23.5.2021 | 15:07
Æsandi hljóð
Það er eitthvað við hljóðið sem ísbíllinn gefur frá sér sem æsir mig upp, skapar einhvern spenning, einhverja stemningu. Samt á ég engar góðar minningar varðandi ísbíl úr æsku, það var ekki einu sinni bókasafnsbíll, bara blómabíll sem keyrði á milli og seldi húsmæðrum á Akranesi pottablóm - kannski afskorin en ég efast þó um það, allt þótti svo mikið bruðl í gamla daga að ég fékk bara mandarínur og epli um jólin. Já, ég er fædd 1858.
Ég var í sturtu þegar ísbíllinn kom eins og skellibjalla inn planið norðan við himnaríki undir kl. 14 í dag. Í þetta sinn stillti ég mig um að hlaupa nakin út, það voru svo miklar hótanir og læti síðast (ísbílstjórar ættu að vera um sextugt, það myndi auðvelda margt). Ég var eldfljót að þurrka mér og klæðast en óþolinmæðin í þessu unga fólki varð til þess að bílstjórinn dreif sig sunnanmegin við himnaríki og gaf frá sér þessi spennandi hljóð sem vakti börn (og fleiri) til löngunar. En ... annaðhvort var bílstjórinn stríðinn eða með lélega athyglisgáfu því ég sá börn hlaupa í loftköstum að bílnum sem sneri hratt við og ók á brott án nokkurrar miskunnar. Náði mynd þessu til sönnunar. Það skrítna við æsing minn og trylling er að ég er ekkert sérstaklega mikið fyrir ís. Hugsa að hljóðið sé sálfræðilega hannað til að æsa fólk upp í eitthvað sem það langar kannski ekki endilega í. Það nær mér í hvert einasta skipti. Þótt það væri hnetu-rúsínubíll sem gæfi frá sér svona hljóð myndi ég samt fyllast gleði og spenningi og finnast ég verða að hlaupa út - hvernig sem stæði annars á.
Þegar gemsi einnar vinkonu minnar hringdi þegar hún var í heimsókn hjá mér síðla vetrar kom svona ísbílshljóð sem ég skemmti mér yfir. Nei, sagði hún grafalvarleg. Þetta er líkhringing, heyrirðu það ekki? Hjartað fór að slá hraðar og ég þorði ekki annað en að kinka kolli. Jú, einmitt, sagði ég eftir skamma umhugsun. Það var svo ekki fyrr en eftir atvik dagsins í dag sem ég lagði saman tvo og tvo (hef þessa skemmtilegu greind úr föðurættinni, sagði pabbi alltaf). Mögulega eru ÍA og Akraneskirkja í samvinnu um að hvetja börn og unglinga til að hreyfa sig meira. Hljóðið gæti hafa verið mitt á milli ísbílshringingar og klukknasláttar ... svona eftir á að hyggja. Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um þetta. En ég hefði án nokkurs vafa elt bókabíl, hefði hann verið til í æsku minni, landshornana á milli og fengið fína hreyfingu.
Allt mjög gott er að frétta af kaffimálum. Nú er kvörnin stillt á 9 komma 9 og ég er ekki frá því að það sé betra. Að minnsta kosti stundi Inga vinkona nautnalega í gær þegar hún saup á latte sem ég bauð henni upp á. En í gær skipti hún sér nánast hnífjafnt á milli mín og dótturinnar. Fyrst latte hjá mér seinnipartinn, síðan kvöldmatur og músik hjá dótturinni og síðast atkvæðagreiðslan hjá mér. Ég var nú bara nokkuð sannspá, sagði að Ísland lenti í 12. sætinu ... hef ekki tekið saman atkvæðafjölda áranna (frá 1986) og deilt með þátttökuskiptunum en næstum-sigurinn í gær kom meðaltalinu okkar eflaust nær því tólfta. Ég hélt með Finnlandi, heyrði það ítalska í fyrsta sinn í gærkvöldi og það heillaði mig ekki. Mætti ég frekar biðja um Dimmu, Skálmöld, Deep Purple, Led Zeppelin, Jethro Tull, King Crimson, Pink Floyd, Green Day, Nirvana ...
En nú eru það LIV-CRY í sjónvarpinu mínu, smápása frá eldgosi.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 15
- Sl. sólarhring: 28
- Sl. viku: 190
- Frá upphafi: 1527784
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 138
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Þegar við Íslendingar tókum fyrst þátt í Eurovision árið 1986 bauð ég mörgum erlendum jafnöldrum mínum í Reykjavík í Eurovision partí á mínu fróma heimili.


Þetta var kurteist fólk sem sagði ekkert eftir flutning Gleðibankans en Mörlendingar voru almennt nokkuð vissir um að lagið myndi vinna keppnina.
Sigurvegarinn var þó hin belgíska Sandra Kim með lagið "Ég elska lífið", sem hinn franski vinur minn Hervé kallaði "Ég elska franskar", enda hef ég alltaf fengið franskar kartöflur með aðalréttum á belgískum veitingahúsum.
Sandra Kim - Ég elska franskar
Can Belgium claim ownership of the French fry? - BBC
Þorsteinn Briem, 23.5.2021 kl. 17:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.