Menningin í borginni, vont kaffi, eggjaatvik ...

Nína og AnnaFlutningurinn í bæinn var ekki bara tregafullur (sakn á Skagann) heldur hefur hann haft góð áhrif á samkvæmislífið. Eins og bloggvinir vita var ég sennilega eina fullorðna manneskjan á Akranesi sem átti ekki bíl, strætó innanbæjar gekk bara virka daga til klukkan sex og rosalega langt labb t.d. í Bíóhöllina - þar sem tónleikar, bíósýningar og margt skemmtilegt fór fram. Það hefði verið mun auðveldara (minna labb) fyrir mig að taka leið 57 til Reykjavíkur og fara í hina Bíóhöllina, sunnan rörs, til að sjá mynd. Reyndar voru bæði Tónberg og bókasafnið í göngufjarlægð frá himnaríki og þar var ýmislegt í boði. Ég var líka með stráksa hjá mér og valdi þá viðburði þar sem hann gat komið með mér.

 

Það var afskaplega gaman að fara á listsýningu í dag með tveimur vinkonum mínum, systrum, og síðan á kaffihús því við búum allar hér á höfuðborgarsvæðinu: 104, 108 og 225, og önnur þeirra greip mig með í leiðinni. Gleymi seint þegar við sonurinn fórum á Engla og djöfla (Tom Hanks) í Háskólabíói í Rvík og það tók fáránlega marga klukkutíma, strætó milli 300 Akraness og 170 Mosó gekk frekar stopult þarna í denn. Fórum frá Akranesi um hádegi, þurftum að koma okkur frá Mosó yfir í Vesturbæ Reykjavíkur og svo heim aftur. Rétt misstum af strætó þarna seinnipartinn og þurftum að bíða í nokkra klukkutíma og vorum ekki komin heim fyrr en um kvöldið. Myndin var síðan ekkert meistaraverk, minnti mig helst á tölvuleik, Tom Hanks fór eftir vísbendingum en tapaði hverju borðinu af öðru (og prestur dó í hvert sinn, ef ég man rétt) þar til Tom náði að vinna eitt borð í lokin og sigra leikinn. 

 

Eggjahneyksli í KrónunniVið fórum í Krónuna, Borgartúni, á heimleiðinni. Þekki þessa búð ekki neitt og ákvað á vissum punkti þegar ég var komin vel inn að beygja til hægri - grunaði að eggin væru geymd í kæli sem grillti í. Uppi í "stiga" í hægra horninu stóð starfsmaður sem varð eiginlega kjaftstopp þegar ég strunsaði að honum og spurði kurteislega: „Geturðu sagt mér hvar eggin eru, eða bent mér í rétta átt?“ Hann svaraði eftir vandræðalega þögn: „Þau eru nú hér, nákvæmlega hér,“ og benti niður fyrir sig. Þar í kælinum voru verulega litríkir og áberandi eggjabakkar. Sjá mynd sem ég laumaðist til að taka eftir atvikið.

 

Anna vinkona varð vitni að þessum niðurlægjandi hallærislegheitum ... en indæli starfsmaðurinn steig bara niður rétt á meðan ég nældi mér í bakka. Ég er reyndar svolítið sjónlaus í búðum og kaupi oft lítið sem er auðvitað hið besta mál, nema þegar eitthvað vantar heima. En þegar ég fer t.d. með Hildu systur í Costco, hlekkja ég mig við hana því hún finnur alltaf allt, eins og sniðugar jólagjafir og slíkt. Ég enda annars með eina vöru í Costco-körfunni, sítrónuköku, af því að ég veit nákvæmlega hvar hún er staðsett! Það er frekar sorglegt að lenda í langri biðröð til að kaupa eina sítrónuköku.

 

CatalínusautjándiFleira menningarlegt hefur gerst að undanförnu. Varð svo fræg að fara á Catalínu í Hamraborg í fyrsta sinn. Ekki til að hella í mig áfengi eða fara í spilakassa í kjallaranum (sem ég frétti nýlega af), heldur var þarna ansi hreint þjóðlegt brauðtertuhlaðborð á 17. júní. Við systur, ásamt dóttur hennar og tengdasyni og tengdamömmu dótturinnar, héngum nánast á hurðarhúninum í grenjandi rigningu kl. 13 þegar opnað var, og vorum sannarlega ekki ein um að fá þessa snilldarlegu hugmynd að mæta. Kostaði ekki mikið, innan við 3.000 kall á mann, sem mikil ánægja var með, heyrðist mér. Það var orðið troðfullt korteri seinna, bæði hjá barnum og í salnum hjá hlaðborðinu.

Guðrún vinkona sá Instagram-myndband mitt frá Catalínu, og lét mig vita að hún hefði verið þarna líka og á sama tíma en í hinum salnum þannig að við sáumst ekki. Einstaklega vel heppnað hjá Catalínu. Ég lét fólkið við borðið um að smakka kaffið því ef það félli í öngvit og hryndi í gólfið ætlaði ég ekki að smakka það - en tengdamóðir systurdóttur minnar þorði að segja það sem allir hugsuðu: „Vont kaffi, frábært bakkelsi!“ Það er svo sem ekki hægt að ætlast til þess að bar bjóði upp á svakagott kaffi þegar flestir kúnnarnir vilja bara bjór eða vín. Reyndar Kaffibarinn ... þegar við vinkonurnar hittumst alltaf eftir vinnu á föstudögum í lok tíunda áratugarins, fékk ég mér iðulega ljómandi gott kaffi þar (frá Te og kaffi). Alvörukaffivél og starfsfólk sem kunni á hana . Kaffibarinn stóð undir nafni ... þótt hann væri annars vinsæll djammstaður. 

 

Elsku HerkúlesElsku Herkúles, fallegi frændhundur minn, dó fyrir skömmu, aðeins fimm ára gamall. Hafði verið veikur en það voru góðar vonir um bata. Það var mikið áfall þegar hann dó óvænt, ljúfi, blíði og góði Herkúles.

Golíat, hálfbróðir hans og besti vinur, var ansi vængbrotinn á eftir og er enn. Dýrin syrgja svo sannarlega. Mínir kettir eru eiginlega núna fyrst farnir að líta glaðan dag eftir að Keli dó í ágúst í fyrra.

 

Myndin var tekin í himnaríki eitt árið, og sennilega fljótlega eftir að Krummi uppgötvaði fyrir alvöru þessi "skaðræðiskvikindi" sem voguðu sér að gelta annað slagið og virtist einsetja sér að bjarga okkur hinum frá þeim með því að slá þá með loppunni. Það tókst nú bara einu sinni. Þeir Golíat héldu sig uppi í sófa eftir það og við mannfólkið í grennd vorum vel á verði svo Krummi kæmist ekki að þeim. Bæði Mosi og Keli tóku hundunum þó fagnandi, leiðindarasismi í Krumma, eða bara ótti við það sem hann þekkir ekki. Þegar Golíat kom í heimsókn hingað fyrir skömmu sleikti hann Mosa í framan, kannski bara svona óstjórnlega feginn því að hann var ekki Krummi ... Mjög krúttlegt sem varð til þess að nú verð ég alltaf að vera tilbúin með gemsann til að ná að fanga svona falleg augnablik.       


Bloggfærslur 22. júní 2025

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 8
  • Sl. sólarhring: 289
  • Sl. viku: 469
  • Frá upphafi: 1528300

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 378
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Elsku Herkúles
  • Catalínusautjándi
  • Eggjahneyksli í Krónunni

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband