Hitabylgja í nánd og rúsínuraunir

Í kringum ljósastaurinnGífurleg sjálfstjórn var í gangi ţegar pantađ var í Einarsbúđ áđan. Ekkert sćtara en kolvetnaskert skyr var á innkaupalistanum; bara kotasćla, kaffirjómi, kattasandur og annađ slíkt, eins og k-dagar himnaríkis kveđa á um. Ţađ ţurfti líka ađ panta ksúrmjólk, sykurlaust kappelsín ţví viss systir ćtlar mögulega ađ kíkja um helgina.

 

Ekki svo mjög góđar fréttir frá Veđurstofunni í dag og gćr, eđa ađ ţađ muni snarhlýna á nćstunni. Alveg upp í martrađarkennd tíu stig, jafnvel ţótt enn sé bara apríl. Engu ađ treysta! Ekki einu sinni kulda á ÍS-landi. Svo nú verđa vifturnar teknar fram, my biggest fans. Ókei samt, gott fyrir elsku verpandi fuglana ađ ţađ hlýni. Áđur en stráksi flutti bađ ég hann um ađ dreifa um allt túniđ hér fyrir framan, nánast viđ ţyrlupallinn og ţar í kring, korni sem ćtlađ er smáfuglum og ég keypti í Einarsbúđ, ég elska ekki bara hrafna og máva. Inga vinkona sagđi spámannslega ţegar hún horfđi á ţessi gulu útlitslýti á grasbreiđunni á milli himnaríkis og íţróttavallarins: „Ţeir líta ekki viđ ţessu, vertu viss, ţessir stóru hringir (af fuglamat) á túninu verđa ţér til eilífđar háđungar og fá börnin í unglingavinnunni til ađ urra!“ Hún sagđi ţetta kannski ekki svona, en vinafuglar hennar vilja almennilegar matarleifar, segir hún, meira ađ segja rúsínur! En viti menn, hér hafa sést ýmsir fuglar og nartađ í ţetta síđustu tvćr vikur, ţessir litlu, ţví ţeir vita svo sem ađ rúsínur fá ţeir ekki frá mér ... nema ég finni skrambans pakkann sem systir mín faldi einhvers stađar og ef fuglarnir fá ţćr ekki mun hún finna rúsínurnar heima hjá sér innan nokkurra vikna!

 

Á myndinni (frá 6. apríl) sést í "hringi" utan um ljósastaurinn sem mávurinn situr ofan á, allt of fínn međ sig til ađ borđa svona smáfuglamat. Öll ummerki eru nú horfin! Ţađ gćti ţurft ađ ýta á myndina til ađ sjá eitthvađ.

 

Í Rauđakrosshittingnum í gćr var einmitt talađ um rúsínur. Ýmsir ţar ţóttust illa sviknir, ekki bara af Góueggjum, heldur líka Nóa ţegar hellings rúsínurugl flćddi út úr eggjunum, líka magn af lakkrís og hlaupi, grét ein. Henni finnst súkkulađirúsínur ágćtar ... en ekki í páskaeggjum, lymskulega blönduđum saman viđ rjómakúlur. Á páskadag leiđ mér eins og ég vćri í ógurlega fínu matarbođi ţar sem hafragrautur var í forrétt. En ég er svo sem manneskjan sem lćkađi fb-síđuna Gamaldags íslenskur matur, bara til ađ minna mig á ađ lífiđ er ekki dans á rósum.

- - - - - - - - - - 

 

GrimmFréttir af Facebook:

Fyrir 11 árum skrifađi ég beiskan status:

 

„Smábömmer eftir Grimm-ţátt kvöldsins. Gamla konan sem lést í lok ţáttarins er fćdd sama ár og viđ Madonna.“

 

Svo áttađi ég mig reyndar á ţví, eftir algjöran samúđarskort fb-vinanna, ađ auđvitađ hafi hún ekki veriđ sérlega brött og sćt ... ţarna í lokin sérstaklega ... eftir árás varúlfs! Meira ađ segja ég gćti ekki veriđ mjög falleg eftir ađ einhver hefđi nánast rifiđ mig í tćtlur.

 

Sama dag, sama ár, sama beiskja:

Elín kvaddi okkur međ möndlutertu í gćr. Í morgun kom Áslaug međ rúsínubrauđ í vikulega kaffifundinn okkar. Ţađ hlýtur bara ađ gerast eitthvađ í hnetu- og döđlumálum á morgun til ađ fullkomna ţetta.

 

Og ţarna loksins naut ég samúđar og stuđnings.

Dúa: „Reka fleiri?“ Sigga Ásta: „Ţađ ţarf nú bara ađ dáleiđa ţig.“ Inga: „Ohhhhh, aumingja Gurrí.“

 

Ljósmyndin ţarf ekki endilega ađ vera af gömlu konunni sem ég var ađ tala um, man ekki einu sinni eftir ţví ađ hafa horft á ţessa Grimm-ţćtti. 

 

Stundum, ţegar mađur rifjar upp gamlar fb-minningar, fer mađur ađ trúa á ađ lífiđ sé bara svo geggjađ og sumt fólk ansi gott. Ég kýs ađ trúa ţví ađ Sigga Ásta hafi lagt til dáleiđslu svo ég gćti gleymt ţessu hmdr-ofbeldi.

(hdmr= hnetu, döđlu möndlu, rúsínu)    


Bloggfćrslur 18. apríl 2024

Um bloggiđ

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 30
  • Sl. sólarhring: 63
  • Sl. viku: 659
  • Frá upphafi: 1524974

Annađ

  • Innlit í dag: 24
  • Innlit sl. viku: 560
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 21

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2025
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • Brandon Apple
  • Á lausu
  • Jason minn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband