Meira um stóra konfektmálið og meðvirkni á stoppistöð

Engin miskunnÉg ætlaði sannarlega ekki að gera allt vitlaust í landinu þegar ég vakti athygli á algjöru miskunnarleysi hjá ónefndu konfekt- og sælgætisfyrirtæki þegar kemur að því að taka til í konfektkössum - í nafni breytum nú til-vitfirringarinnar. Facebook-síðan mín logaði. Þröstur sagði: „Skandall“ ... Hólmfríður boðaði mér mikinn fögnuð þegar hún birti mynd af kassa með fylltum molum (sem vantaði samt alveg í)) og mér m.a. bent á að þetta hefði gerst fyrir síðustu jól án þess að ég hefði áttað mig á því. Sá sem kommentaði beint á bloggið hélt því fram að allt væri í molum hjá fyrirtækinu. Fimm tímum seinna fattaði ég djókinn. Sennilega fékk ég ekki konfektkassa í jólagjöf í fyrra. En ég birti hér átakanlega mynd og setti hring í kringum uppáhaldið sem horfið er. Hnetu-döðlu-möndlu-og-rúsínufólkið greinilega komið með rödd - og völd sem það misnotar til að kvelja aðdáendur fylltu molanna ... Við sem héldum að næsta styrjöld yrði á milli bólusettra og óbólusettra vitum nú betur ... það verða fylltir molar vs óætir molar.

 

Kannski er þetta bara best, upp á línurnar en takk, allir þroskuðu vinir mínir á Fb og annars staðar, fyrir að benda ekki á þá augljósu staðreynd að ég hefði í raun ekki gott af miklu konfekti. Það er til fjöldi fólks sem segir svoleiðis en sem betur fer þekki ég það ekki. Sama fólk og segir sennilega: „Ég var að hugsa um að bjóða þér far en hugsaði svo með mér að þú hefðir bara gott af því að ganga.“ Svona fólk á hvorki að hafa bílpróf né leyfi til að setja hugsanir sínar í orð.

 

SólSvo var ég líka skömmuð á fb fyrir að hafa ekki gaman af því að lesa sögulegar skáldsögur. Fljótfærnin í mér. Er Ísfólkið ekki söguleg skáldsaga ... í 47 bindum? Hafði reyndar ekkert álit (fordómar) á þessum bókum fyrst en þegar ég neyddist til að kaupa bók nr. 5 af því að það var ekkert annað lesefni til í sjoppunni við Hlemm árið 1983, fannst mér þetta bara fínt og á næstu áratugum, alla vega mjög mörgum árum, las ég rest. Tók svo viðtal (í Vikuna) við Margit Sandemo, hún var frábær og það sem ég man úr viðtalinu var ráð hennar til þeirra sem hafa ekki góða samkvæmisblöðru og fara samt í óbyggðaferðir (eins og hún) ... að drekka við þorsta ekta appelsínusafa (ekki úr þykkni) til að vera ekki sífellt pissandi. Sá eini hér á landi sem ég veit af er frá Sól (sjá mynd).

Þótt ég sé mikill áhrifavaldur og ætti auðvitað að fá fullt gefins, er þetta ekki kostað hrós. Bara ókeypis frá mér - ég vil fara alla leið alltaf. Það segir mér ekki mikið að heyra talað um ekta appelsínusafa. Hvað er það og hvar fæst það? Ekki úr þykkni og fæst nánast alls staðar en núorðið bara í stórum flöskum. Þetta veit ég þótt ég hati búðaráp - en ég á alltaf eftir að fara í Stefánsbúð á Laugavegi, hún er víst eitthvað allt annað ...  

 

Fyrir klippHirðklippari Himnaríkis mætti fyrir allar aldir á fínum hvítum bíl og skutlaðist með okkur á Classic hárstofu sem er í fína Dótarí-húsinu en Dótarí er ný og glæsileg leikfangaverslun hér á Skaga og bjargaði mér nýlega frá því að fara í hrekkjavökuköttinn.

 

Eftir sérlega vel heppnaða klippingu kom í ljós að það var nokkur bið eftir strætó og því tími til að drepa. Þjónustan í Apóteki Vesturlands er of góð ... og hröð. Það fannst dásamlega ilmandi sturtusápa á mettíma svo nú voru 27 mínútur eftir. Ég hef ekki þurft að kaupa mér sturtusápu í áratugi, fæ alltaf í afmælisgjöf og þegar maður heldur örafmæli (v/covid) með um tíu manns, fyllist ekki allt af sturtusápu.

 

Eitthvað var ég búin að heyra af því að kerruþvottastöð væri komin í Bónus (í Dótaríhúsinu) og ég bókstaflega varð að prófa. Er mikið fyrir tæknina ... grín. Það gekk bærilega af því að ég las leiðbeiningarnar sem voru í þremur liðum, og allt í einu var ég komin inn í búðina eins og hafa verð teleportuð, og án þess að hafa endilega ætlað mér það. Greip með mér eitthvað sem fæst ekki í Einarsbúð, eins og Bónus-kjötsúpu, komin bráðum fjögur ár síðan ég smakkaði síðast kjötsúpu. Og nei, ég kann ekki að búa hana til. Það hefur aldrei verið eftirspurn eftir henni á mínu heimili ... Halla frænka gerir þá langbestu kjötsúpu í heimi þó víðar væri leitað og ég þarf að koma mér vel við hana en þessi verður að duga þangað til.

 

Eftir klippiðHef einu sinni misst af innanbæjarstrætó þarna fyrir utan (átti að koma 11.58) og beið því kannski óþarflega lengi úti miðað við rokið á þessu opna svæði til að það gerðist ekki aftur, en maturinn í pokanum hitnaði ekki á meðan. Af hverju hittir maður aldrei neinn sem maður þekkir sem skutlar manni heim? Ég horfði vongóð á alla bílana sem óku hjá en af meðvirkni gætti ég þess að ná ekki augnsambandi til að fólkinu liði ekki illa í hlýjum og mjúkum bílunum. Ég var nýklippt og verulega fín, frekar girnileg bara (sjá mynd), gríman faldi t.d. algjörlega undirhökuna sem ásækir mig þessa dagana. Veislan á sunnudaginn síðasta var víst bjúgvaldandi. Sykur, ger og það allt. Þetta kallast hér á bæ bjúfur og kartöflur, og mikið hlegið. Himnaríki er nefnilega ekki alltaf það mikla kærleiksheimili sem ég læt ykkur halda ... oft er það einhvers staðar mitt á milli Hússins á sléttunni og Dallas. Nema við fáum okkur auðvitað aldrei í glas eftir vinnu, hér er ekki heimabar, annars bara svipað, ríkidæmi og fegurð, barnsleg tiltrú (lengst af) þegar kemur að konfektframleiðendum og margt fleira.

- - - - - - - - - 

Bak við tölvuskjáinn:

Fatnaður: Verslunin Nína (buxurnar, man ekki hitt)

Hár: Anna Júlía í Classic hárstofu, Akranesi

Förðun: Náttúruleg

Tónlist: Atom Heart Mother með Pink Floyd

Kostun: (Hér er tækifæri)  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 168
  • Sl. sólarhring: 219
  • Sl. viku: 349
  • Frá upphafi: 1528162

Annað

  • Innlit í dag: 137
  • Innlit sl. viku: 275
  • Gestir í dag: 135
  • IP-tölur í dag: 132

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Gemsinn
  • Mávur óttans
  • Fb grúppur Gamla fólkið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband