11.8.2021 | 16:48
Merkileg líkindi ...
Stóllinn fagri mætti upp á sekúndu á réttum tíma í Himnaríki í gær ... eða fyrir kl. 22 á réttum degi skv. SMS-inu frá Póstinum. Við hömuðumst við að máta hann til skiptis og erum alsæl. Ég bjóst við að kettirnir færu að rífast um hann en þeir bera sennilega óttablandna virðingu fyrir mér þegar kemur að stólum og hafa ekki lagst í hann í dag, sennilega er hann ekki nógu mjúkur. Hann er nú samt afar þægilegur, finnst mér, og alveg nógu hár, sem skiptir ölllu, það er bara eins og hann hafi alltaf verið hérna.
Mér skilst að þessi sending af honum hafi selst upp á örskömmum tíma en fólk getur sett sig á lista, eins og ég gerði síðast, og þá er það látið vita þegar hann kemur aftur til landsins. Stóllinn átti að vera ein af fjölmörgum afmælisgjöfum frá mér til mín þetta árið (sárabætur fyrir stórveislu sem gat ekki orðið) en ég steingleymdi að kaupa fleiri gjafir. Fartölvan, sú fyrsta í lífi mínu, ætti að lenda við tækifæri, þegar Davíð frændi hefur fundið einhverja fína á góðu verði, og það verður bara hin gjöfin. Vinnutæki en hva ... svo vantar mig sárlega ný gleraugu, já, já, þetta er bara komið, kom á meðan ég skrifaði þetta.
Ég veit ekki hvort gestafjöldinn á morgun nær tíu manns en það kemur bara fólk úr búblunni minni, ekki einu sinni allir og engin börn, en ég undirbý samt eins og von sé á hundrað. Mikið vildi ég óska þess að sú væri raunin þótt ég mætti alveg vera félagslyndari á milli afmæla.
Ég pantaði tertu (ekki risastóra reyndar) hjá Kallabakaríi og snittur hjá Galito ... en til öryggis ætla ég að búa til skyrtertu, smyrja flatkökur með Einarsbúðar-hangikjöti og útbúa lítinn ostabakka ... Ef allir eru mjög svangir, hryllilega, ofboðslega svangir, brjálæðislega, ætti þetta að reddast og ég að auki sleppa við að kaupa í matinn fyrir helgina ...
Ég hringdi hálfafsakandi í Einarsbúð - pantaði gos og alls konar og sagðist halda að það þyrfti tvo til að færa mér sendinguna - eða sendillinn yrði að fara tvær ferðir upp og niður. Hálftíma seinna kom ungi frábæri strákurinn hlaupandi upp í Himnaríki. Hva, komstu með allt? Í EINNI ferð? spurði ég forviða. Já, en ekki hvað? svaraði hann hissa, bar kassann inn í eldhús og dreif sig svo í næstu sendiferð. Ja, ég sligast ef þarf að bera tveggja lítra gosflösku nokkra metra, verð nánast örmagna, þú ert með níu lítra (með mjólk og rjóma) og hleypur upp þrjár og hálfa hæð, svaraði ég honum í huganum.
Ég sá sérlega lærdómsríka grein á netinu á dögunum þar sem gefin er upp hæð nokkurra þekktra Breta sem eru flestir með blátt blóð í æðum:
Vilhjálmur prins er langhæstur, eða 1,92 m. Bróðir hans, Harry, er ekki nema 1,89 m ... Móðir þeirra, Díana, var 1,82, jafnhá Karli, fyrrum eiginmanni og föður drengjanna (hlusta ekki á að Harry sé rangfeðraður).
Katrín, eiginkona Vilhjálms, er 1,79 m og Camilla, stjúptengdamóðir hennar, er 1.76. Meghan, óþekka tengdadóttirin, er bara 1.70 ... og það er einnig Anna prinsessa, alveg eins og ég OG þar sem bæði mamma og Elísabet Englandsdrottning eru 1,64, finnst mér það renna stoðum undir það sem ég hef oft hugsað, að ég væri alveg jafnmerkileg og þessi konungsfjölskylda. Þetta eru merkileg líkindi. Það er líka fleira sameiginlegt með mér og þessu fólki, eins og til dæmis það að við Elísabet vöknuðum báðar við mann á rúmstokknum og það á sama árinu. Ég man ekki í augnablikinu hvað hitt er en það er líka mjög merkilegt ...
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 6
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 148
- Frá upphafi: 1527943
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 116
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Magga systir Betu var 1,55 metrar á hæð og Beta er trúlega farin að ganga ansi mikið saman en undirritaður hefur þó ekki brugðið málbandi á hana nýlega.
Viktoría Bretadrottning var 1,52 metrar á hæð og móðir Betu var 1,57.
Þorsteinn Briem, 11.8.2021 kl. 17:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.