hef ekki keypt konudagsköku síđan Siggi í Bernhöfts var međ hvíta dásemdarköku eitt áriđ fyrir löngu, algjörlega hnetu-, möndlu-, döđlu- og rúsínulausa. Ekkert núggatpralínhnetuhryllings-neitt. Verum eins og Siggi!  

 

Dönum er nákvćmlega ekkert heilagt! Ég gúglađi ađ gamni mínu Margrétarkökuna sem var gerđ til ađ halda upp á daginn ţegar Margrét tók viđ krúnunni 1972 ... fór ađ hugsa um ađ ég gćti fengiđ mér hana sem skađabćtur í stađinn fyrir Friđrikskökuna ef ég vćri á ferđinni í Köben einhvern daginn. Viti menn, Margrétarkakan er trođfull af einhverjum hryllingi líka! Mjúkt núggatkrem kom fyrst upp ... Jćks! Ég ćtla ekki einu sinni ađ ganga fram hjá La Glace-konditoríinu, ég er svo hissa og sjokkeruđ. Viđ erum kannski bara réttdrćp, viđ sem hötum hnetur?

Ţetta óţol mitt fyrir hnetum var lengi vel og er kannski enn kallađ matvendni og hlegiđ ađ mér, sagt ađ ég hafi nú borđađ smákökur međ hnetum án ţess ađ finna fyrir ţví ... (ţćr hafa vissulega nokkrar smákökurnar endađ í vasa mínum eđa veskinu eftir lítinn bita, stundum bitinn líka ef servíetta er í grennd). Snilld mín viđ ađ láta kökur hverfa hratt hefđu komiđ mér í galdamannasamfélagiđ eđa jafnvel samtök búđaţjófa ef ég hefđi kćrt mig um - en ég lćt bara nćgja ađ bjarga mér frá hálskláđa eđa einhverju verra. 


Bloggfćrslur 11. janúar 2024

Um bloggiđ

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 9
  • Sl. sólarhring: 31
  • Sl. viku: 155
  • Frá upphafi: 1527683

Annađ

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 142
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband