Brokkólísalat Beelzebubs og safaríkt fb-slúđur

Fiskréttur međ rúsínumGardínuofbeldi var til umfjöllunar í bloggi gćrdagsins og ég tek allt aftur sem ég sagđi ţar, eđa ađ ţađ vćri sennilega nauđsynlegt ađ draga stundum fyrir glugga til ađ mögulegir rađmorđingjar ćttu ekki of auđvelt međ ađ fremja glćpi sína. Í ljós kom ađ í bókinni sem ég klárađi í dag (viđ húsverkina) var ekki um ađ rćđa karlmann, heldur afbrýđisama konu sem fćkkađi miskunnarlaust meintum keppinautum sínum. Konur hafa aldrei sýnt mér ástreitni, nema ein á Óđali 1985 ţegar sá stađur var venjulegur skemmtistađur. Ég mun ţví halda áfram ađ hafa ţunnar, gegnsćar eđa engar gardínur ... a.m.k. á međan ég bý á efstu hćđ og hef hafiđ sem nćsta nágranna og Nýju blokkina en ţar býr ekki gćgjusamt fólk.

 

Ég klúđrađi matarpöntuninni hjá Eldabuskunni, merkti óvart viđ ađ ég myndi sćkja matinn sem er algjör ómöguleiki fyrir bíllausa, hjálparvana prinsessu á bauninni. Ţetta var leyst snarlega af ljúfri konu sem svarađi í símann í morgun og maturinn kom upp ađ dyrum. Matarsjokk dagsins var ţó ađ á brokkólísalatinu voru rúsínur, á ... ekki í. Sjúkk. Mér tókst mjög laumulega ađ trođa ţeim á disk stráksa, hann borđar allt nema sviđ, muniđ, EN HANN LEIFĐI nú samt salatinu sem sannfćrir mig enn frekar um satanískan uppruna rúsína. Ég fór beinustu leiđ á heimasíđu Eldabuskunnar og í innihaldslýsingarnar, hvort mér vćri sjálfrátt fyrst ég pantađi eitthvađ međ rúsínum ... Ekkert var minnst á rúsínur ţar sem innihald. Ţá flaug ađ mér sú hryllingshugmynd ađ rúsínukvalari minn til áratuga vćri kannski farin ađ vinna hjá vissu matarfyrirtćki, ađ alvöruvinnan vćri bara fyrirsláttur eđa hún rekin ţađan fyrir hrekki. Sú hefur hlegiđ tryllingslega ţegar hún stráđi ţessum beelzebubska (skrattans) hryllingi yfir matinn minn. Bara salatiđ reyndar, ekki yfir ţorskréttinn međ heitpaprikusósunni eđa hasselbakk-kartöflurnar. Maturinn var ágćtur en kjúklingaréttur síđustu viku á enn vinninginn fyrir sturluđ bragđgćđi. Matarmyndin er af diskinum mínum, engar rúsínur.

 

Hef ekki enn fundiđ (ekkert leitađ) pínulitla rúsínupakkann sem hefur gengiđ á milli okkar systra, en eins og ţiđ kannski muniđ fannst mér ég hrođalega snjöll á síđasta ári ţegar ég laumađi honum ofan í veskiđ hennar ... og ţegar ég hreykti mér af ţví nokkru síđar, sagđi hún mjög kuldalega: „Ég tók eftir ţví áđur en ég fór í bćinn og faldi hann heima hjá ţér!“ Ţá búin ađ ţiggja stórkostlegar veitingar og geggjađ gott kaffi hjá mér! Kannski ég drífi mig í ađ finna pakkann og strái svo rúsínum reglulega yfir matinn hennar. Eđa eitthvađ álíka hrćđilegt ţar til hún skilur ţjáningar mínar. 

 

Stráksi á stoppistöđHáaldrađur fóstursonur ásamt nokkuđ eldri fósturmóđur skođuđu í dag litla stúdíóíbúđ sem gćti mögulega orđiđ heimili ţess fyrrnefnda síđar. Okkur leist mjög vel á íbúđina og sjáum marga möguleika til ađ gera hana kósí og flotta. Ţar sem viđ stóđum á Garđabrautinni, á leiđ í skođunarferđina, og biđum eftir ögn seinum vagninum (illfćrđ sums stađar) stoppađi Bassel vinur okkar og bauđ okkur far ţangađ. Eftir ćđislega skođunarferđina héldum viđ á Lighthouse café á Kirkjubraut og snćddum ansi hreint góđan hádegisverđ ţar. Gengum svo ađ stoppistöđinni viđ gamla Landsbankahúsiđ (sem sumir vilja ađ verđi ráđhús, ađrir ekki, enn ađrir menningarhús) og biđum eftir strćtó (sjá mynd). Kom ţá ekki nćsti hirđbílstjóri (bílstjóri sem hirđir okkur upp í), eđa Smári kokkur sem eldađi eitt sinn besta fiskrétt sem ég hef á ćvi minni smakkađ (sem matgćđingur Vikunnar). Hann fór létt međ ađ skutla okkur heim og bjargađi okkur sennilega, eins og sá fyrri, frá ţví ađ ţurfa ađ skjálfa okkur til hita. Svona er nú gott ađ búa á Akranesi.   

 

Helga BragaFréttir af Facebook

 

Skúli Sigurđsson rithöfundur hefur skrifađ undir nýjan útgáfusamning viđ Drápu. Ţriđja bók hans kemur út fyrir nćstu jól.

 

Helga Braga leikkona (sjá mynd) setti á fb-síđu sína ađ hún hefđi hafiđ leiklistarferil sinn í Bíóhöllinni á Akranesi ţar sem hún lék Línu Langsokk í samnefndu leikriti! Hver ćtli svo hafi leikiđ kennara Línu í nákvćmlega ţví leikriti ţarna áriđ 1979? Jú, ykkar einlćg.

Af ţví ađ innanbćjarstrćtó gengur ekki eftir kl. 18 og fer hvort eđ er ekki svona langt í eftirhádegi-ferđunum, slepptum viđ stráksi ţví ađ fara í bíó. En ţessa kvikmynd ćtla ég samt ađ sjá, hvernig sem ég fer ađ ţví.  

 

Fúsi frćndi í Englandi skellti í status um veikindi Karls III sem voru kunngjörđ í dag. Hér er hluti hans, innan gćsalappa, kann ekki viđ ađ birta hann allan:

„Breska ţjóđin er í sjokki, eins og sjá má á fréttamönnum BBC sem eru allir á barmi taugaáfalls.“

Karl hefur sem sagt veriđ konungur í 17 mánuđi og voru nokkrar opinberar heimsóknir og fleiri skylduverk fram undan, en allt er í uppnámi núna.

Ađrir fjölskyldumeđlimir, í ţessari röđ, munu taka ađ sér skyldur hans, samkvćmt hefđinni: 

„1. Kamilla drottning. 2. Vilhjálmur prins. 3. Harry prins. 4. Andrés prins. 5. Beatrice prisessa, eldri dóttir Andrésar. (Innskot GH: Hvađ um Játvarđ prins?)

Búist er viđ ađ Kamilla biđjist undan flestum verkefnum hér eftir sem hingađ til, mćtir í besta falli á ársfundi hjá betri kvenfélögum og ţvílíkum stofnunum. 

Harry prins er í ónáđ og Andrés prins líka. Ţá eru ţađ bara Vilhjálmur og Beatrice sem verđa ađ skipta međ sér skyldumćtingum konungsfjölskyldunnar. 

... mesta athygli vekur skyndileg ábyrgđ Beatrice prinsessu, sem nú hoppar upp úr ađ vera nánast núll og nix innan ţeirrar fjölskyldu í ađ verđa nćstćđsti fulltrúi bresku ţjóđarinnar.“  

Vona ađ Fúsi frćndi fyrirgefi mér stuldinn. Minni á ţá sterku hefđ ađ viđ skrifum ćtíđ nöfn kóngafólks upp á íslensku. Fúsi skrifađi reyndar Andrew en ég gat ekki stillt mig um ađ samrćma ...  


Bloggfćrslur 5. febrúar 2024

Um bloggiđ

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.6.): 14
  • Sl. sólarhring: 27
  • Sl. viku: 168
  • Frá upphafi: 1527654

Annađ

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 141
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband