Óbeinar kúganir og stórhættulegt himnadót

Keli og hekliðSamfélagsmiðlar eru skemmtilegir tímaþjófar og reglulega furða ég mig á óbeinum tilfinningakúgunum þegar ég skrolla t.d. niður Instagrammið mitt. Sætir kettir eru látnir segja með krúttlegri mannsrödd (sem er spiluð of hratt): „Ef þú skrollar fram hjá mér án þess að setja hjarta sérðu mig aldrei framar, viltu það? Í alvöru?“ Ég fer fram hjá á ljóshraða þótt ég elski ketti.

Pirrandi erlendu heklsíðurnar koma enn reglulega upp hjá mér (á mánaðarfresti, ég slekk á þeim jafnóðum en bara hægt í mánuð í senn). Þá er birt mynd, alltaf sömu myndirnarog textinn svipaður: „Frændi minn (frænka mín) heklaði þetta fallega teppi en konan hans (maðurinn hennar) sagði það vera ljótt svo hann (hún) þorir ekki að hekla framar.“ Myndin er jafnvel af bútasaumsteppi ... og neðst í vælinu er hlekkur á síðu með uppskriftinni (held ég). Fólk í þúsundatali fellur fyrir þessu. „Ó, hversu fallegt teppi, segðu honum (henni) að gefast ekki upp.“ Þetta er bara fyndið, nenni ekki lengur að pirrast yfir þessu, ýti bara jafnóðum á x-ið í færslunni. Lífið of stutt fyrir pirr ...

 

Mynd 1: Þessi gullfallega vera heldur á svokölluðu veðurteppi sem Keli kötturinn hennar heklaði fjórloppað. Nú hafa aðrir kettir heimilisins sýnt teppinu talsverða óvirðingu með því m.a. að hlæja að litavalinu (sem fer nú bara eftir hitastigi hvers dags árið 2016, 366 umferðir) og þeir stelast til að liggja ofan á því og klína þannig kattahárum á það, eins og það sé ekki nógu hlýtt, svo Keli er hreinlega að hugsa um að hætta að hekla, hann er svo sár. Lesið endilega meira um málið á blog.is/gurrihar.  

----

Forsetarnir okkar:

Trúaðir gegn gervitunglumDóri DNA, Halldór Laxness, ætlar í framboð ef það gýs á morgun, á þrettándanum. Sennilega á hann við gos á Reykjanesskaga, Grímsvötn eru líka með stæla og þar gæti gosið, eiginlega löngu kominn tími á þau. Búið að færa kóðann yfir Grímsvötn upp í gulan. Dóri er fyndinn og skemmtilegur.

 

Ástþór Magnússon (Friður 2000) hefur einnig lýst því yfir að hann ætli í forsetaframboð. Kannski tekst Ástþóri ætlunarverk sitt að boða frið. Ekki veitir af.

 

Mynd 2: Kristnir gegn gervitunglum. Myndin tengist hvorki Ástþóri né Dóra DNA en hver veit hvers konar frambjóðendur bætast við með alls konar áhugaverðar skoðanir. Arnar tekur þetta, ef skoðanakönnun ÚS er rétt en þá voru þessir tveir líklega ekki komnir undan feldi, allavega ekki Dóri. Á ekki að kjósa í byrjun júní? Nægur tími til stefnu. 

----

Bóklestur í Himnaríki: 

Talandi um gervitungl sem bjaga bænir ... Var að klára bókina Brúður Krists: Alin upp í sértrúarsöfnuði. Virkilega athyglisverð bók. Á undan henni hlustaði ég á Lee Child-bók um Jack Reacher, risastóra, sterka og klára fyrrum herlögreglumanninn sem ráfar um Bandaríkin, oft á puttanum, og lendir í ýmsum hættulegum ævintýrum. Hún var lesin af manni sem var greinilega óvanur ... setning gat hljómað: Hann sá að þetta var búið spil sautjándi kafli. Allt í einni bunu. Þó voru engin leikræn tilþrif sem var fínt, en lesturinn lagaðist smám saman og var orðinn ágætur í lokin nema ég hafi bara vanist þessum "stíl". Bókin of skemmtileg til að ég tímdi að hætta að hlusta og ganga að bókahillu inni í stofu og taka hana og endurlesa á gamaldags hátt. Ég endur"les" ansi mikið á Storytel - finnst gaman að njóta þannig bóka sem ég las einu sinni og þótti fínar. 

----

Facebook

VíkingagurrÁ síðunni Gamaldags matur (ekkert annað en masókismi heldur mér þar) mátti sjá í gær mynd af steiktu kjöti. Óhrein eldavélin vakti þó meiri athygli og til skiptis skammast fólk yfir óhreinindum eða skammast yfir skömmunum í garð þess sem póstaði.

 

Í dag hafa margir birt víkingamynd af sér á fb, eins og margir gerðu líka í gær, og myndirnar eru ansi keimlíkar. Með því að rýna í þær sést nú samt alveg svipur viðkomandi. Sjá mína hér, ég minni á frægan vélsagarmorðingja, eins og ég geri á ljósmyndinni á Costco-kortinu mínu (alltaf jafnmóðgandi að eftirlitsfólkið í Costco þekki mig af henni) ... óttist samt eigi.


Bloggfærslur 5. janúar 2024

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 137
  • Sl. sólarhring: 625
  • Sl. viku: 2511
  • Frá upphafi: 1461606

Annað

  • Innlit í dag: 121
  • Innlit sl. viku: 2073
  • Gestir í dag: 120
  • IP-tölur í dag: 120

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Sérdeilis flott terta
  • Jón Gnarr og stráksi
  • Jörgen Klopp

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband