DIY í rafvirkjun og læknisfræði - slátraralisti Sigurðar

Ég veit beturÉg bað um að mér yrði bætt á slátraralistann svokallaða sem Sigurður G. lögmaður bjó til í dag og inniheldur nöfn fólks sem, að mati lögmannsins, slátrar mönnum án dóms og laga.

 

Ég sé auðvitað ekki allt, hvað þá allt „blóðbaðið“ á netinu en vil frekar vera á þessum lista með þessu fólki en ekki ... þetta er nefnilega alls ekki stríð gegn körlum eins og sumir vilja meina! Allir sem þekkja mig vita að ég elska og dái karla. Ég myndi aldrei taka þátt í stríði gegn þeim. Bara aldrei! Þetta er stríð allra kynja við ofbeldis- og nauðgunarmenninguna.

 

Mér var byrlað á Broadway um miðjan níunda áratug síðustu aldar aldar, eins og ég hef áður bloggað um, en bjargaðist af því að ég nennti ekki að dansa við manninn með pilluna sem bauð mér í glas, þótt hann byði af sér góðan þokka og sækti mjög fast að fá mig út á dansgólfið, mér fannst bara og finnst leiðinlegt að dansa, nema vangadans. Mér var orðið flökurt og fór inn á klósett til að reyna að jafna mig en sofnaði og svaf þar næstu klukkutímana, læst inni í bás. Ég vil endilega berjast gegn þessari ofbeldismenningu, jafnvel þótt ég hefði aldrei lent í neinu sjálf.

 

Hjá lækniÉg þorði að taka plásturinn af í hádeginu í dag, til að skoða áverkana á þumalfingursnögl vinstri handar sem fór nánast af (já, höndin) í slysinu í stigaganginum í gær. Auðvitað hefði ég átt að fara upp á spítala en fjársvelt heilbrigðiskerfið ræður ekki við hvað sem er. Ég fletti aðeins upp í DIY í læknisfræði-bókinni minni (do it yourself), klippti nöglina eins og ég gat og setti Fjólu-græðikrem á grisjuna á nýjum plástri sem ég skellti svo vandlega og fagmannlega (ég er hjúkkudóttir) á fingurinn. Hefði vissulega verið gott að fá einhvern til að kyssa á bágtið og/eða gefa sleikjó fyrir dugnaðinn, en við björgum okkur vel hér í Himnaríki án nokkurs dekurs.

 

Ég fékk vörur úr Einarsbúð áðan. Ekki hafði mér hugkvæmst í æsingnum út af brotnu nöglinni að segja að ég vildi nýmjólk, bláa mjólk, venjulega mjólk, heldur sagði bara mjólk svo nú sit ég uppi með léttmjólk í lítratali (2 lítrar). Með dreng í sífelldri fitun - hálfgerða gervimjólk sem er ónothæf í kaffi, prófið bara, sjáið og smakkið hryllinginn, svo ég hringdi hikandi og stressuð og spurði hvort þau vildu kannski skipta við mig næst þegar þau ættu leið fram hjá, til að koma í veg fyrir sóun, auðvitað, var svarið hjá þessari Kjötborg norðursins. Ég er alla vega fyrir norðan göng, já, og ég tilheyri NORÐvestur-kjördæmi en er í raun á suðvesturhorninu. En ég teygi mig langt, alla leið, til að hrósa elsku Einarsbúð. Ég var nefnilega hamingjusamur kúnni Kjötborgar í næstum tvo áratugi svo ég veit ... Einarsbúð hefur nú sennilega dekrað við mig lengur en Kjötborg ... bíddu, Kjötborg: 1988-2006= 18 ár. Einarsbúð: 1961-1971 og 2006-2021=25 ár. Ó, það er kannski réttara að kalla Kjötborg hér eftir Einarsbúð suðursins ... Önnur hugmynd og slá þessu saman: Einarsborg?

 

Vonandi komu þau ekki á meðan ég var niðri í kjallara að skella rafmagninu á aftur. Það er einhver pínkupons leki, alls ekkert hættulegt, sagði hirðrafvirkinn minn um daginn og kenndi mér flottan galdur til að ég þyrfti aldrei framar að hlaupa aftur og aftur upp og niður stigana, eins og síðast, við erum að tala um fjórar hæðir (þrjár og hálfa) og mögulega hraða grennslu. Ég skelli sem sagt aðalrofanum hér uppi niður og líka litlu rofunum, SÍÐAN hleyp ég niður í kjallara og ýti þeim glæsta aðalAÐALrofa þar upp, síðan hleyp ég upp og set rafmagnið aftur á, rólega rofa fyrir rofa. Mér líður eins og rafvirkja, Vignir gæti mögulega verið óþarfur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 168
  • Sl. sólarhring: 219
  • Sl. viku: 349
  • Frá upphafi: 1528162

Annað

  • Innlit í dag: 137
  • Innlit sl. viku: 275
  • Gestir í dag: 135
  • IP-tölur í dag: 132

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Gemsinn
  • Mávur óttans
  • Fb grúppur Gamla fólkið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband