21.6.2025 | 22:47
Móðgaður mávur ... óvænt ólétta ...
Farin að vinna eðlilega, eða kenna bara einum bekk og að kvöldi til, kenndi líka á dagtíma þar til í gær, svo nú myndast möguleikar á því að gera meira, eins og að blogga. Stórmóðgaður mávur kemur við sögu í bloggi dagsins, og stórmóðgandi gemsi, svo fátt eitt sé nefnt.
Fyrir örfáum nóttum fór ég á fæðingardeildina komin 9 mánuði á leið, með hríðir og beið spennt eftir að eignast barnið sem Karl, gamall skólafélagi úr landsprófi og fæðingalæknir í raunheimum, ætlaði að taka á móti. Allt var eðlilegt við að kona á ömmualdri væri að fara að fæða barn. Ég vaknaði áður en nokkuð varð af þessu, takk, næturbirta. Held að svona draumur viti á gott, að hugmynd sé við það að fæðast ... Kíkti áðan á draumur.is og undir Ófrísk stendur m.a. að það sé góðs viti að vera ólétt í draumi, það tákni upphaf að einhverju nýju og spennandi í lífinu, jákvæðar breytingar í nánd.
Sjáum til, sjáum til. Ég hef alla vega von um að ég geti bætt úr vissu karlmannsleysi, sjá mynd af áhugaverðum fb-hópi fyrir aldraða ...
Ég komst í hann krappan í Skeifunni á miðvikudaginn. Hoppaði að vanda út úr fimmunni við Glæsibæ og gekk sem leið lá á vinnustaðinn. Hálfnuð yfir Skeifuna sá ég mávinn minn sem situr iðulega uppi á þaki á gönguleið minni og gargar á mig. Ég tók Instagram-mynd af honum gargandi á þakinu og þau hljómuðu frá símanum mínum áður en mér tókst að ýta á "your stories". Einhverjum sekúndum eftir að ég ýtti, þá farin að nálgast Bónus, heyrði ég vængjaþyt mikinn og áttaði mig á því að mávurinn hafði snöggreiðst við mávahljóðin frá mér, steypt sér niður að mér ... og haldið ykkur, hafði hægðir á nýþvegið hár mitt. Sem betur fer bjargaði röskleg ganga mín mér frá því að fá allt ullabjakkið yfir mig, fékk bara smávegis sem ég gat þvegið úr hárinu við komu í vinnuna. Ég var sjokkeruð, alltaf verið góði gæinn með matinn í augum mávanna og því með algjörlega óákúkað hár fram að þessu, hafði meira að segja einsett mér nokkrum sekúndum áður að stökkva inn í Bónus og kaupa loksins samloku handa sínöldrandi fuglinum. Hann missti af samlokunni á miðvikudaginn vegna ótta míns við frekari árásir en ég fyrirgaf honum auðvitað. Hann hafði eflaust verið að æpa ókvæðisorðum að mér fyrir að vera ekki með mat og heyrði mig svo svara í sömu mynt, og brjálaðist yfir því.
Ég átti fínasta brauð í frysti, eldbakað súrdeigsbrauð, eitthvað voða fínt úr Hagkaup ... en ef ég ætti að geta gengið í friði þarna í gegn yrði ég að færa honum eitthvað almennilegt. Til öryggis, svo hann þekkti mig ekki aftur (mávar þekkja andlit), hafði ég farið í lýtaaðgerð hjá Snyrtistofu Ágústu (lét lita augnhár og augabrúnir daginn eftir atvikið) og mætti svo í Skeifuna í gær, föstudag, með friðþægingarbrauðið.
Ég sá hann úr nokkurri fjarlægð og hann sá mig, en áður en eitthvað skítkast fór í gang, byrjaði ég að dingla pokanum með nýþiðnuðu og dúnmjúku brauðinu, reif það niður hjá stórum ruslagámi við bakhlið einhvers verkstæðis. Engir bílar í grennd og fátt fótgangandi fólk sem gæti truflað þessa athöfn. Þegar ég var búin að dreifa brauðinu við gáminn og lögð af stað aftur, flaug mávur óttans á móti mér en hafði greinilega fyrirgefið mér af heilum hug því hann flaug beint að brauðinu. Mig grunar að við séum orðnir vinir ... svo framarlega sem ég færi honum reglulega (alltaf) eitthvað gott í gogginn. Verst að dagkennslan er búin en vonandi er hann þarna líka um kl. 16.30 á daginn.
Í dag var dagur húsverkja og allt orðið glimrandi glansandi og fínt. Tók meira að segja til í körfunni sem geymir dagblöð en þar kenndi þó ýmissa annarra grasa. Ég fann þar tímarit, þrjá innkaupa-taupoka, sérlega flotta, þ.á m. einn með mynd af elsku Skálmöld. Annar var keyptur í Liverpool með mynd af Bítlunum og sá þriðji ótrúlega flottur, unninn upp úr flottu handverki, hann var keyptur á markaði á Akranesi.
Eftir að hafa flokkað, tekið plast utan af sumum blöðum og sett í plastpoka og tekið ýmsa bæklinga síðan fyrir jól í bréfpoka, hugsaði ég mér gott til glóðarinnar, hreyfingarlega séð, að ganga niður allar hæðirnar með pappa- og plastdæmið og setja í tunnurnar, og síðan ganga úr kjallaranum upp sjö hæðir til að vaxa í áliti hjá gemsanum mínum sem mælir og skrásetur hverja mína hreyfingu. Þrátt fyrir tiltekt og ýmis læti um helgar næ ég aldrei virkudaga-skrefafjöldanum. Í gær (tvöfaldur kennsludagur) voru skrefin 5.580 þrátt fyrir bílfar heim, en tölt út á strætóstoppistöð, síðan frá stoppistöð í vinnuna, og kennsla tvisvar í tvo klukkutíma með tilheyrandi hoppi og skoppi gefur þetta mörg skref.
Ég kíkti í símann klukkutíma eftir stigahetjudáðina og bjóst svo sannarlega við að sjá þar eitthvað ögn meira en ÞRJÁR HÆÐIR, skrefin núna, þegar þetta er skrifað, komin upp í tæp 1200 þrátt fyrir að gemsinn hafi legið á ýmsum borðum í dag og úr honum hljómað spennusaga sem er svo gott að hlusta á við húsverkin - en telur ekki skrefin á meðan. En síminn minn gerir mér þetta reglulega. Kannski má ég ekki blása mæðinni í fimm sekúndur á fjórðu hæð áður en ég held áfram, þarf sennilega að taka þetta í einni lotu, helst hlaupandi.
Ég er orðin alvöruáhrifavaldur. Ég henti konu út af Facebook hjá mér og létti einhver ósköp við það, sjá síðasta blogg, og það var eins og við manninn mælt, sjálf Ingibjörg Sólrún fleygði sömu manneskju út hjá sér um það bil viku seinna! Nú má aldeilis fara að senda mér skyr og snyrtivörur!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 21. júní 2025
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 39
- Sl. sólarhring: 95
- Sl. viku: 220
- Frá upphafi: 1528033
Annað
- Innlit í dag: 33
- Innlit sl. viku: 171
- Gestir í dag: 33
- IP-tölur í dag: 33
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni