Samsærið á Veðurstofunni

Ekkert veðurÁ laugardaginn fékk ég langþráðu gardínurnar sem ég hef hlakkað stjórnlaust til að geta notað við að stjórna svolítið hitastiginu í Himnaríki, koma í veg fyrir að sólin næði að baka allt og alla hérna, eins og hún hefur gert síðustu vikur með svita og tárum. Lamandi, lamandi hiti ...

 

Á sama tíma, annars staðar í alheiminum (á Veðurstofu Íslands í Öskjuhlíð):

 

V1: „Hei, þessi Guðríður þarna, montrassgatið í íbúðinni sem hún kallar Himnaríki, er búin að fá gardínurnar sem við vorum að ræða um daginn, hvernig er best að bregðast við því?“

V2: „Ja, kannski ekki mikið hægt að gera svo sem nema svekkja hana, eins og draga fyrir sólu og láta kólna ögn svo bæði nýju gardínurnar og fína viftan úr Costco geri ekkert gagn. Það ætti að þurrka af henni glottið. Hún hefur fengið smávegis gos-gas frá okkur síðustu daga í þessari sunnanátt og heldur alltaf að nú sé hún komin með COVID út af hálssærindum. Það skemmtir mér! Getum gert meira af því.“

V1: „Manstu um árið, þegar hún keypti sumarsængina og við stilltum hitann á 8-9 gráður nánast allt sumarið, ég hef sjaldan skemmt mér betur. Hún var víst með tvö teppi ofan á sænginni, bara til að hætta að skjálfa. Þriðja teppið var svo til að halda á henni hita. Ég hélt að hún hefði lært af því en nei, sumir ögra endalaust. Hún fengi miklu oftar almennilega suðvestanátt fyrir brim ef hún héldi sig á mottunni. Og hvernig hún lokaði á Vilmund ...“

V2: Jæja, drífum okkur á skjálftavaktina, kannski gaman að skella einni stjörnu á kortið. Hver ætlar að kasta pílunni núna? Og nennir að miða á Heklu til tilbreytingar?“

 

Ungleg

Hin flotta Madonna náði mér í aldri í dag (f. 16. ágúst 19X8) en í fjóra kvalafulla daga hefur hún verið sem ári yngri ... Hún lítur samt út fyrir að vera hundrað árum yngri en ég, ef marka má myndir, enda er hún alltaf í ræktinni og hefur eflaust kokk sem eldar ofan í hana hollan mat, hirðstraujara sem straujar óvelkomnar hrukkur og sefur á hundrað dýnum með silkilaki ... heppna Madonna.

 

Nú í ár fékk ég ekkert hrukkukrem í afmælisgjöf, nánast bara súkkulaði sem er nú samt óbeint hrukkukrem: meira spik samasem grynnri hrukkur, segir sagan. Ég get reynt að geyma það sem gestasúkkulaði en á ekki von á neinum gestum alveg á næstunni og til að súkkulaðið renni ekki út, gæti ég neyðst til að borða það alein.

 

Herkúles á LangasandiHilda systir kom með fríðu föruneyti í heimsókn á Skagann í gær. Herkúles, hundur hennar, elskar víst Langasand meira en allt og maður gerir auðvitað allt fyrir hund sinn.

 

 

Voffi beið stilltur og þreyttur eftir Langasandshlaupin í bílnum á meðan við úðuðum í okkur kvöldmat á Galito. Fóstursonurinn vildi helst fá nautalund (6.450 kr.) en eftir erfiðar samningaviðræður sættist hann loks á að fá nautakjöt í formi Bernes-hamborgara sem var helmingi ódýrari.

 

Svo var haldið í Frystihúsið og öll börnin (yngri en 64 ára) fengu ís. Held að við Skagamenn séum með eina bestu ísbúð landsins ...

 

Ef myndin prentast vel má sjá trylltan smáhund snúast í hringi af hamingju á uppáhaldsbaðströndinni sinni. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 143
  • Frá upphafi: 1527938

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 111
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband