Óvænt fegurðarslys og furðukeppni frægra

FegurðarslysFyrr í dag tók Síminn af mér netið í nokkra klukkutíma vegna viðgerða svo ég neyddist til að taka sumarfrí - og hvað gerir maður þá? Jú, fer á kaffihús með Ingu, á Grjótið til að taka út kaffið þar. Ég lenti í hroðalegu fegurðardrottningaslysi á leiðinni niður, sló harkalega í steinsteypt handriðið svo nöglin á þumalfingri vinstri handar rifnaði niður í kviku. Það sveið en ég gætti þess vandlega að horfa ekki á áverkana, bað Ingu um að festa bílbeltið á mig og fékk svo lánaðan stóran plástur hjá Grjótinu. Við kunnum þetta, skvísurnar úr bransanum. Svo bara vex nöglin, plásturinn dettur af eftir einhvern tíma og ég held fingrinum. Inga sýndi mikla samúð og vildi án efa skutla mér upp á sjúkrahús þótt hún segði það ekki, heldur: „Svona er að vera pjöttuð með langar neglur. Þú þarft naglaklippur ...“ Þar setti ég mörkin, engin naglaklippa kæmi nálægt þessum viðkvæma slyssvettvangi. Gleymska er bara best, annaðhvort heldur maður fingri eða ekki, ekkert væl.

 

Kaffið var fínt, Kólumbíukaffi frá Te og kaffi. Oft fannst mér sú tegund helst til of bragðlítil til að nota sem espressó í latte og hefði fyllst hneykslan og fordómum ef ekki hefði verið fyrir Kaffibrugghúsið þar sem brennt er eitthvað það besta Kólumbíukaffi sem ég hef smakkað. Svo man ég eftir sérlega góðri uppskeru hjá Kaffitári, fyrir kannski 25 árum. Fram að því hafði ég ekki verið hrifin en nú alla vega veit ég að „sama kaffið“ er ekki eins, þetta fer eftir búgarði, ári og svo mörgu.

Eigandinn kom töltandi til okkar, jafnaldri minn og skólabróðir, samt mjög fínn:

„Hvernig var kaffið?“ spurði hann og röddin skalf, held ég, líklega er ég meiri áhrifavaldur en ég hafði vonað. Eða ógnvaldur kaffihúsa sem væri best ...

„Það var fínt,“ sagði ég. 

„Ha, sagðir þú fífl?“ spurði hann hlessa. Ég snöggreiddist, hvernig dirfðist hann að stela uppáhaldsbrandaranum mínum til áratuga ... ég er með stáltaugar, svo ég hló kurteislega. Um að gera að halda honum góðum svo hann taki ekki upp á því að kaupa inn vont kaffi. Margt að varast í þessu lífi - bara í dag: steypt og árásargjarnt handrið og kaffihúsakarl.

 

Októberkaffið frá Kvörn er algjört æði, ég hef notið þess að drekka það, vonandi verður nóvemberkaffið jafngott ... svo verð ég að panta frá Kaffibrugghúsinu, Kólumbíukaffi ... Mér skilst að lífið sé í raun ekkert annað en leit að besta kaffinu og að henni ljúki aldrei, það hljómar mjög spennandi og gerir mig kannski mjög aldraða.

 

Gurrí og fræga fólkið í keppniNú er, held ég, bara tvennt eftir sem ég fæ sennilega ekki að vita á meðan ég lifi. Jafnvel þrennt, kannski ástandið hjá Eflingu, í alvöru, ég er svo tortryggin:  

- Efling - bak við tjöldin, allur sannleikurinn

- Innihald erfðaskrár Filippusar prins

- Hver það var sem rændi Iðnaðarbankann í Breiðholti, 1984, þar sem ræninginn var með útstæð herðablöð og fjaðrandi göngulag, munið, en allir sögðust vita hver hann væri og settu upp mikilvægan svip. Mig langar enn ekkert voðalega mikið að vita þetta.

Þetta fjórða var Challenger-geimskutlan og afdrif áhafnarinnar (sjá vikugamla bloggfærslu), leyndarmálið var fryst þar til sennilega flestir í heiminum voru búnir að gleyma - en einn 19 ára afgreiðslumaður í Kaju á Akranesi fann sannleikann 35 árum seinna á YouTube í heimildamynd og sagði mér frá því.

 

Annars held ég að ég viti allt ... nánast (sem mig langar að vita) - þetta með Filippus, ég legg ekki í að trúa hverju sem er, mögulega framhjáhaldsbarn - en vér Íslendingar lyftum varla augabrún yfir slíku.

 

Neðri myndin er í flokknum Gurrí og fræga fólkið. Þarna er einhver furðukeppni í gangi, sennilega í að standa sem smartast. Mig minnir að ég hafi sigrað.    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 40
  • Sl. sólarhring: 96
  • Sl. viku: 221
  • Frá upphafi: 1528034

Annað

  • Innlit í dag: 34
  • Innlit sl. viku: 172
  • Gestir í dag: 34
  • IP-tölur í dag: 34

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Gemsinn
  • Mávur óttans
  • Fb grúppur Gamla fólkið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband