6.7.2025 | 02:16
Óvænt ferð á Skagann, lófalestur og örlagakvittun
Helgarplanið var niðurneglt, seta við tölvuna og lesa yfir texta sem lá þó ekki lífið á að klára. Þá kom vinkona með góða hugmynd; að skreppa upp á Skaga eftir hádegi í dag - og það gerðum við. Þetta er í fyrsta sinn sem ég kem til elsku Akraness síðan ég flutti þaðan í október á síðasta ári. Hratt-líður-stund og ýmsar annir hafa valdið því. Stráksi hefur verið duglegur að koma í heimsókn til mín en varð nú ansi glaður að fá okkur Guðrúnu og slóst í för með okkur um tíma í dag.
Á samansettu myndunum má sjá elsku Báru Jóseps sem var með lítinn markað í innkeyrslunni hjá sér á Suðurgötuni. Ég rakst líka á greipjokes (algjört selebrittí á Instagram) sem var að fara á antíkmarkaðinn við Heiðarbraut með Magnúsi syni sínum, ég hitti frábæru, dásamlegu Fatimu ásamt sonunum Ali og Alex á Garðabraut, þegar ég var nýkomin á Skagann. Hún er konan sem færði mér oft gómsætan mat. Síðasta myndin er af Ástu í galleríinu og stráksa. Þegar ég var með bókaþáttinn í útvarpi sundfélagsins fyrir ein jólin var Ásta einmitt ein af Ástunum sem kom í viðtal - sem bókaormur. Ásta í bókabúðinni og Ásta í bókasafninu komu líka. Þátturinn hét einmitt: Þarf alltaf að vera Ásta? (Svarið var já)
Verð að viðurkenna að það hefði verið skrambi gaman að fara á fyrsta lopapeysuball lífsins í kvöld þar sem Oasis ætluðu að koma saman eftir langa pásu og spila, ég meinti Quarashi ... er einmitt með lagið Stun Gun á spilunarlistanum Ýmis lög á YouTube-veitunni þar sem einnig má finna: Neil Young, Fugees, BG og Ingibjörgu, Dimmu, Smashing Pumpkins, Muse, Nas, Bach, Tatara, King Crimson, Ricky Martin, Eminem, Goran Bregovic, Wu-Tang Clan, The Who, Travis, Dr. Hook, Pink Floyd, Christopher Tin, Björk ...
Ég fór til lófalestrarkonu fyrir nokkrum vikum. Varð hluti af rannsókn sem þessi kona er að gera - og hitti hana í Borgarbókasafninu í Grófinni þar sem lófalesturinn fór fram. Hún heitir Jana Napoli og er frá New Orleans, hún er sem sagt að skoða hvernig hendur og lófar Íslendinga hafa þróast í gegnum breytta lifnaðarhætti, allt aftur til 17. aldar. Engin spá eða neitt slíkt, bara opinberun á hæfileikum og snilld lófalínuberanna (mínum). Það sem mér þótti einna merkilegast af því sem hún sagði var að tónlist væri ekki bara tónlist fyrir mér, heldur svo miklu, miklu meira - væri mér jafnmikilvæg og súrefni - sem gæti ekki verið réttara. Ég kom til hennar undir þeim formerkjum að ég skrifaði, svo fyrsta val hjá henni hefði sennilega átt að vera gisk á að bækur væru súrefnið mitt ... sem þær eru sko líka og myndlist, ég gæti ekki hugsað mér tilveruna án listar. Húrra fyrir listamannalaunum!
Fórstu nokkuð í aðgerð? spurði ein Skagakonan í dag því henni fannst ég orðin nokkuð þynnri á vangann en áður. Klukkutíma seinna orðaði önnur kona þetta sama og ég neyddist til að viðurkenna að hlaup á eftir strætó, stöku labbitúr í vinnuna, hopp og skopp í skemmtilegu kennslunni og svo auðvitað að spennuvaldandi og gaslýsandi heilsu- og skrefatalningaappið í símanum hefðu þessar sorglegu afleiðingar (jebb, of lítið af Gurrí) ... nema fjarlægðin geri fjöllin grennri? Held nú samt að ég hafi nú aðallega losnað við hætti-að-reykja kílóin sem bættust við þarna um árið (eftir apríl 2020) en orðin nógu létt á fæti til að nenna að ganga - og ég líka verð að gera það til að geta mætt í vinnu. Svo eru fleiri aðferðir til að safna skrefum en að hlaupa á eftir strætóum og skoppa við kennsluna, eins og þvælingur í búðir eða skrepp á Skagann ...
Fór til dæmis með systur minni á nokkra staði á fimmtudaginn, meðal annars í Costco og Ikea. Keypti kattasand í Costco og kleinur í Ikea, og almennilegt skóhorn, loksins. Uppskar rúmlega 5.000 skref þann dag sem er ansi hreint miklu betra en á venjulegum fimmtudegi. Ég hrapa nefnilega niður um helgar og á frídögum; mánudögum og fimmtudögum ... en gönguferðir í dag á Skaganum gáfu mér líka rúm 5.000 skref.
Veit að ýmsir tíuþúsundskrefarar hlæja hæðnislega að þessu skrefamonti í mér - en þetta er samt mikið afrek hjá fyrrum (well) sófakartöflu sem fór varla upp fyrir 500 skref í 300 himnaríki, enda vinnustaðurinn aðallega tölvan og ég þurfti bara fram í eldhús til að ná í kaffi svona þrisvar á dag.
Stráksi kom til mín um síðustu helgi og gisti eina nótt. Seinni dagurinn, sunnudagurinn, var algjör letidagur og okkur fannst snilld síðar þann dag að taka strætóinn í Mjóddina frekar snemma og fara út að borða þar, kíkja líka aðeins í Nettó (karlmenn elska búðir). Strætó átti að fara frá Mjódd kl. 20 en við vorum komin rétt upp úr kl. 18 og ætluðum aldeilis að gera okkur glaðan dag í mat og drykk. Í ljós kom að ekki einn einasti veitingastaður er starfandi í Mjódd. Sara kebab og Dominos höfðu ekki verið opnir um tíma sem var algjört áfall að komast að því við vorum bara tímanlega miðað við að borða á þessu frímerki þarna í 109 Rvík. Allt í einu lifnaði yfir mér. Hvernig gat ég gleymt því að bensínstöðvar væru ekki aðeins orðnar að sjoppum nútímans, heldur líka veitingastöðum (skyndibita-)? Nú myndi Olís hinum megin við götuna bjarga öllu. Það hlytu að vera til Hlöllabátar, Lemondót eða eitthvað slíkt til að seðja og gleðja stráksa. Í ljós kom að það voru bara til hamborgarar þarna. Stráksi fékk sér eitthvað hefðbundið sem hann var sáttur við en ég þurfti endilega að prófa hamborgaranýjung sem var ekkert spes en allt í lagi. Við urðum að kaupa franskar kartöflur með til að fá hamborgara og gos á tilboðsverði, það hefði verið talsvert dýrara að sleppa þeim!!! Fuglar í grennd svoleiðis stórgræddu á því nokkru seinna sama dag.
Svo fyrirgaf ég allt, ekki bara af því að afgreiðslan var svo ljúf og góð, heldur af því að miðinn/kvittunin sem ég fékk gerði svo mikið fyrir mig andlega (sjá mynd) þegar ég skoðaði hann betur. Hann efldi sjálfstraust mitt til muna og fékk mig til að finnast ég nóg ... ekki bara það, heldur líka besta útgáfan af sjálfri mér!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 6. júlí 2025
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.7.): 235
- Sl. sólarhring: 253
- Sl. viku: 376
- Frá upphafi: 1529293
Annað
- Innlit í dag: 200
- Innlit sl. viku: 324
- Gestir í dag: 197
- IP-tölur í dag: 194
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni