15.11.2021 | 14:00
Skamm ...
Mamma hringdi í morgun, frekar óhress í bragði:
Þegar þið Hilda komuð til mín á laugardaginn, sagðir þú mér frá manni sem talaði mjög hátt í símann um morguninn, sagði hún. Og eyðilagði fyrir þér indæla strætóferð!
Jú, mikið rétt, en kannski ekki eyðilagði, ég-
Og hvað sá ég svo á blogginu þínu um þetta ... hverju á að trúa?
Ég myndi aldrei ljúga að þér, mamma, sagði ég, en bloggvinir mínir vita að ég færi oft í stílinn, lýg stundum eins og ég er löng til, mig langaði bara að segja að ég hefði hoppað upp í bílinn hjá Hildu á ferð, eins og ofurhetja - og það var svo erfitt að blogga á makkintoss-tölvunni hennar Hildu og ég var nær dauða en lífi eftir búðaráp og þá bull-
Var kannski sagan um meintan tengdason minn frá Malmö uppspuni frá rótum? greip mamma fram í fyrir mér.
Nei, þar var hvert einasta orð satt. Það er ekki hægt að skálda slíkt.
Eins gott, ég var ánægð með að þú losaðir þig við þessa gervipersónu sem hann var. En þessi aumingjans maður í strætó, ég hafði nú bara samúð með honum, sagði mamma.
Hann talaði reyndar mjög hátt nánast allan tímann um alls kyns einkamál. Hann virtist ekkert eiga bágt, hló mikið inn á milli, var bara að segja hressandi fréttir af sér og sínum, svona líka ... Svo ber mér engin skylda til að hlífa fólki sem ekki er frá Akranesi, Þingeyjarsýslu, Kópavogi, Álftanesi (viðbót kl. 15.53 vegna kvartana) eða Skagafirði, ég reyni að skrifa þannig líka að þekkist ekki.
Mamma hnussaði en varð mýkri á manninn þegar ég minntist á Skagafjörð og helsátt þegar ég lofaði að færa minna í stílinn framvegis. Það gengi ekki að fólk héldi að ég væri illa uppalin. Vonandi tekst mér að standa við það.
Sjórinn minn er himneskur núna, suðvestanátt, nokkuð hvöss, 5 stiga hiti. Ástæða þess að ég keypti Himnaríki var einmitt sjórinn. Á þessum fimmtán árum hef ég bara einu sinni vaðið í sjónum, aðferð til að reyna að losna við bjúg. Virkaði ekki.
Það er enn fast í höfðinu á mér þegar hinn huggulegi (og indæli) Stuðmaður Egill Ólafsson, var spurður (kannski fyrir 25 árum) hvað honum fyndist flottast við konur. Fallegir ökklar, svaraði hann (Svona var nú blaðamennska í gamla daga, krakkar mínir)
Ég horfi á fætur mína og sé kannski ekki breiða ljósastaura, en samt nokkuð breiðari útgáfu af grönnu og fögru ökklum mínum - sem njóta sín sífellt sjaldnar eins og þeir eiga að vera. Meiri hreyfing, minni leti, minna hatur á gönguferðum myndi án efa gera mér og þeim gott. Nú er ég búin að kaupa mér góða skó og hef enga afsökun í hálkunni. Þarf samt að ganga skóna til hér heima, ráðlagði konan í búðinni, kannski korter á dag í einhverja daga og þá ættu þeir að verða fínir.
Myndin af sjónum mínum var tekin rétt áðan og veðrið hefur breyst helling síðan þá. Íslenskt veður er dásamlegt. Hvernig geta Íslendingar flutt til heitari landa þar sem lítil sem engin tilbreyting ríkir og nánast alltaf ólíft af hita?
Yfir og út í bili.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 168
- Sl. sólarhring: 219
- Sl. viku: 349
- Frá upphafi: 1528162
Annað
- Innlit í dag: 137
- Innlit sl. viku: 275
- Gestir í dag: 135
- IP-tölur í dag: 132
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.