17.11.2021 | 15:06
Stórstyrjaldir á netinu og jólabókaskortur
Jæja, minn fyrsti Teams-fundur seinnipartinn í dag ... Gaman, gaman, er þetta nokkurt mál? Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að maður verði sér til skammar? Heyrist ALLT? Ég var ekki endilega að hugsa um búkhljóð, heldur frekar ískrið í úrsérgengnum skrifborðsstólnum. Ég hef misst 300 Snapchat-vini út á fjandans ískrið. Við Hilda fórum í Pennann Hallarmúla á laugardaginn til að skoða skrifborðsstóla, ég hafði frétt að þeir væru svo góðir. Aðeins einn var til sýnis og mátunar í búðinni og mér bent á Internetið.
Þessi ískrandi sem ég hef notað árum saman er gamli vinnustóllinn minn frá Birtíngi. Þáverandi framkvæmdastjóri leyfði mér að eiga hann þegar endurnýjun á stólum stóð yfir. Ég er nýtin, kannski einum of. Kannski hefði ég sparað mér síðasta þursabit ef ég bara sæti á betri stól ... En dóttir hennar Ingu vinkonu er með vandaðan stól til sölu og mun lána mér hann til prófunar ... Ef hún kemur í dag getur hún kannski kennt mér á Teams í leiðinni ... ég kann hitt þarna fjarfundadæmið, en bara í gegnum símann minn. Tölvan er á gólfinu svo myndavélin verður ekki virk, það er algjör synd, allt svo nýskúrað og fínt ...
Ekki stór vandamálin hér í Himnaríki - ég er heldur ekki ÞAÐ tækniheft. Það að ég gat ekki pantað fínu jólagjafirnar af HugleiksDagssonar-síðunni hlýtur að vera síðunni að kenna. Ég fann bara annað til að gefa. Ef ekki er hægt að hafa skýrar leiðbeiningar í greiðsludæminu ... og þetta er ekki aldurinn! Vinkonur mínar skilja ekkert í þessu tæknirugli í mér og lenda reglulega í að hjálpa mér. Þær hinar sömu sem ég kannski tengdi vídeótæki fyrir í gamla daga, án þess að svitna og án þess að skilja leiðbeiningarnar sem voru stundum einungis á hollensku eða úrdú.
Ég hef síðustu daga fylgst með nokkrum Facebook-styrjöldum á milli fólks sem er hlynnt bólusetningum og þeirra sem eru það ekki. Ég held mig bólusetningarmegin en nenni ekki að fara í stríð við neinn. Það er líka mikill munur á þeim sem kjósa að þiggja ekki bólusetningu ýmissa hluta vegna, og þeim sem pósta endalaust fréttum af skaðsemi bólusetninga, dauðföllum vegna þeirra og alls konar, sem flest eða jafnvel allt, er búið að hrekja af læknum og vísindafólki.
Nú vita bara svo margir miklu betur um veirur og sýkingar en læknar og vísindafólk ... Án efa verða jólaboðin skrautleg hjá sumum fjölskyldum. Báðum hópum þykir hinn ansi tregur að að sjá ekki sannleikann. Bókin á myndinni er án efa hjálpleg þeim sem þurfa að gera aðgerðir á sér sjálfir vegna fullmikils kostnaðar í heilbrigðiskerfinu. Ég sá hana á Pallett-kaffihúsinu í Hafnarfirði um síðustu helgi. Þar er samt pottþétt fátt bitastætt að finna um veirur og sýkingar í henni, eflaust bara það sem löngu er búið að afsanna af klára fólkinu á YouTube.
Um tíma íhugaði ég að sleppa örvunarskammtinum en hætti fljótlega við það, enda komin meiri þekking og reynsla. Þessi kóvídviðbjóður hverfur einn daginn og ef bólusetning er leið til að flýta fyrir því er það bara fínt, þrátt fyrir aukaverkanir. Allir á Akranesi nema ég eru á bíl og því yrði ég voða þakklát ef örvunin færi fram á hlaðinu hjá mér eins og bæði fyrri bólusetningar og sjálfar alþingiskosningarnar í ár. Og hættið að hlæja að mér þótt ég sé í Norðvestur. Þetta klúður verður þaggað niður með gervieldgosi (speglar eru galdurinn) sem dreifir huga okkar.
Eftir rúma viku, eða um þarnæstu helgi, sendir Útvarp Akranes (FM 95.0, minnir mig) út fjölbreytta dagskrá til styrktar Sundfélagi Akraness sem við öll elskum og styrkjum. Ég var beðin um að sjá um bókaþátt eftir hádegi á laugardeginum. Áður en ég flutti til Akraness kom ég alla vega tvisvar til að vera með þátt um bækur og hafði gaman af. Þá var það bara rúta báðar leiðir, engin Akraborg, enginn strætó. Annað slagið hef ég verið með þátt eftir að ég flutti - alltaf jafngaman. Annaðhvort er Óli Palli tæknimaður eða Óli Ofur. Ekki aldurstakmark þarna heldur kemstu aðeins sá að sem heitir Óli. Þetta er svona á Skaganum.
Mynd: Með Ástu Salbjörgu bókaormi árið 2016. Mynd stolið miskunnarlaust af fb-síðu Sundfélags Akraness.
Þetta er í fyrsta skipti í þrjátíu ár sem ég er ekki búin að lesa u.þ.b. 30 jólabækur á þessum árstíma, svo nú eru góð ráð dýr ... ég hef skrifað minna um bækur fyrir Vikuna en oft áður og það munar um það. Ég ætla að sanka að mér einhverjum bókum og hella mér út í lestur, það er nú rúm vika til stefnu og ef ég geri ekkert annað ... Það koma reyndar góðir gesti í þáttinn, þrjár konur sem eiga það sameiginlegt að lesa mjög mikið. Þær eru allar mjög skemmtilegar (eins og svo algengt er á Akranesi) svo ég vona að allt landið og miðin hlusti á þáttinn sem vonandi auðveldar val á jólabókum til að gefa eða eiga. Allir vita að bækur eru bestu gjafirnar.
(Og mamma, ekki gefa mér aftur matreiðslubók fyrir byrjendur og velmeinandi titil á ástar- og örlagasögu (Vinnan göfgar manninn), ég er löngu búin að ná þessu og ég skal fljótlega prófa að elda mína fyrstu kjötsúpu).
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 167
- Sl. sólarhring: 218
- Sl. viku: 348
- Frá upphafi: 1528161
Annað
- Innlit í dag: 136
- Innlit sl. viku: 274
- Gestir í dag: 134
- IP-tölur í dag: 131
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.