Fyrsti og síðasti í sumarfríi ... og heigulslegt val

GrjótiðSumarfrísdagurinn í dag, sá fyrsti af fjórum (í bili) hjá mér, var ekki eintóm leti og ómennska eins og stefnt hafði verið að, þetta var líka síðasti sumarfrísdagur drengsins og það þurfti að halda upp á það að elsku veturinn væri nánast formlega að hefjast.

 

Byrjaði á sjúkrahúsinu, stutt viðtal við ljúfasta hjúkrunarfræðing í heimi vegna kvilla sem ég hefði sennilega ekki átt að reyna að lækna sjálf svona lengi með soðnu vatni og handklæðum ... ég meina trönuberjasafa sem ég var samt ekki nógu dugleg að drekka ... og pensilíni hjá dílernum mínum í Stykkishólmi ... sem sló nú samt á verkina, bara ekki nóg. Tók í morgun ákveðna miðprufu (þeir skilja sem vilja) og hafði með á spítalann og við fyrsta tékk sem hjúkkan gerði var allt eðlilegt, hún taldi upp eggjahvítu, sykur (ekki að tala um marens) og fleira en það var eins og rannsóknaraðstaða eða -tæki þarna inn af stofunni.

 

„Ha? Er sykurinn í lagi? Ég var sko með margra daga afmælisveislu og ...“ Ég þagnaði sakbitin og rifjaði upp allt súkkulaðið, allar tertusneiðarnar ... eiginlega enn nánast í sykurdái eftir sætindi síðustu daga. Það kökukyns sem gestirnir fimm daginn eftir kláruðu ekki fór reyndar í þakkláta mávana, vini mína (það er hægt að elska fugla OG KETTI), en allt súkkulaðið ... úff, og ég treysti mér ekki í ræktina vegna verkja (og COVID). „Já, allt í fína með sykurinn,“ sagði þessi elska. Mér fannst ég hafa sloppið með skrekkinn.

 

Stráksi fór í klippingu á sama tíma hjá Gísla rakara, og svo hittumst við fyrir utan spítalann. Ég hafði lofað að bjóða honum út að borða á nýjan stað. Á Grjótið, það stendur við Kirkjubraut, skáhallt á móti Gamla kaupfélaginu. Og þangað héldum við. Gamall skólafélagi rekur staðinn og hefur farið ansi flott í hlutina, finnst mér. Hann opnaði Grjótið á Írskum dögum og hefur í rólegheitunum síðan verið að prófa sig áfram með alls kyns rétti á matseðli OG KAFFI ... Það var alveg greinilegt að hann pælir mikið í kaffinu og segir að Skagamenn hafi heilmikið vit á þeim dásamlega drykk, hann hafi fundið það undanfarið. Ég sagði honum frá erfidrykkjunni hans pabba fyrir 20 árum, kaffinu sem ég keypti og ærði gömlu frænkurnar þannig að ég þurfti að skrifa niður nafnið á kaffinu fyrir þær. Við stráksi fengum okkur risastóran kjúklingabúrító sem ljúfi og skemmtilegi þjónninn mælti hástöfum með. Nammmmm.

 

Húsnæði Grjótsins og umhverfi ... lítill skrúðgarður með gosbrunni er fyrir aftan (Suðurgötumegin), þar eru borð og stólar á góðviðrisdögum, og þeim megin var inngangur að bókasafninu í gamla daga, sem var aðalskemmtistaður okkar barnanna, bókasafnið og Frón (KFUK). Jú, auðvitað Bíóhöllin líka og Langisandur. Já, og þarna í húsinu var líka til húsa lögreglustöðin, sennilega fangageymslur líka og þess vegna þetta nafn, Grjótið.

 

Rammar og glerauguÞað voru svo fáir metrar út í Frystihúsið frá Grjótinu að ég bauð okkur upp á ís í eftirmat. Skólinn byrjar á morgun og slíkt heldur maður upp á, smádekur hans síðasta í sumarfríi.

 

Enn voru níu mínútur í strætó og þegar ég sá gleraugnabúðina hinum megin við götuna (bláa skiltið á mynd) mundi ég eftir því að ég hafði verið á leiðinni þangað í rúm þrjú ár. Heppnin var með mér, nógu langt var í næsta viðskiptavin til að hægt væri að koma mér að, ég hafði nú bara ætlað að panta tíma. Svo hófst: „Hvor er meira hringlaga ... þessi hringur eða, klikk, þessi?“

 

 

Hann hrósaði mér ekkert fyrir að vera ekki komin með ellifjarsýni, svona líka öldruð, nokkur vonbrigði því ég er svo montin af því, mér tókst samt að koma því að. Tannlækninum mínum finnst heldur ekkert merkilegt að ég sé enn með endajaxlana þetta gömul. Og engum á Landspítalanum þótti merkilegt að ég hefði verið með TERATOMA-æxli þarna 2004, á meðan það sturlaðist allt á Sjúkrahúsi Seattle í Grays Anatomy yfir sams konar ... eins og ég hef áður sagt frá. Það er verið að reyna að halda mér niðri.

 

Ég bjóst við að sjóntækjasérfræðingurinn segði að ég læsi allt of mikið, yrði að minnka það, eða væri kominn með hroðalegan sjúkdóm því ég hef staðið mig að því nokkuð lengi að loka oft vinstra auganu til að geta lesið t.d. texta í tölvunni. Ég var nokk viss um að það þýddi eitthvað skelfilegt. „Já, en manstu ekki þarna 2018 þegar þú fékkst þessi gleraugu (ekki tvískipt) þá ...“ Svo kom einhver útskýring, ég átti bara að koma fyrr.

 

„Einhver er nú innkoman,“ tautaði púkinn á hægri öxlinni þegar ég borgaði gleraugun. Púkinn á þeirri vinstri hristi hausinn og benti á að Blaðamannafélagið myndi borga góðan hlut í þeim - ég þyrfti bara að muna að rukka. Ég hló hæðnislega innra með mér og fékk líka smávegis ekka, hvenær myndi ég nú gera það? Ekki gerði ég það 2018.

 

Þessi nýju gleraugu sem ég fæ eftir tvær vikur, voru mun dýrari en þessi 2018 (enda þau nýju tvískipt) og að vanda valdi ég lítt áberandi umgjörð (heigull) úr karladeildinni (ég er breiðleit). Afgreiðslukonan benti mér á að ég hefði valið sama merki og síðast, það var alla vega eitthvað franskt og fabjúlus og alls ekki dýrt.

 

 

Fínasti dagur, góð tilfinning að vera komin í stutt frí. Samkvæmt talnaspekinni mun eitthvað sérstakt gerast hjá mér á næstu tólf mánuðum, alltaf á níu ára fresti verða víst breytingar samkvæmt henni, góðar eða ekki svo góðar ... 18 ára, 27 ára, 36 ára, 45 ára, 54 ára, 63 ára ... Díana prinsessa var einmitt nýkomin á breytingaár þarna 1997 (36 ára). En sú sem kenndi mér aðeins á tölur á sínum tíma talaði nú ekki um svo afgerandi breytingar, frekar flutninga, ástakjaftæði, eitthvað slíkt. En hva ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 143
  • Frá upphafi: 1527938

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 111
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband