Allt vitlaust í kjölfarið ...

Partí með fræga fólkinuRafræn dagbók var tekin upp á þessu heimili undir áramót og það var eins og við manninn mælt, allt varð vitlaust í kjölfarið. Næsta vika er eiginlega troðfullbókuð ... Mánudagur: stjórnarfundur í húsfélagi Himnaríkis þar sem ég er riddari. Þriðjudagur: Hekls Angels-hittingur. Miðvikudagur: Tannlæknir. Fimmtudagur: Fundur. Föstudagur: Enn laust, ótrúlegt. Ég er manneskjan sem fann engan mun á lífi mínu eftir að samkomubann skall á um árið. Nú er ég lafmóð upp á hvern einasta dag, svo mikið er annríkið. Mér finnst ég líka eitthvað svo tæknileg þegar ég kíki í símann minn til að athuga hvort ég eigi lausan tíma ... hvort ég komist í orðuveitinguna á Bessastöðum, í Höfða í kokteildraugapartí, hluthafafund hjá Samherja, afmælisveislur hjá Fokkerliðinu og slíkt. Ég skelli öllu mjög áríðandi inn í rafdagbókina, það er ekki eingöngu djamm með fína fólkinu (sjá mynd, Hugh Grant er einmitt að tala við mig þarna, ráðleggja mér að gerast ekki bakrödd í Oasis, eins og munaði minnstu), heldur vil ég láta minna mig á þegar koma út girnilegar bækur (bók, hef bara gert það einu sinni og það var óþarfi) á Storytel. Bók upp á 25 klukkutíma í lestri, við erum ekki einu sinni að tala um gönguhraða ... en hún veldur mér reyndar hálfgerðum vonbrigðum, líklega voru væntingar of miklar. Húsverkin ganga samt vel á meðan ég hlusta. Finnst stefna í frekar leiðinlega framtíð hjá söguhetjunni, í karlamálum, tek þetta samt aftur ef breytist þennan síðasta klukkutíma sem ég á eftir. Svo er varla talað við kvenpersónuí bókinni án þess að hún sé kölluð „sæta“ ... (nú vita þúsundir hvaða bók ég á við). 

 

HausaveiðararnirSvo er ég að prófarkalesa spennubók, sú er aldeilis ekki leiðinleg, og klára um helgina, vonandi bara á morgun, ef ég fæ frið, ja, hvað segir rafdagbókin sem ræður lífi mínu? Útgefandinn er svo mikið yndi að hann verður með næstu bók (sama höfundar) til yfirlestrar eftir kannski tvær vikur. „Það má ekki láta líða langt á milli þeirra,“ játaði hann, „fyrri bókin endar þannig.“ Sérlega skilningsríkur, bæði í minn garð og annarra spenntra lesenda sem hata óbærilega spennandi endi á sögum og langa bið eftir framhaldinu. Ég prófarkalas Hausaveiðarana á sínum tíma, og þurfti eitt skiptið að standa upp og ganga um gólf, reyna að að draga úr óbærileika trylltrar spennu í kafla þar sem eitthvað hræðilegt gat svo auðveldlega gerst en gerðist svo ekki. Léttirinn stóð samt ekki lengi - þegar söguhetjan gat ekki verið öruggari, staddur í lögreglubíl á ferð, á milli tveggja þéttvaxinna lögreglumanna, þegar hið óhugsandi gerðist allt í einu. Fáránlega vanmetin bók eftir Jo Nesbö, kannski af því að hún var ekki um Harry Hole. Ég sá bíómyndina eftir henni á sínum tíma, útgáfan bauð á frumsýninguna. Þarna var gamall vinur sem hélt utan um hljóðbókaútgáfuupptökuna (ekki Storytel) og sagði mér að hann hefði verið óður af spennu á meðan hann hlustaði á upplesturinn. Eina skiptið sem ég hef staðið upp og þurft að róa mig niður í yfirlestri. Þetta er líka í eina skiptið sem ég hef gengið um gólf, fyrir utan auðvitað þátttöku í Jólasveinar ganga um gólf á jólaböllum æsku minnar. Endilega tékkið á Hausaveiðurunum í næsta bókasafni. Hausaveiðari er sá sem vinnur við að finna bestu forstjórana fyrir risastóru fyrirtækin ... svona eins konar Hagvangur milljarðafyrirtækjanna. Marel? Samherji?

 

Jack Reacher IIÞað ætti að vera óþarfi nú til dags að þurfa að bíða, hvort sem er eftir næstu bókum, eða framhaldsþáttum í sjónvarpi. Ég treysti mér til dæmis ekki til að horfa á aðra Jack Reacher-þáttaröðina á Prime fyrr en allir þættirnir eru komnir. Fyrri þáttaröðin var algjört æði - og ég hef heyrt á fólkinu í kringum mig að það hafi verið martröð að bíða í viku eftir næsta ... ég get slíkt ekki lengur. Svo dekruð er ég orðin en eitt af því fáa sem ég horfi á í línulegri dagskrá er þáttur Gísla Marteins. Það koma alltaf skemmtilegir gestir til hans (mér er alveg sama þótt sumir komi árlega, ef þeir eru skemmtilegir), Berglind Festival er mjög fyndin og ég er líka ánægð með tónlistina, nauðsynlegt fyrir bíllausa kerlingu af Skaganum að fylgjast með nýjustu straumunum í tónlist, ekki kemst hún á tónleika um allt eins og á Reykjavíkurárunum. Úff, henni líður núna alveg eins og forsetaframbjóðanda að tala svona um sig í þriðju persónu ... 

Ég kíkti: Nú eru komnir átta þættir af Reacher II, eða allir, held ég, svo kannski, ef ég næ að klára að lesa yfir bókina á morgun gæti ég þá notað sunnudaginn í þættina. Jú, stráksi fer í helgarfjör hjá elsku Möttu svo ég þarf ekki einu sinni að elda. Auðvitað ætti ég að nota helgina í „brennivín og karlmenn“ en ég drekk ekki brennivín og sjáum til með hitt - ef viðkomandi nennir að glápa á Reacher með mér. Ef Einarsbúð sendi nú fleira heim en matvörur ...  

 

Það komu sérdeilis góðir gestir í gær, ljúfa fjölskyldan frá Sýrlandi, nýlega sameinuð. Færðu mér blóm og mandarínukassa, fengu ekki einu sinni heimabakað í staðinn, bara súkkulaðiköku úr Kallabakaríi, sem var reyndar alveg dúndurgóð og kláraðist næstum (stráksi lá svo í henni í gærkvöldi og kláraði alveg). Inga vinkona kom líka, því fleiri, því betra. Hún er vinkonan sem heimsækir nánast bara lönd þar sem ríkir óbærilegur hiti og óbærilega mikið er af skordýrum. Víetnam, Indland, Mið-Austurlönd ... bara nefna það. Það nánast leið yfir mig í fyrra þegar hún fór bara til Parísar í sumarfríinu!

 

Facebook

„Frosti segir þriðju vaktina vera kjaftæði.“

Komment: Hetjan okkar ... ef hann hefur ekki upplifað það, er það auðvitað ekki til.

Komment: Hann er með screenshot sem sannar þetta, ég allavega trúi honum.

 

Við sem erum með hlaðvarp eða blogg, þurfum auðvitað að grípa til spennandi fyrirsagna og koma okkur jafnvel upp umdeildum skoðunum til að fólk lesi eða hlusti ... kvenhatur virðist virka vel en sjitturinn, ég dýrka konur ... og líka karla. Er líka búin að gefast endanlega upp á því að reyna að verða áhrifavaldur. Bless, draumur um frítt skyr og fríar snyrtivörur. Samt ... kannski þegar ég býst ekki við neinu, kemur tækifærið. Sigling um Karíbahafið yrði vel þegin í þessum skítakulda. Eða bara lopapeysa.   


Bloggfærslur 19. janúar 2024

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 185
  • Sl. sólarhring: 617
  • Sl. viku: 2559
  • Frá upphafi: 1461654

Annað

  • Innlit í dag: 161
  • Innlit sl. viku: 2113
  • Gestir í dag: 159
  • IP-tölur í dag: 159

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Sérdeilis flott terta
  • Jón Gnarr og stráksi
  • Jörgen Klopp

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband