Trúboð í síma og langþráðar tölur í V-kjördæmi

FlamingoFöstudagsgesturinn kom hálftíma fyrr en hann ætlaði sem var nú bara frábært. Ég reyndi lymskulega að breyta plönum, að draga viðkomandi á Grjótið, var spennt að smakka kaffið þar en við fengum ekki inngöngu. Klæðaburður í lagi samt en ég var hvorki með meik né maskara, hvað þá varalit. Það var einkasamkvæmi, ekki hægt að auglýsa til að skemma ekki það óvænta fyrir afmælisbarninu sem liggur væntanlega á Facebook til að fylgjast með öllum Lokað vegna einkasamkvæmis-tilkynningum og átta sig á að koma eigi henni á óvart, grín, hún vinnur kannski þarna og hefði skilið um leið ... Stuttar vegalengdir hér á Akranesi, svo við fórum bara og borðuðum hjá Flamingo. Annað kvöld mitt í röð en það var allt í lagi.

 

KötturÉg verð að hrósa Frystihúsinu, ísbúðinni knáu á Akratorgi, fyrir hreint út sagt geggjaðar hrekkjavökuskreytingar, fyrir utan var meira að segja ógnvekjandi morðvettvangur, girtur af með lögregluborða. Við fengum okkur ís og rúntuðum um bæinn. Fólk er farið að skreyta, jólaskreyta, en ekki mikið samt.

- - - - - - 

Gestur dagsins í dag ætlar með mér á Grjótið, hún er líka spennt að taka út kaffið. Það er rúmt ár síðan hún kom til mín síðast, þá var allt í rúst vegna framkvæmda. Hún eiginlega trúði mér ekki þegar ég sagði henni að mér mætti afar sjaldan áskorun hér á heimilinu, nema eftir pest og þursabit, það tekur sig nánast til sjálft. Nema ég sé orðin minni draslari en áður, ég er ekki lengur vítamínsnautt dauðyfli eins og mér finnst ég hafa verið lengst af.

 

Mynd: Miskunnarlaus sólin sýnir hverja misfellu frá síðustu gluggaþrifum ... en flottur köttur samt, og sætur sjór.

 

Síminn hringdi, heimasími í heimasíma. Þekkti ekki númerið en svaraði samt, auðvitað, dyraat er í tísku núna, ekki símaat. 

„Já, sæl, ég heiti XXX og hringi frá Vottum Jehóva. Við viljum ekki ganga hús úr húsi vegna kórónuveirufaraldursins, má ég spjalla aðeins við þig?“

„Nei, takk, ég hef engan áhuga,“ svaraði ég kurteislega. 

„Takk innilega fyrir hreinskilnina,“ sagði ljúf röddin og við kvöddumst nánast með kærleikum. Þetta kostaði nú samt að ég missti af þriðja marki Liverpool ... en sá það í endursýningu, kræst. Og dæmt af. Er með sjónvarpið hljóðlaust og hlusta á Jólaóratóríuna, önnur stemning en jólalög. Eftir að ég hætti að reykja er svo miklu skemmtilegra (fyrir mig, ekki grannana) að syngja hástöfum með hinum ýmsu kórverkum.

 

Ég hefði ekki kunnað við að svara símasölumanneskju, trúboða, svona fyrir 20 árum, jafnvel ekki 10 árum, en grumpy old women, eins og ég hlýt að mega kalla mig stundum, þegar hentar, nenna engu bulli, kannski áttum við okkur á því að lífið er sennilega rúmlega hálfnað og því að eyða tímanum sem eftir er og líður svo hratt, í að þóknast vegna einhvers sem við höfum ekki áhuga á? Kurteisi er samt sjálfsögð, hreinskilni finnst mér reyndar ofmetin og t.d. ekki sjálfsagt að troða skoðun sinni að í sumu nema vera spurður álits. Mikið ertu í ljótri peysu-dónaskapurinn. Mikið hefurðu fitnað-ruddagangurinn. Þið skiljið.

 

Tölur í dagHinn frábæri sóttvarnalæknir okkar, Þórólfur, leyfði aftur birtingu talna í gær, ekki bara í V-kjördæmi í heild, heldur í hverjum bæ fyrir sig. Ég segi Þórólfur, veit ekkert hvort hann stjórnar þessu. Við vorum mörg sem vildum fá þetta, sjálfsagt eins og veðurfréttir og annað slíkt.

 

 

Ég fann samt fyrir því að einhverjir álitu mig ofsahrædda, hálfsturlaða, jafnvel drykkfellda kerlingu sem verði deginum í að telja covid-smit og næra þannig sótthræðsluna ... Svo er ég bara fréttasjúkur andskoti sem lítur á svona upplýsingagjöf sem sjálfsagða. Ég var farin að efast um að væri sniðugt að gefa sælgæti á morgun, hélt að smitin væru miklu fleiri, það gengu þannig sögur á Skaganum. Svona getur skortur á upplýsingum valdið óþörfum ótta, segi ég nú bara.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 16
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 158
  • Frá upphafi: 1527953

Annað

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 126
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Fb grúppur Gamla fólkið
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband