Ó, þá fögru steina ...

ÁramótGleðilegt ár, elsku bloggvinir, nær og fjær. Þá eru rólegheitin skollin á, eftir endalausar ferðir í bæinn til að halda jól, áramót og ýmislegt þaðan af jafnskemmtilegt. Flóttakona frá Úkraínu hefur verið hinn nýi kattahvíslari og -passari Himnaríkis eftir að Hildur dirfðist að flytja úr húsinu, og flóttamaður frá Sýrlandi skutlaði mér í bæinn fyrir hátíðarnar, þau eru bæði góðir vinir mínir og einstaklega yndisleg. Þessi fjölmenning sko.

 

Myndin var tekin um áramótin, þar sést fólkið sem ég djammaði með, stráksi lengst til vinstri. Ég var inni með Hildu að knúsa hundana. Við vorum ánægð með Skaupið, það nægir mér að glotta eða flissa þrisvar og þá er ég ánægð og þakklát fyrir vinnu alls þessa fólks við að reyna að skemmta mér. En ég fann líkamlegan mun á mér eftir þáttinn sem var sýndur á RÚV daginn áður, Allt eðlilegt hér, með Sögu Garðars og Snjólaugu Lúðvíksdóttur. Ég hló svo mikið að ég man varla eftir öðrum eins öskrum, fann endorfínið og alls kyns gleðihormón fylla út í öll skúmaskot líkamans. Þetta er bannað innan tólf ára, svo horfðu á þetta í laumi og gættu þess að vera búin/n að pissa.  

 

Mér tókst að lifa árið 2023 af, það var frekar rólegt ár, tvær utanlandsferðir samt (Liverpool, Glasgow) sem hefur aldrei áður gerst, sendi frá mér eina bók með elskunni henni Möggu Blöndal, Þá breyttist allt. Leiðbeindi á tveimur námskeiðum í íslensku fyrir útlendinga sem er alltaf jafnskemmtilegt. Fór með Hildu og fleirum til Hafnar í Hornafirði, tókst að finna út að við ættum 17 klst. og 53 mín. eftir á næstu bensínstöð (á gönguhraða) en Hilda hefndi sín óvart með því að pína mig í 10 þúsund skrefa gönguferð úr miðborginni í Glasgow þar sem hún sagði sífellt meira undrandi í svona klukkutíma að það væru bara fimm eða tíu mínútur eftir á hótelið, var með stillt á ökuhraða. Svona vinnur karmað, myndi einhver segja. Nema Hilda hló að mínum mistökum í 785 Öræfum en ég kvaldist yfir hennar, svo ég á kannski eitthvað inni.  

 

Ég sagði þessari systur fyrir einhverjum vikum að ég hefði séð girnileg göngubretti auglýst, það á broti þess verðs sem slík tæki fara vanalega á, eitthvað um að fullur gámur hefði verið pantaður til að ná verði niður, hægt að brjóta það saman og rúlla undir rúm og ýmislegt fleira sem mér fannst nú samt hljóma of gott til að vera satt.

 

Jólin, jólinDaginn fyrir gamlárs, á leið í matvörubúð, rúllaði litlasystir upp að lítilli verslun og sagði: „Þarna fæst göngubrettið þitt!“

„Ja, ég er nú ekkert að ...“ reyndi ég að segja. Hún heyrði ekki í mér, svo æst var hún að láta mig kaupa þetta. Ég elti hlýðin og það var ekki fyrr en ég komst að því að annar afgreiðslumaðurinn átti sama afmælisdag og ég að ég gleymdi mér og sleppti heljartakinu af veskinu. Hef nefnilega ekki þorað að róa á dýrlegu róðrarvélinni minni síðan hún lagði mig í rúmið í viku (bakið), eftir mikinn ofróður, nánast lífróður á haustdögum. 

Brettið er lágvært, það fer lítið fyrir því og ég gæti meira að segja skokkað þar á 8 km hraða, ef ég þori. Einn frændi minn sagði að ég væri græjusjúklingur, ég á vissulega 15-20 ára gamalt nuddtæki úr Elkó, 2 ára nuddbyssu (sem heldur vöðvabólgunni niðri) og nudddæmi úr Costco til að setja í stól. Hvernig átti ég að vita að lausnin á öllum mínum bakverkjahryllingi fælist í vináttu við ónefndan viðskiptafræðing sem heimsótti mig nýlega. Það voru ekki snjöll viðskiptaráð sem hefðu gert mig ríka á svipstundu og ég hefði efni á að láta skipta um bak í mér, nei, hún kann alvörusvæðanudd og í einhverju bríaríi spurði ég hvort hún gæti tékkað ögn á iljunum á mér, ég hefði verið verulega slæm vikum saman (þrátt fyrir allar græjurnar), bakið ömurlegt, orkan engin, ef þetta héti að eldast væri ég alls ekki til í slíkt. Hún samþykkti og boraði fingrum sínum á ýmsa ansi hreint viðkvæma punkta (iljarnar loguðu eftir nuddvanrækslu margra ára) og þar sem ég hef ekkert sigg þurfti varla snertingu til að ég orgaði. Fasti verkurinn (til margra vikna) hægra megin í bakinu er horfinn, og ég þarf ekki að taka verkjalyf lengur eða liggja lon og don á hitapoka til að fúnkera. Ég get auðveldlega tekið eldhúsið í gegn eftir kvöldmatinn, þarf ekki að bíða þar til morguninn eftir eins og stundum upp á síðkastið. Ég talaði auðvitað aldrei við lækni, fann bara ástæður fyrir þessu sjálf ... það hlaut að taka sinn tíma að venjast nýju dýnunni, ég hefði setið eitthvað skökk ... beygt mig vitlaust ... Þetta bakvesen hófst nefnilega þegar ég var 14 ára, vön kona hér. 

Nú þarf ég bara að finna mér svæðanuddara á Akranesi og fara til hans reglulega, mikilvægt að hitta á einhvern sem hægt verður að nota öryggisorð hjá, til að þetta verði ekki algjörar pyntingar. Eins og við höfum gert alla tíð í saumaklúbbnum mínum, Gaddar og grilláhöld, með miklum ágætum.

 

Mynd 2: Stráksi og Hilda um jólin ... alltaf sama fjörið. 

 

Vinkona mín með galdrahendurnar kom til mín á síðasta föstudegi fyrir áramót og vildi endilega fara í Einarsbúð. Við vorum vissulega ekki þar á milli 18 og 18.30 á þeim tíma sem einhleypir Skagamenn para sig fyrir helgina við grænmetiskælinn þar sem erótísku ávextirnir eru geymdir. Við vorum einfaldlega á röngum tíma, hún gerði samt einhver innkaup og við drifum okkur í antíkskúrinn og garnbúðina (vinkonan kann að prjóna!). Svo á heimleiðinni spurði hún mig um flottu fatabúðina sem við höfðum aldrei farið saman í. Hún átti við Bjarg og þangað héldum við í sérdeilis góða heimsókn. Ég var næstum búin að kaupa mér gervipels, sjúkk, hvað kom sér vel að vera ... með bjúg. Þetta var fyrir örlagaríka nuddið sem fjarlægði ekki bara verkina heldur líka allt aukavatn. Hún fann sér æðislegar buxur sem hún var svo ánægð með. Þjónustan í Bjargi er svo góð að ég hef aldrei fundið lífslöngunina minnka þar eins og geris oft í búðum. Vinkonan sagði þegar við vorum komnar út: „Það er sniðugra að koma bara í heimsókn á Skagann og fara í þessa búð ef mig vantar eitthvað, þarna eru svo mörg góð merki á einum stað, maður þarf ekki að fara um alla borg og leita.“ Og þessi dýrð er í göngufjarlægð frá mér. 

 

Nú eru Skagamenn svolítið svekktir, nema bæjarstjórnin, hugsa ég. Það kostaði 500 kr. að fara í Guðlaugu en hækkaði óvænt upp í 2.500 kr. nú um áramótin. Eins og tryggir bloggvinir vita, hata ég flest blautt nema drykkjarvatn, kaffi og sturtuna heima hjá mér, og myndi aldrei fara í Guðlaugu eða sund, en get alveg sett mig í spor þeirra sem eru ekki sáttir við fimmföldun á verðinu. Minnir þó að það kosti mjög lítið eða ekkert fyrir þá sem eiga árskort í sund. Sundlaugin er nálægt og fyrir þennan 2.500 kall er þá frítt í sund og það allt, sýnist mér. Þetta hefur verið afskaplega vinsælt hjá heimafólki en nú segja sumir að þetta sé túristaverðlagning, selt í "lón" sem er samt ekki lón ... til að vera eins og hinir. Svo er hótel á leiðinni hingað og þar á að vera lón líka ... Sérstaða er kannski ofmetin.

 

Augun okkarDaginn fyrir gamlárs fórum við niður í miðbæ og "sóttum" ársgamla jólagjöf, við systir fengum gjafabréf á augnmyndatöku frá góðri frænku og drifum loks í þessu. Ég ákvað að gefa stráksa mynd líka, enda ekki svo dýrt. Tekur um tíu mínútur frá því myndin er tekin og þar til útprent af fögru auganu er tilbúin, eitt auga, 4.990 kr. sem er ódýrast. Er á Skólavörustíg 16A, ef ég man rétt, og þarf ekki að panta tíma. Augun í mér (til hægri) voru furðuleg, eins og ég vissi, ekki bara blá, ekki bara græn, ekki bara grá (mamma var brúneygð og tvö systkini mín með móbrún augu) en þegar ég spurði hvort gulu deplarnir táknuðu að ég væri af ætt Ísfólksins, hristi stúlkan höfuðið og sagði deplana vera fæðingarbletti eða freknur! Þvílík vonbrigði. 

Augað í stráksa er geggjað flott! Það sést ekki á myndinni en það eru bláir blettir um allt í því, og svo eru þar eins og heilu fjallgarðarnir. Ansi töff augu, ættuð frá Palestínu.

 

Kaffihúsið Babalú var næsti viðkomustaður okkar. Ótrúlegt en satt, við höfðum ekki komið þangað áður, virkilega gaman, gott kaffi og meðlæti, ofsatöff Starwars-snyrting, frábærir þjónar. Ég aftur þangað. Oft.           


Bloggfærslur 2. janúar 2024

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 180
  • Sl. sólarhring: 616
  • Sl. viku: 2554
  • Frá upphafi: 1461649

Annað

  • Innlit í dag: 156
  • Innlit sl. viku: 2108
  • Gestir í dag: 154
  • IP-tölur í dag: 154

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Sérdeilis flott terta
  • Jón Gnarr og stráksi
  • Jörgen Klopp

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband