25.4.2024 | 23:27
Sumargleði, möguleg landráð og lestrarþjáning
Gleðilegt sumar, elsku bloggvinir, nær og fjær, og takk fyrir veturinn.
Það er svo sannarlega komið sumar. Í gær sá ég kappklædda hlaupara fara fram hjá en í dag voru þeir mjög fáklæddir. Lítill munur á hitastigi en dagsetningin gerði gæfumuninn.
Jarðarberjakókostertan sem ég keypti í gær var allt í lagi, gestir þáðu þó ekki aðra sneið, svo ég sit uppi með hana, hún var nefnilega svolítið þurr. Mögulega vildi bakarinn ekki að hún yrði of blaut og sparaði rjómann - eða notaði g-rjóma sem bleytir ekki marens. Frekar mikil synd, kannski ég kaupi rjóma á morgun, bæti á hana og setji svo í frysti til að eiga handa gestum. Eða mér - ef kökusneið kallar á át.
Myndin ... sú efsta sýnir árlegan glaðning, þegar hestamenn ríða yfir Langasandinn. Hin sjávarmyndin var tekin í kvöld og sú þriðja af ömmustráknum mínum, 7 mánaða, sem lærir senn að segja amma.
Ekki var möguleiki að sofa lengur en til tíu þótt ég hafi reynt. Það var einhver myndarskapur að malla í mér og ég sá hættumerkin alls ekki fyrr en allt of seint. Áður en ég vissi af var ég búin að skipta á rúminu, skipta um kattasand, setja í þvottavél, setja restina úr vaskinum í uppþvottavél og setja hana í gang, fara út með kattasandsruslapokana og ryksuga himnaríki - rankaði svo við mér þegar farið var að nálgast hádegi og stoppaði þetta rugl. Eru þetta ekki landráð, svona á þessum degi? Smávegis möguleiki að bókin sem ég er að hlusta á sé svona spennandi, hún heitir Ég ferðast ein og er eftir Samuel Björk. Hún er það vel og nógu hratt lesin að ég hef hana á venjulegum hraða en í einhverjum húsverkjalátum ýtti ég óvart á takkann sem eykur hraðann og það var bráðfyndið að heyra lesið á mesta hraða, alveg óskiljanlegt í raun.
Ég nefnilega lét símann elta mig, var ekki með vasa svo ég hélt á símanum á meðan ég ryksugaði - og á milli herbergja. Skrefin? Algjör vonbrigði en ég sá við þessum fjandans skrefamæli, hahahaha. Göngubrettið ódýra en góða, er komið inn í fyrrum herbergi stráksa og þegar farið er á það horfir maður út á sjó. Og sjórinn er svívirðilega fagur núna, flottar öldur en ekkert brim samt. Svo ég stökk upp á brettið, gætti þess vandlega að hafa símann í vasanum á peysunni svo skrefin myndu telja ... og hviss, bang, ég fór nærri 200 skrefum yfir meðaltal (þarf svo sem ekki mikið til). Náði meira að segja örsnöggu snappi án þess að detta af brettinu. Held að þetta bretti verði notað enn meira en áður, mig langar að setja met - jafnvel toppa metið í Glasgow, tíu þúsund skrefa "skreppitúrinn" úr miðbæ að hóteli og það var óvart farinn stór krókur, stórt og vítt U til að viðra okkur enn lengur, ég fer ekki ofan af því, sum öpp eru leiðindatól.
Mynd 2: Þessi hálkumynd er það eina sem fær mig til að fagna sumarkomu, og hitanum sem oft fylgir. Vifturnar eru klárar.
Oft læt ég framburð á nöfnum pirra mig þegar ég hlusta á bækur og í morgun var það Händel, einhver var að hlusta á tónlist eftir hann. Lesarinn sagði HAndel í stað HEndel. Ég hef t.d. aldrei komið til Svíþjóðar og kann ekki stakt orð í sænsku en engdist samt í gegnum heila bók yfir framburði á Göran ... sem var bara borið fram eins og það er skrifað, í staðinn fyrir Jorann. (Sjá mynd af Sven-Göran Eriksson, allir segja Sven-Joran). Áður en ég skrifaði þetta með Göran, fór ég á YouTube og lét sænska konu segja Jorann aftur og aftur. (How to pronounce Göran (Swedish)) Hafði þó pottþétt heyrt það í sænskum lögguþáttum eða fótboltafréttum í sjónvarpinu.
En samt ... það getur verið mjög, mjög tilgerðarlegt að heyra ensk nöfn í íslenskum bókum með sterkum enskum eða amerískum framburði. Bjarkarframburðurinn er kannski of harður, en þarna mitt á milli er fínt. Svo leist mér ekki á blikuna með nýja bók sem ég ætlaði að fara að hlusta á en hætti við ... heill herskari af leikurunum les hana og eflaust lúðrablástur og söngur líka. Ég hlusta á storytel til að láta lesa fyrir mig. Það er meira að segja á mörkunum að ég nenni að hlusta á bækurnar um Erlend (eftir Arnald) því það eru nokkuð mikil leikræn tilþrif þar (sumir halda að það eigi að vera, að hlustendur elski það, svo er nú ekki hjá flestum).
Þau sem sofna með Storytel í eyrunum (ég stilli iðulega á korter eða hálftíma) hrökkva upp við lætin í Erlendi þegar hann hundskammar Sigurð Óla, og sofna svo aftur eftir langa mæðu. Er að skrifa þetta fyrir vin.
(hrað)Fréttir af Facebook,:
- Gleðilegt sumar - mest áberandi
- Óska eftir túbusjónvarpi.
- Svona leit ég út þegar ég fermdist 1974, mynd
- Þrir hundar lausir hjá Bíóhöllinni (voru sóttir)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggfærslur 25. apríl 2024
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 35
- Sl. sólarhring: 64
- Sl. viku: 731
- Frá upphafi: 1517311
Annað
- Innlit í dag: 27
- Innlit sl. viku: 590
- Gestir í dag: 22
- IP-tölur í dag: 21
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni