Fráflćđivandi, kveđjuveislur og stuđvís rafvirki

Rauđi krossinn matarklúbburMatarklúbburinn var dásemd ađ vanda eftir sumarfrí og skrítiđ til ţess ađ hugsa ađ ţegar Inga vinkona eldar kjúklingasúpu eđa annađ gott í nćsta mánuđi, verđi ég víđsfjarri góđu gamni (í 46 km akstursfjarlćgđ (45 mín, međ bíl) eđa 23 km í beinni loftlínu (2 mín. međ flugvél)). Kannski sjálf međ eitthvađ Eldum rétt-gómsćti í 104. Ţađ var greinilega hárrétt hugsađ hjá mér ađ panta ekki Eldum rétt ţessa vikuna, fer nćst út ađ borđa í hádeginu á morgun (afmćlisgjöf), svo aftur međ stráksa út ađ borđa á föstudagskvöld! Ég hef frest til miđnćttis ađ panta fyrir nćstu viku - líklega er snjallara ađ klára úr frystinum. Alveg spurning um rabarbaragraut daglega í nokkra daga? Hef smakkađ mun verri mat en ţađ. Slurp! Alla vega verđur eitt lasagna eldađ (500 g af nautahakki í frystinum) sem dugir í nokkrar máltíđir og mögulega fer frosna restin beinustu leiđ í Frískápinn.

 

Sýrlenska vinkonan djöflađi mér ţvílíkt áfram í dag ţar til ég bađst vćgđar! Hún pakkađi niđur öllum myndum í bókakósíhorninu, viđ tćmdum kommóđuna hans stráksa (hann tók bara ţađ sem hann vildi međ) og flokkuđum í henda og gefa ... ekkert eiga. Svo verđur hún auglýst gefins fljótlega, ásamt fínustu bókahillum ... Fráflćđivandi himnaríkis er mitt helsta áhyggjuefni en ég losna allavega viđ kassana á ganginum núna á laugardaginn og kannski kommóđuna og hillurnar, ef mér tekst ađ setja auglýsingu - hringi kannski í Búkollu og tékka. Fínar hillur og ágćt kommóđa.

 

HirđrafvirkinnHirđrafvirki himnaríkis mćtti stuđvíslega og sótti tvo kassa af sjúklega girnilegum glćpasögum, heilu bókaflokkana sem hann gladdist mikiđ yfir, og í leiđinni tók hann niđur ljósakrónur heimilisins og gerđi viđ innstungu í stofunni sem frekar ţung mynd hafđi dottiđ ofan á og rústađ, myndin hafđi veriđ innrömmuđ 1985 og bandiđ sem hékk á naglanum gaf sig međ ţessum hrođalegu afleiđingum ... ekki nema 39 ára ending sem ég furđa mig á. Ekki nema von ađ heimurinn sé ađ fara fjandans til ...

 

 

Loftljósin fögru fara ekki međ í borgina ... held ég sé búin međ langömmustílinn, ekki ţó alveg hćtt  međ antík. Fínt ađ blanda saman gömlu og nýrra en mér sýndist ađ vćru ljós alls stađar á Klepps sem fylgja vćntanlega ... annars kaupi ég bara. Nú eru rússneskar ljósaperur í öllum herbergjum himnaríkis og ţađ er rosalega bjart hérna. Ef nýir eigendur mála (sem er mjög líklegt) ćtti aldeilis ađ vera góđ vinnubirta. Nýja íbúđin mín verđur einmitt máluđ hviss bang, áđur en ég flyt inn. Fljótlegt ađ mála hana tóma, vildi elsku málarinn minn meina.

 

 

EftirlaunaaldurinnŢađ er hellingsspenningur í gangi og vonandi elta verkefnin mig áfram. Ég er allt of ung til ađ setjast í helgan stein, enda sprćk međ eindćmum. 

Ég er enn mjög spennt fyrir ađ vinna hjá Bankasýslu ríkisins og er meira en til í ađ hjálpa viđ ađ selja banka, helst sem flesta, ég yrđi komin út á Arnarnes í risastórt einbýlishús strax á nćsta ári ef ţađ vćri ţađ sem ég vildi. 

Svo er líka inn í myndinni ađ elta ćskudrauma mína ...  verđa söngkona, leikkona, dansmćr eđa ljósmóđir. En reyndar hef ég sungiđ í kórum (Langholts, Mótettu og Fílharmóníu) svo ég get hakađ viđ ţađ X, lék bláu öxlina í Heilsubćlinu í Gervahverfi X, var viđstödd fćđingu systursonar míns, X - og ef vetur í Dansskóla Sigvalda telst međ hef ég í raun uppfyllt vonir mínar og ţrár í gegnum tíđina.

Hvađ er eiginlega eftir sem gaman vćri ađ sýsla viđ?

 

--- --- --- --- --- --- --- --- --- ---

Facebook rokkar

Hver er uppáhaldsskáldsagnapersónan ţín? (Bókagull á fb)

Mia_litla

 

- Karítas.

- Góđi dátinn Svejk. 

- Jón á Nautaflötum og Ţóra í Hvammi.

- Hörđur Grímsson.

- Lína Langsokkur.

- Steinríkur.

- Kalmann.

- Anna í Grćnuhlíđ.

- Greifinn af Monte Cristo.

- Snúđur og Snćlda.

- Egill Skallagrímsson.

- Janína úr Drag plóg ţinn yfir bein hinna dauđu.

- Emil Svenson í Kattholti.

- Bilbo Baggins.

- Ólafur Fíólín.

- Maddit.

- Kristín Lafransdóttir.

- Woland í Meistaranum og Margarítu, og auđvitađ kötturinn í sama verki.

- Ronja.

- Edda í Vesturbćnum (á Birkimel).

- Salka Valka. 

- Ótugtin hún Ketilríđur.

- Pollýanna.

- Korka Ţórólfsdóttir.

- Mía í Múmínálfunum.

- Kíkí í Ćvintýrabókunum.

- Nancy Drew.

- Hercule Poirot.

- Gengiđ í Tinnabókunum

og fleiri og fleiri ...

 

          


Bloggfćrslur 18. september 2024

Um bloggiđ

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 49
  • Sl. sólarhring: 51
  • Sl. viku: 744
  • Frá upphafi: 1524942

Annađ

  • Innlit í dag: 41
  • Innlit sl. viku: 636
  • Gestir í dag: 38
  • IP-tölur í dag: 36

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2025
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • Brandon Apple
  • Á lausu
  • Jason minn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband