Brokkolídýrð - uppskrift og játning

UndirbúningurBrokkolídýrðin var elduð í gær og þrennt sem ég mun laga þegar ég geri þetta næst, sem verður mjög fljótlega.

 

Ég t.d. gleymdi að smyrja eldfasta mótið - og ég held að ég hafi annaðhvort haft of mikla mjólk (þoli ekki bollamál, sýnist á vídjóinu að notuð hafi verið minni) eða að ofninn hafi átt að vera á blæstri. (Hefði osturinn þá ekki brunnið?)

 

Svo var eitthvað talið upp sem heitir green smell ... en ekkert af viti kom þegar ég gúglaði eða snaraði (snara.is) svo ég notaði graslauk, hann er grænn. Rétturinn reyndist vera bragðlaus en eftir að ég kryddaði með salti og pipar breyttist hann í sanna dýrð.

 

Brokkolídýrð

1 haus brokkolí

1 laukur

1 paprika (t.d. 1/2 rauð og 1/2 græn)

3 egg

1 tsk. salt

5 msk. olía

2 bollar mjólk (of mikið?)

graslaukur (smávegis)

6 msk. hveiti

1 tsk. lyftiduft

rifinn mozzarella

salt og pipar eftir smekk

 

Sjóðið brokkolígreinarnar í í söltu vatni í 15 mín. Steikið á meðan í ólífuolíu lauk og papriku. Setjið eggin í skál, salt, olíu, mjólk og graslauk (eða green smell) og hrærið. Bætið hveiti og lyftidufti útí og hrærið. 

Smyrjið eldfast mót og setjið brokkólíið út í, bætið síðan steikta lauknum og paprikunni við og hrærið saman. Hellið þá eggja- og mjólkurblöndunni yfir og stráið rifnum osti yfir allt saman. Bakið við 200°C í 25 mín. Ég þurfti að hafa þetta eitthvað lengur í ofninum, eða þar til vökvinn stífnaði betur. Ofninn minn leiðinlegur? Eða hafa á blæstri? Veit einhver hvort Silli kokkur er á lausu?

 

Eftir 25 mín í ofniJátning

Við stráksi borðuðum okkur södd í kvöldmatnum og kláruðum svo afganginn tveimur tímum seinna, þetta var svo gott. Við erum bæði mjög hrifin af hollum mat. Ég segi kannski ekki að súkkulaði geti farið fjandans til ... en næstum því. Bokkolí er hið nýja súkkulaði hér í Himnaríki.

 

 

Kannski reyni ég að gufusjóða brokkolíið næst til að næringarefnin fari ekki öll út í vatnið en ég fór bara alveg eftir uppskriftinni á myndbandinu (dirfðist samt að nota hálfa gula papriku á móti hálfri rauðri)

 

- - - - - - - - - - -

 

Snapp- og Instagramframhald síðan í gær:

... og ég fylgist með frábæru og fyndnu Thelmu Hilmars., Evu Laufeyju, Þórdísi Gísla, Simma Vill, Skreytum hús, Katrínu Eddu, Mömmum.is ... og hluti af „mínu fólki“: Heima Sæta (í DK), Anna í olíunni (í NO), Íslenskir trukkarar (í USA) og miklu fleiri ...  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 143
  • Frá upphafi: 1527938

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 111
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband