28.5.2021 | 21:01
Afsakið veðrið ...
Annar í einveru ... djammi, sukki eða hvað hægt er að kalla svona gras-fósturmömmustand. Og nei, það var ekki farið í ríkið þótt góðhjörtuð Skagakona hefði boðist til að skutla mér. Ég masteraði bara seinni latte dagsins - og lét það nægja.
Ég ætlaði að hafa það náðugt í kvöld og hita eitthvað tilbúið og gott frá elsku Einarsbúð. Pantaði m.a. kaffirjóma, kattasand og kjúklingarétt (k-dagurinn) og nennti ekki að sjóða hrísgrjón með kjúklingaréttinum sem virtist framandi, gulur og girnilegur, karrí-eitthvað með ananas, indverskt kannski, ekki sterkt samt. Sá eitthvað annað gult inni í ísskáp hjá mér, frá Þykkvabæ, og hitaði með. Lærði rúmlega korteri seinna að þótt eitthvað passi vel saman útlitslega séð og sé sumarlegt og sætt á diski þýði ekki að það bragðist vel saman.
Ég er núna fyrst að jafna mig, tveimur tímum seinna. Fólk sem hefur smakkað saman t.d. sítrónufrómas og SS-sinnep skilur hvers konar martröð ég upplifði, sársvöng eftir í raun bara morgunverð í hádeginu. Berneskartöfluréttur er ekki góður með öllu, veit það núna. Líka að matur er ekki bara matur og ég hef verið sérlega heppin í lífinu að lenda aldrei í svona ... alla mína áratugi og þó oft stofnað tilraunaeldhús heima hjá mér. Pasta með chili (fræjum og allt), hrottalega sterkt var eins og ljúfur jólamatur við hliðina á þessu. Rétturinn var góður, kartöflurnar líka - bara ekki saman.
Er þetta haustveður á þínum vegum? spurði Hilda systir fyrr í dag, svolítið pirruð. Hún heyrði greinilega gleðibros mitt yfir veðrinu alla leið í Kópavoginn en ég tek fulla ábyrgð á þessu. Ég lofaði vissulega að kaupa ekki sumarsæng en þegar ég skipti á rúminu í morgun setti ég sumarsængina sem ég keypti í FYRRA í staðinn fyrir umfaðmandi allt of þungu þyngingarsængina og það var eins og við manninn mælt, það fór að hvessa tveimur mínútum seinna. Sængin þunga átti að vera aukagjöf til drengsins um jólin en hann vildi hana alls ekki. Svo ég fórnaði mér og fann fljótlega ráð til að geta andað, lifað af, að mér yrði ekki allt of heitt ... sængin er sem sagt pínku stíf svo hægt er að láta hana standa svolítið eins og spilaborg - svo það kemst bæði súrefni og kalt loft undir hana og hægt að sofna. En í morgun var bara of heitt, hitinn greinilega kominn yfir tíu gráður úti.
Örþunn og lauflétt sumarsængin gæti þó verið of köld svona snemma sumars. Hitinn á Akrafjalli var 11 gráður á Celsíus sem segir mér voða lítið - ég hef ekki hugmynd um hversu heitt eða kalt er á Akranesi. Veðrið á Hvanneyri segir mér líka lítið um veðrið heima hjá mér. Vestmannaeyingar fá bara veðrið á Stórhöfða, kannski alltaf hangandi þar hvort eð er? Yr.no er frekar dramatísk veðursíða en þar finnst Akranes samt sem áður. Ég fæ stundum hjartslátt af spenningi yfir komandi stórviðri sem síðan ekkert verður úr, allar tölur hækka eða lækka þegar líður að stóra deginum. Veðrið skiptir mjög miklu máli í svo ótrúlega mörgu. Ég hef heyrt því fleygt að veðurfræðingar sofi bara hjá þegar það er lægð yfir Grænlandi (og það er eiginlega aldrei lægð yfir Grænlandi) en ég á samt erfitt með að trúa því, þeir virðast svo hressir í sjónvarpinu.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 17
- Sl. sólarhring: 27
- Sl. viku: 156
- Frá upphafi: 1527925
Annað
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 121
- Gestir í dag: 14
- IP-tölur í dag: 14
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.