24.8.2021 | 18:14
Eldað með álhatt og tvítugar áhyggjur af framburði
Ég var sem betur fer hætt í útvarpi þegar lagið Stan kom út, slapp með naumindum við að þurfa að spila það og kynna: Næsta lag heitir Stan og er flutt af Eminem og Dido ... núna þegar klukkuna vantar tuttugu mínútur í tvö ... eitthvað slíkt, en STÓRA vandamálið árið 2000 var hvernig ætti að bera fram nafn Didoar. Ef notaður hefði verið erlendur og réttur framburður hefði íslenska þjóðin grátið úr h hlátri ... dædó, sko dædó ... dóri burri ... svo Dido var ætíð kölluð Dídó hérlendis. Ef ég hefði nú bara áhyggjurnar yðar, frú Guðríður, gæti einhver sagt en maður ruglar bara ekki flottri söngkonu saman við ... strætó. Það var aftur á móti mjög gaman að bulla stundum ... afkynna lag með hljómsveitinni Varíus artists - eða ljúga til um aldur sumra laga til að vera ekki tekin á teppið (á Aðalstöðinni fyrir að spila of ný lög). X-ið hafði einkarétt á nýjum lögum en kommon, Lemon Tree er t.d. mjög gamaldags lag og passaði miklu betur til spilunar á neðri hæðinni. Hlustum nú á eitt gamalt og gott, Lemon Tree ...
Internetið getur verið svo frábært, eins og til dæmis þegar kemur að hollustuuppskriftum sem poppa bara upp á Facebook. Í kvöld ætla ég að elda brokkolídýrð (uppskrift og mynd í næsta bloggi, ef heppnast) en þetta er eins konar brokkolíbaka. Gott að eiga fósturbarn sem er hrifið af grænmeti. Og þetta er sannarlega ekki meinlæta-eitthvað, heldur einstaklega girnilegt. Samt eru matreiðslubækur ómissandi, að mínu mati, bara upp á að fá hugmyndir að einhverju ... Þeir sem hætta að nota slíkar bækur (eða tímarit) þurfa þá alltaf að fá hugmynd að kvöldmatnum sjálfir og gúgla svo uppskriftina. Boring.
Óþolinmæði mín gagnvart sjónvarpi hefur oft komið fram hér, eða óvænta aukaverkunin af reykingalyfinu, og nú er ég orðin pínku pirruð út í snappið og stöku sinnum Instagram ... eða fólkið þar (og já, ég er ábyggilega að fleygja hér stórgrýti úr gróðurhúsi).
Sko, fólk sem verður óvænt vinsælt á þessum miðlum (ekki venjulegir áhrifavaldar), stundum í gegnum Íslendingar í útlöndum-snappið (samt alls ekki allt) heldur sumt að ætlast sé til þess af því að það fari að tala svo miklu, miklu meira, segja skoðun sína á öllum fjáranum, og verður þar með ekki jafnskemmtilegt ... Svo geta orðið óvæntar karakterbreytingar á sumum sem maður fylgist með, ég henti alllllveg óvart út ungri konu sem fór að hugsa of sjálfstætt fyrir minn smekk og skellti ýmsum allt of gáfulegum upplýsingum frá örugglega góðum og sönnum netsíðum sem voru stofnaðar eingöngu til að bjarga lífi okkar kjánanna sem láta hræða okkur endalaust til hlýðni í Laugardalshöll eða íþróttahúsi á Akranesi ... Ég er meira að segja orðin leið á svona snillingum (fjandans aukaverkanir).
Held alltaf tryggð við Gveigu þótt hún segist ekki þola ketti (get bara ekki trúað því), finnst Sólrún Diego æði, líka Sigrún Sigurpáls, Eva Ruza og Katla í Systur og makar ... held ég sé ekki með fleiri áhrifavalda. Kíki stundum á kvöldin þegar ég er komin upp í en hef samt enn meira gaman af því að fylgjast með mínu fólki sem margt er skammarlega latt við að deila lífi sínu með öðrum. (Ég er gurrihar á bæði Insta og Snapchat og alveg rosalega skemmtileg ... hehehe)
En nú er það brokkolídýrðin ... gangi mér vel! Verð með álhatt til öryggis, 4G-bylgjur eru víst ekkert grín.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 30
- Sl. viku: 143
- Frá upphafi: 1527938
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 111
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.