Vér intróvertar, konan sem skaut JR og bara 12 dagar ...

Styrkja ónæmisGetur verið að búferlaflutningar hafi áhrif á ónæmiskerfið? Heilsan nánast hrundi daginn sem ég fann íbúðina mína á Kleppsvegi. Þetta er auðvitað líka væl í mér og aumingjaskapur, svo það komi nú fram. En dagurinn hefur farið í hvíld, svefn og örlitla sjálfsvorkunn. Eins og ég ætlaði að vera dugleg! Gat rétt smakkað nokkra bita af sýrlenska matnum sem ég fékk sendan til mín, restin fór í ísskápinn og verður að bíða morgundagsins. 

 

Ég hef verið að hlusta með hléum á Morse lögreglufulltrúa síðustu daga (bók á Storytel) og haft nokkuð gaman af en vá, hvað hlutirnir hafa breyst. Morse lögreglufulltrúi leysir ekki bara flókin glæpamál, heldur reynir hann að höfða til siðferðiskenndar fólks, hann skammaði unga skrifstofustúlku og kallaði hana lauslætisdrós. Hún hélt náttúrlega við giftan mann sem Morse kallaði auðvitað flagara í yfirheyrslu. Siðferðiskennd fólks hefur hrakað síðan þetta var og ég hef á tilfinningunni að Morse  myndi hreinlega ekki hafa tíma til að leysa glæpamál í dag, svo mjög þyrfti hann að siða fólk til. Gátan var fín og lærdómurinn sá að maður skyldi aldrei svindla í neinu sem tengist prófum! Svo fór ég að hlusta á bók sem heitir Mýrarstúlkan (eftir Elly Griffiths) og sú er virkilega fín. Aðalsöguhetjan er fornleifafræðingur um fertugt sem býr í gömlu steinkoti við ströndina í Norfolk á Englandi, ásamt tveimur köttum. Fornleifafræði er æsispennandi, kettir eru æði svo ég gat strax samsamað mig við söguhetjuna. Þarna er nokkuð geðvondur en myndarlegur rannsóknarlögreglumaður (slef) sem fær hana til að aðstoða sig, og í nágrenninu býr fuglaáhugamaður sem náði að bjarga lífi hennar þegar hún villtist myrkri í saltmýri í grennd. Mér finnst skrambi gott að eiga sjö klukkutíma eftir af henni og hún virðist vera fyrsta bókin í nýjum bókaflokki, það stendur allavega Part 1 in Ruth Galoway ... Húrra!

Ætla að reyna að sofa þessi nýjustu veikindi ... eða frekar viðbótarslappheit á brott, úða fyrst í mig vítamínum - gott að margir kassar eru enn opnir, eins og sá með vítamínunum. Á morgun fer ég nú samt að loka kössum, bara 12 dagar í flutninga - EF VEÐUR LEYFIR, tólf heilir dagar og svo við vakn á þeim þrettánda mætir flutningabíllinn. Ég hef kíkt á spár langt fram í tímann og sé ekkert nema almennilegt flutningaveður, alla vega til 1. okt. svo ég hef eiginlega ákveðið að það verði þannig minnst út árið. Ég þekki kannski ekki veðurfræðinga en ég hef það oft horft á veðurfréttir að ég leyfi mér að spá þessu. Kannski verður október eini snjólausi mánuður ársins 2024. Það snjóaði víst í fjöll í júlímánuði, sem ég hélt að væri eini snjólausi sumarmánuðurinn!

 

Stofan í suður og svo norðurSvo hringdi hirðmálarinn í mig í dag og bíður spenntur eftir að geta hafist handa (1. okt.). Segir gott að Slippfélagið sé í grennd, hundfúlt að fara langar leiðir ef eitthvað smotterí vantar. Ég er hvíta týpan, langar að hafa sem flesta veggina hvíta, í alvöru, tek birtu alltaf fram yfir "kósíheit" og rökkur, ég er manneskjan sem dreg öskrandi gardínurnar frá ef ég kem inn á dimma staði. Enda er ég ekki lengur velkomin á marga bari og matsölustaði landsins yfir sumartímann ... OG fyrrum eiginmenn mínir hafa sumir, alls ekki allir, kveinað yfir skorti á rómantík hjá mér - eins og birta eða skortur á birtu geri útslagið! Veit fólk ekki að það er t.d. eldhætta af kertaljósum? Svo maður leyfi sér ögn að gagnrýna rómansklisjurnar.

 

 

Málarinn minn hefur nokkra daga í verkið, hann er mjög snöggur OG vandvirkur. Svo ætlar hann að aðstoða mig við að loka svölunum ... ekki á venjulega mátann, heldur með ósýnilegu, kattheldu neti, svo það komast áfram flugur þangað, jei. Ég er ekki svalatýpan svo Krummi og Mosi fá að eiga svalirnar (á efri myndinni sést í þær). Myndi vilja geta sest hjá þeim í góðu veðri, jafnvel hengt þvott á þurrkgrind líka ...  

 

Stofan á nýja heimilinu er alveg ágætlega stór, virkar minni á myndinni vegna sófans stóra sem er þar (og fylgir ekki með) en ég verð bara með rauða antíksófann þarna einhvers staðar, hillusamstæðu og annað slíkt, og svo langar mig að fá mér góðan sófa (ekki tungu- eða horn-) undir gluggann (sjá fasteignamynd úr íbúðinni). Mikið væri gaman að geta fundið t.d. notaðan Chesterfield-sófa, eiginlega í hvaða lit sem er, bara í sæmilegu standi, það er gamall draumur en með sífellt "lengri" lífsreynslu hef ég komist að því að draumar rætast ekki alltaf og það er bara allt í lagi. Báðar fasteignasölurnar gáfu mér afsláttarkort sem virka á nokkrum stöðum, m.a. í Dorma, en þar eru frekar sætir sófar, held ég. Þarf að kaupa ísskáp áður en ég flyt inn, svo ég vona að afsláttur bjóðist líka í þannig búðum.

 

IntróvertarÉg gerðist nýlega félagi í hópi á feisbúkk sem heldur utan um svokallaða intróverta ... það sem ég hef séð í hópnum líst mér ekkert voðalega vel á, þetta er meira fólk sem lokar sig af, líður illa innan um aðra og hefur jafnvel lent í áföllum sem fær það til að loka sig enn ákafar af. Ég er einhvers konar intróvert, jafnvel algjör, þótt ég elski fólk, og fleygi mér sennilega út úr þessum hópi sem ég hélt að yrði á léttari nótum, ég er manneskjan sem fann engan mun á lífi mínu í covid þegar samkomubann skall á. Ekki nokkurn einasta mun og ég er ekki að ýkja. Ég hélt að fólk væri að grínast þegar það nánast grét á feisbúkk yfir því að geta ekki hitt vini og vandamenn Á HVERJUM DEGI ... en ég veit auðvitað að sumir voru mjög einmana og þessi innilokun hafði slæm áhrif á þá. Það var á þessum tíma sem ég lærði orðin intróvert og extróvert og áttaði mig á því hvorum megin ég stend. Myndin af kattamanninum er nú samt ekki lýsandi fyrir mig, ég fæ aldrei óvænta gesti - ef einhver hringir óvænt bjöllunni, er það einhver íbúi hússins sem hefur gleymt útidyralyklinum og veit ... að ... ég ... er ... eiginlega ... alltaf ... heima ...    

 

Á Facebook

Vissuð þið að Kanaríeyjar hafa í sjálfu sér ekkert með kanarífugla að gera, engir kanarífuglar þar. Sama með Jómfrúareyjar, engir kanarífuglar þar heldur.

 

Mary Crosby, dóttir Bing Crosby og Kathryn Grant, lék Kristinu Shepard í Dallas, konuna sem skaut J.R. Ewing eins og frægt er orðið. Það voru víst um 90 milljón manns sem settust niður við sjónvarpið þann 21. nóvember 1980 til að komast að því hver það var sem skaut ...  


Bloggfærslur 22. september 2024

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.9.): 27
  • Sl. sólarhring: 311
  • Sl. viku: 1892
  • Frá upphafi: 1494166

Annað

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 1550
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Intróvertar
  • Stofan í suður og svo norður
  • Styrkja ónæmis

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband