Óvænt gleðiveisla og s-kenningar sem lengja lífið

Það má deila um hvernig maður telur upp að fjórum, alla vega í tengslum við seinna hraðpróf drengsins sem átti að vera fjórum dögum eftir það á miðvikudaginn. Ég hafði heyrt einhvern minnast á sunnudag og valdi þann dag. Hugsaði samt með mér að ef miðvikudagur væri dagur eitt, ætti ég kannski frekar að mæta með hann á laugardegi ... en hva, skipti eflaust litlu, en í gær seinnipartinn kom skammar-SMS: „Áminning. Smitgát. Þér er skylt að mæta í hraðpróf.“ En þetta er róbót sem sendir og þagnar eftir eitt skipti. Ég fékk tvenn svona ógnarskilaboð, vegna fyrra og seinna hraðprófs sem ég átti ekki að fara í.

 

Kallabakarí bestaBiðröðin var talsvert styttri í dag en á miðvikudaginn og miklu hlýrra þótt væri lægra hitastig úti. Munaði öllu að hafa ekki vindkælinguna. Og vissulega munaði að vera í gömlu en eins og nýju föðurlandinu úr Walmart og með loðhúfuna góðu sem ég fékk á kynþokkaafslætti í hinni dásamlegu búð Bjargi þar sem leitun er að betri þjónustu og flottari fötum. Þar keypti ég eitthvað af jólagjöfum í fyrra.

 

Inga almáttugur skutlaði okkur og sótti í hálkunni, ég þarf nýtt harðkorna-vetrarnagladekkja-skódæmi eitthvað. Fínu, flottu vetrarskórnir sem voru komnir niður í 19 dollara (áður 80) í Walmart eru orðnir mjög slitnir og ekki góðir í hálku.

Allan tímann í biðröðinni hafði ég á tilfinningunni að það kæmi neikvætt út úr þessu sem væri það besta og skipulagði gleðiveislu í huganum.

 

Að hafa Kallabakarí nánast við hlið sýnatökuhússins (sjá mynd) var ansi hreint hentugt svo þetta varð ekkert mál og varð að veruleika. Súrdeigsbrauð, rækjusalat, langijón, lítil marensterta og malakoff. (Lífið væri fullkomið ef bakarar settu ekki hnetur, döðlur, möndlur, rúsínur í Köku ársins). Nú þurfti bara að finna gesti. Stráksi, ég og Inga ... næstum nóg en ekki alveg svo við nánast hirtum upp konu sem ég kannaðist við og var við sýnatökuhúsið og í „samkvæmiskúlu“ Ingu. Aðeins klukkutíma eftir seinna hraðprófið kom svarið á SMS. Hjá henni og stráksa. Neikvætt eins og við vissum. Hún var að sjá Himnaríki í fyrsta sinn eftir endurbæturnar, hún hafði verið eins og grár köttur í afmælum hjá mér fram að covid og minningin um hana og aðra gesti var orðin alvarlega dauf enda gleymska besta meðalið við söknuði. Við töluðum ekkert um djamm, karlmenn, mataruppskriftir og barnabarnauppeldi, heldur endurvinnslu, ögn um covid og að Skagamenn virtust hafa náð stjórn á faraldrinum hratt og örugglega, við ræddum líka aðeins um eyðileggingarmátt Trumps og hvernig sumt fólk fyrir westan héldi að það að vera hávær, frekur og þykjast allt vita væri það sama og að þora að segja hlutina hreint út. Ég er ekki sérlega hrifin af Biden heldur.

 

Skúrinn við HeiðarbrautÞað hefur háð mér í mannlegum samskiptum að ég kann ekki nógu mikið á tjáknin. Ég get gert broskarl, hjarta og broskarl sem blikkar með öðru auganu. Á gervihnattaöld skiptir allt svona máli. Mér var sagt að ég teldist vera hálfgerður drundhjassi, gjörsamlega ónæm á fínni blæbrigði tilfinningarófsins ...

Svona: :) <3 ;)

 

Myndin er úr fína antíkskúrnum á Akranesi - við Inga kíktum þangað fyrir veisluna.

 

Þótt ég hafi rifið kjaft við Þórólf um daginn hér á blogginu, samt óbeint og samt kurteislega, og ég er ekkert hreykin af því, því ég veit ekki hvort hann bar ábyrgð á þöggun um smittölur á Akranesi sem nú hefur verið hætt ... lýsi ég yfir algjöru trausti á honum og öllu sem hann segir um COVID-19. Gamlar s-kenningar segja nú samt að Þórólfur sé á spena hjá öllum helstu lyfjafyrirtækjunum í heimi, eins og hver einasti sóttvarnalæknir veraldar og Bill Gates borgar líka eitthvað í illmennsku sinni (bíddu, er hann ekki enn á lausu?). Ekki vildi ég vera hluthafi í lyfjafyrirtæki fyrst allur gróðinn fer í mútur til nánast allra vísindamanna og lækna.  Nýjasta nýtt er að Þórólfur og Svandís hafi í fyrra, gert mikla aðför að kristni og kristindómi, með því að hvetja fólk til að fara ekki í mörg jólaboð (fb-vinur heyrði á Útvarpi Sögu) og gera sennilega aftur. Ég sá svo sjálf á netinu í gær að einhver erlendur læknir, doktor eitthvað, hefði sagt eitthvað um hættur bóluefna og alls kyns samsæri. Kommentakerfið logaði, einhver hafði gúglað og hvergi fundið þennan meinta lækni en svarið var: „Hann verður ábyggilega að vera með falskan prófíl til að forðast ofsóknir eða að vera hreinlega myrtur fyrir að segja sannleikann.“

 

TvíhöfðiÞegar Facebook skellir stimpli á vafasamar vax-greinar og bendir lesendum á að fyrir þessu séu lélegar eða jafnvel engar heimildir er það víst hluti af samsærinu og heitir ritskoðun.

 

Ég elska samsæriskenningar og þegar ég sest í helgan stein (allt of langt þangað til) ætla ég að vafra um á netinu og lesa þær mér til skemmtunar og gleði - til að lengja lífið.

 

Ég gleymi alltaf að hlusta á Útvarp Sögu. En ég gleymi nánast aldrei að hlusta á Tvíhöfða á Rás 2 á sunnudagskvöldum kl. 22 til miðnættis.

Mæli með þeim. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 168
  • Sl. sólarhring: 219
  • Sl. viku: 349
  • Frá upphafi: 1528162

Annað

  • Innlit í dag: 137
  • Innlit sl. viku: 275
  • Gestir í dag: 135
  • IP-tölur í dag: 132

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Gemsinn
  • Mávur óttans
  • Fb grúppur Gamla fólkið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband